Morgunblaðið - 08.03.2013, Síða 17

Morgunblaðið - 08.03.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013 Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar birti í gær skýrslu með tillög- um að göngu- og hjólabrú yfir Fossvoginn. „Vinna við gerð þessarar skýrslu var sett saman með það að markmiði að stytta vega- lengdina milli sveitarfélaganna og tengja þau betur fyrir gangandi og hjólandi. Verði þessi brú að veruleika mætti segja að Kársnesið væri orðið háskólahverfi,“ segir Dagur B. Egg- ertsson, formaður borgarráðs Reykjavíkur- borgar. „Þetta er í raun liður í að hugsa um hjólreiðar sem alvöru samgöngumáta og hvernig hægt sé að gera höfuðborgarsvæðið þannig úr garði að hægt verði að hjóla hratt og vel milli sveitarfélaganna. Í okkar huga væri næsta skref svo að skoða þverun milli Kópa- vogs og Garðabæjar. Skýrslan er mjög ítarleg og í henni eru lagðar til nokkrar mismunandi leiðir sem við viljum frá viðbrögð við, bæði úr samfélaginu sem og ráð innan borgarinnar. Þessi framkvæmd getur að auki haft góð áhrif á ýmiss konar tómstundastarf á höfuðborgar- svæðinu.“ Í skýrslunni er einnig velt upp þeim möguleika að strætisvagnar gætu ekið um brúna. „Það var hluti af upplegginu, en svo kom í ljós að slíkt myndi stytta ferðatímann milli Kársness og til dæmis Háskólans í Reykjavík mjög lítið og jafnvel ekki neitt. Mér finnst því liggja beinast við að við hugsum fyrst og fremst um þetta sem brú fyrir gangandi og hjólandi,“ segir Dagur. Samkvæmt skýrslu starfshópsins er áætlað- ur kostnaður við gerð 270 metra göngu- og hjó- labrúar 950 milljónir króna. Ef strætisvagnar eiga að geta ekið yfir brúna er kostnaður við hana áætlaður 1.250 milljónir króna. Ódýrasti möguleikinn, 100 metra göngu- og hjólabrú, er metinn á 640 milljónir króna. Sá möguleiki að geta opnað brúna fyrir báta- umferð kostar 150 milljónir króna til viðbótar. Gert er ráð fyrir að bygging brúarinnar taki um það bil eitt ár. Annar undirbúningur, svo sem umhverfismat og skipulagsvinna, gæti tekið um eitt til tvö ár til viðbótar. Samkvæmt upplýsingum af vef Reykjavík- urborgar stendur yfir vinna við gerð aðalskipu- lags í Kópavogi og Reykjavík og verður þessi hugmynd lögð inn í þá vinnu, en ekki er gert ráð fyrir brú á þessum stað í eldra aðalskipu- lagi. Hjóla- og göngubrú yfir Fossvog  Brú milli Reykjavíkur og Kópavogs fyrir gangandi, hjólandi og strætisvagna til skoðunar Samgöngubætur Á myndunum má sjá tvær af þeim tillögum sem starfshópurinn gerði í skýrslu sinni. Á myndinni til vinstri er gert ráð fyrir 270 metra langri brú og lítilli landfyllingu, en á mynd- inni til hægri er brúin 100 metra löng, með tilheyrandi landfyllingu. Í báðum tilvikunum yrði brúin hugsuð til að bera þunga hjólandi og gangandi vegfarenda. Horft er til austurs inn Fossvoginn. Annað sjónarhorn Ef horft er til vinstri á brúna á myndinni. Horft frá Kársnesvör til vesturs. Ljósmyndir/Reykjavíkurborg Myndir úr skýrslu starfshópsins. KOMDUOG PRÓFAÐU NÝRFORD FIESTA SNILLDAR BÍLL FRÁ FRÁ FORD FIESTA 2.490.000 KR. 28.979 KR./MÁN* ford.is Ford Fiesta Trend 5 dyra, 1,0i bensín 65 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,3 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 99 g/km., fær frítt í stæði í Reykjavík í 90mín. í senn. Miðað er við grænan óverðtryggðan bílasamning til 7 ára og uppítökubíl / útborgun að verðmæti 760.000 kr. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Hlutfallstala kostnaðar 10,64%. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu. Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 * Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Aukin þjónusta Bíldshöfða 6: Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.