Morgunblaðið - 08.03.2013, Side 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013
Nú hefur Lands-
net, taglhnýtingur
Landsvirkjunar, látið
það boð út ganga að
dreifikerfi raforku í
landinu sé komið að
fótum fram og þurfi
að styrkja það fyrir
litla 77 milljarða.
Það þarf ekki að
hugsa lengi til að
komast að niðurstöðu
um, að fólkinu í landinu og at-
vinnulífinu að frátalinni stóriðj-
unni er ætlað að borga þessa
styrkingu. Stóriðjan fær alltaf
sína orku fyrir slikk vegna
heimskulegra gamalla langtíma-
samninga eins og flestir vita.
Reyndar notar hún um 90% af raf-
orkuframleiðslunni, sem ekki virð-
ist síður heimskulegt.
Taglhnýtingurinn hefur beitt
gamalkunnum brögðum, hótunum,
fortölum og sínum
lögfræðingaher til að
fá sveitarfélög og
landeigendur til að
fallast á línulagnir of-
anjarðar í krafti þess
að slíkar línur séu svo
miklu ódýrari en jarð-
strengir.
Haft er eftir al-
ræmdum stjórnmála-
manni, sem komst til
áhrifa á fjórða áratug
síðustu aldar, að væri
lygin endurtekin nógu
oft yrði henni um síðir trúað og
hún tekin sem stórisannleikur.
Sýnt hefur verið fram á að jarð-
strengir eru örlitlu dýrari sé fórn-
arkostnaður hins umtalsverða
landrýmis sem fer til spillis við
gerð loftlína tekinn inn í dæmið.
Sé umhverfiskostnaður líka tekinn
með í reikninginn má búast við að
dæmið snúist við og að háspennu-
línur ofanjarðar séu mun dýrari
kostur en jarðstrengir.
Þrátt fyrir þetta virðist áróður
taglhnýtingsins virka bærilega á
misvitra stjórnmálamenn og sveit-
arstjórnarmenn. Aðrir standa
keikir og búast til varna. Land-
spjöll og sjónmengun af völdum
háspennulína blasir enda hvar-
vetna við augum þeirra sem sjá
vilja. Ryðbrunnin járngrindamöst-
ur tala sínu máli um varanleika
óskapnaðarins, svartbrunnar
mosaþembur í nágrenni mastr-
anna segja frá sinkmenguninni
sem af þeim stafar, fuglshræin
meðfram línunum segja frá örlög-
um fugla himinsins sem vírar og
grindur hafa nú svipt frelsinu.
Fyrirhugað er að vaða með nýjar
línulagnir yfir viðkvæma þjóð-
garða. Ótalin eru neikvæð áhrif
rafsegulbylgna á heilsufar manna
og opinberri nefnd um mótun
stefnu um lagningu raflína í jörðu
mistókst ætlunarverk sitt. Allt er
þetta vegna þess að sjálfskipaðir
reiknimeistarar berja hausnum við
steininn, neita að reikna rétt og
halda áfram að ljúga.
Á sama tíma liggja heilu há-
spennulínurnar flatar á jörðinni,
margbrotnar eftir eitthvert hretið
með tilheyrandi öryggisleysi,
truflunum og kostnaði fyrir not-
endur. Engu að síður velta menn
upp furðuhugmyndum um sæ-
streng til útlanda niður á fjögurra
kílómetra dýpi fyrir 350 milljarða.
Að vísu er talsvert í að slíkur
strengur verði uppfundinn en ís-
lenzkir spekúlantar eru samt strax
farnir að hugsa stórt enda sýna
dæmin að menn þurfa ekki að
vera lengi í námunda við orkufyr-
irtækin til að týna glórunni. Það
hljóta að vera örvita menn sem
telja að ekki sé hægt að grafa há-
spennulínur rúman metra ofan í
jörðina vegna kostnaðar, þegar
landið er yfirfullt af verk-
efnalausum skurðgröfum.
Nú hefur verið farið fram á
heimild til eignarnáms á Reykja-
nesi þar sem nokkrir landeig-
endur þverskallast við að hlýða
boði taglhnýtingsins um að jarðir
þeirra þurfi að eyðileggjast í al-
mannaþágu. Ætlunin er að grípa
til varna og er það vel. Skilyrði
fyrir eignarnámi eru engan veg-
inn uppfyllt, undirlægjuháttur
gefst aldrei vel og auðvelt virðist
að ná samkomulagi um málið, séu
strengir lagðir í jörð.
Tími þess að náttúran sé einsk-
is metin og fegurðin verðlaus er
liðinn. Vandséð er hvernig ráð-
herra getur annað en synjað
beiðni taglhnýtingsins um eign-
arnám, sem er í andstöðu við
þjóðarhag, almannarétt og heil-
brigða skynsemi.
Eftir Sverri
Ólafsson
Sverrir Ólafsson
» Tími þess að nátt-
úran sé einskis
metin og fegurðin
verðlaus er liðinn.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Enn af háspennulínum
Í þeirri miklu ring-
ulreið sem skapaðist í
borginni á þriðjudag-
inn þegar óveðrið skall
á veltir maður fyrir
sér af hverju borg-
aryfirvöld stóðu ekki
betur vaktina. Það á
að vera skylda yf-
irvalda að vera alltaf á
verði og bregðast
strax við þegar eitt-
hvað gerist sem ógnað
getur öryggi íbúanna. Með réttum
viðbrögðum hefði verið hægt að
koma í veg fyrir allar þær hremm-
ingar og vesen sem fólk lenti í
vegna ófærðarinnar. Borgaryfirvöld
hefðu getað komið í veg fyrir að
foreldrar þeystu út á götur borg-
arinnar með börn sín á leið í skóla
og fækkað þannig bílum sem sátu
fastir og töfðu fyrir snjóruðnings-
tækjum og tepptu stofnæðar fyrir
neyðarumferð. Að sjálfsögðu hefðu
skólayfirvöld í borginni átt að aflýsa
strax öllu skólahaldi og gera allt
sem í þeirra valdi stóð til að ógna
ekki öryggi barnanna og annarra
borgarbúa. En því miður endurtók
sig sama sagan og í óveðrinu í nóv-
ember þegar þakplötur voru fjúk-
andi um alla borg og fólk tókst á
loft inn við Höfðatorg. Rétt eins og
núna fengu foreldrar þá mjög mis-
vísandi skilaboð frá skólunum. Ég
tók því málið upp í skóla- og frí-
stundaráði Reykjavíkur og benti á,
að það þyrfti að samræma viðmið-
anir og reglur um hvenær eigi að
aflýsa skólahaldi eða senda börnin
heim vegna veðurs. Því miður hafa
skólayfirvöld skellt skollaeyrum við
þessum ábendingum eins og dæmin
sönnuðu í gær. Það gagnast lítið
fyrir borgarbúa að Dagur B. Egg-
ertsson, formaður
borgarráðs, stæri sig
af því að snjómokstur
hafi hafist kl. þrjú um
nóttina þegar borg-
aryfirvöld sofna svo á
verðinum með að vera
í viðbragðsstöðu að
fella niður skólahald
þegar svona óveður er
aðsigi. Sá meirihluti
sem stendur vaktina
núna í borginni þarf að
fara að gera sér grein
fyrir því að það er ekkert „djók“ að
stjórna borginni, það þarf að fara
að sýna meiri ábyrgð og faglegri
vinnubrögð og skrópa ekki á vakt-
inni þegar á reynir.
Borgaryfirvöld
stóðu ekki vaktina
Eftir Mörtu
Guðjónsdóttur
» Sá meirihluti sem
stendur vaktina
núna í borginni þarf að
fara að gera sér grein
fyrir því að það er ekk-
ert „djók“ að stjórna
borginni.
Marta Guðjónsdóttir
Höfundur er varaborgarfulltrúi.
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift
REDKENONLY SALON
SALONVEHHÁRSNYRTING: RÁÐGJÖF, KLIPPING OG MÓTUN, HÁRLITUN, HÁRÞVOTTUR MEÐ NUDDI EÐA DJÚPNÆRINGU
VÖRUR Í VERSLUN: ALLT Í HÁRIÐ, HÁRLENGINGAR OG -KOLLUR, GREIÐUR, BURSTAR, BLÁSARAR
HÚSI VERSLUNARINNAR, KRINGLUNNI
s. 568 7305 • salonveh.is
Nýju vor- og sumarlínurnar komnar
frá Haute Coiffure Francaise
ÞÚ FÆRÐ PERSÓNULEGA OG FAGLEGA RÁÐGJÖF HJÁ OKKUR