Morgunblaðið - 08.03.2013, Side 32

Morgunblaðið - 08.03.2013, Side 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013 Smáauglýsingar Gisting Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að- staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að hafa hund í Skógarhlíð. Er með fleiri orlofshús við Akureyri og öll með heitum potti. orlofshus.is Leó 897 5300 Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is VORIÐ ER AÐ KOMA ! Ölfusverk ehf. – Stoðverk, Grásteini, Ölfusi Tökum að okkur alla trésmíða- og raflagnavinnu. Áratugareynsla í smíði sumarhúsa 70 hús afgreidd sl. 10 ár. Sjáum einnig um bygg- ingastjórn og umsjón fasteigna. Einnig er til sölu á sama stað 45m² ferðaþjónustuhús, innréttað sem 2 íbúðir (hægt að breyta skipulagi að innan) selst ódýrt. Kjartan, rafverktaki, gsm 892 8661. Þorsteinn,húsasmíðameistari, gsm 660 8732. Rafvirkjun AH-Raf. Dyrasímakerfi, töfluskipti og öll almenn raflagnavinna. Tilboð/ tímavinna. Vönduð vinnubrögð. ahraf@ahraf.is - Hermann, sími 845 7711, og Arnar, sími 897 9845. Til sölu Sveitabær.is Nautakjöt beint frá bónda Seljum einungis 100% hreint gæða- ungnautakjöt. Öll vinnsla í höndum fagmanna. Nánari upplýsingar og pantanir á sveitabær.is. Ódýr blekhylki og tónerar verslun í Hagkaup Smáralind og Fjarðargötu 11, Hafnarfirði. Blekhylki.is, sími 517-0150. Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali. Viðgerðir á flestum gerðum sauma- véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is eða hringdu í s. 892 3567 eftir hádegi alla daga. Skattframtöl Skattframtal 2013 Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga og rekstraraðila. Mikil reynsla - hag- stætt verð. Uppl. í síma 517 3977. www.fob.is. Netfang: fob@fob.is. Ýmislegt Póstval – vefverslun www.postval.is Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Nýkomið Tunica St. 16 - 28 Leggings glans Sími 588 8050. - vertu vinur Bílaþjónusta NÝTT NÝTT NÝTT Teg. 1566 - vel fylltur í BC-skálum á kr. 5.800. Teg. 1566 - vel fylltur í BC-skálum á kr. 5.800. Teg. 11001 - þessi gamli frábæri í C-, D-, E-, F-skálum á kr. 5.800. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-föst. 10-18, laugard. kl. 10-14. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur ✝ Unnur MundaFriðriksdóttir var fædd í Reykja- vík 6. september 1967. Hún lést úr hjartaáfalli á heimili sínu í Breiðholti 25. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Friðrik Pétur Magnússon Welding, f. 12. nóvember 1937, látinn 17. júlí 2010, og Guðrún Þórarinsdóttir, f. 6. október 1943, látin 15. maí 2001. Systkini Unnar eru Jóna Fanney Friðriksdóttir, f. 17. ágúst 1963, börn hennar eru Þórarinn Guðnason og Guðrún Halla Guðnadóttir. Þórarinn Friðriksson, f. 1. janúar 1965, maki Elva Ósk Wiium, börn þeirra eru Jakob Andri, Sólveig Rut og Guðrún. Stefán Hinrik Garð- arsson, f. 21. jan- úar 1969, ætt- leiddur, býr í Berlín. Róbert Daði Friðriksson, f. 15. júní 1972, látinn 13. febrúar 2009. Börn Unnar Mundu eru Matt- hías Vilhjálmsson, f. 30. jan- úar 1987, maki Rakel Tóm- asdóttir, barn þeirra er Vilhjálmur Atli, f. 31. ágúst 2008. Sandra Ósk Karlsdóttir, f. 13. júní 1990, maki Jóhann Eymundsson, barn þeirra er Serena Ýr Jóhannsdóttir, f. 2. október 2012. Alexander Jafet Rúnarsson, f. 28. júní 2001. Unnur Munda var jarð- sungin frá Grafarvogskirkju 7. mars 2013. Ég minnist mömmu sem var alltaf brosandi og í góðu skapi. Þrátt fyrir erfiða lífsbaráttu náði hún alltaf að finna það já- kvæða í lífinu og brosa sig í gegnum tárin. Við vorum ólíkar en innst inni samt svo líkar. Það besta sem við gerðum saman var að spjalla um allt milli himins og jarðar, yfir einum rjúkandi heit- um kaffibolla. Ég er ekki aðeins að kveðja konuna sem fæddi mig í þennan heim heldur líka mjög góða vin- konu. Ég vildi óska að þú hefðir fengið að kynnast litla ömmu- gullinu þínu meira en ég held uppi minningunni um ömmu engil sem passar upp á okkur alltaf. Lofaðu mér því. Þú ert á betri stað núna. Það er ekki mikil áskorun fyrir þig. Þú átt eftir að heilla alla uppúr skónum með fallega brosinu og stóra persónuleikanum. Brosið þitt yljar mér um hjartarætur og mun lifa að ei- lífu. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Ég elska þig. Þín dóttir, Sandra Ósk. Elsku Unnur, með trega og sorg í hjarta skrifa ég þessi kveðjuorð. Þegar ég svaraði í símann síðastliðið mánudagskvöld átti ég síst von á þeirri harmafregn að þú elsku vinkona værir dáin, horfin! Nei, það getur ekki ver- ið, ekki Unnur, hugsa ég og spyr í veikri von, er það alveg víst? Jú, sú var raunin. Ljós þitt hafði slokknað en eftir sitja dýrmætar minningar. Mér verður hugsað til baka, til ársins 1991 þegar leiðir okk- ar lágu fyrst saman. Þú svo fal- leg, hress og kraftmikil stelpa, alveg eins og þú varst síðast þegar ég hitti þig, alltaf sami krafturinn og dugnaðurinn, sama hvað bjátaði á. Já, oft var lífið ekki dans á rósum, mikið sem þú fékkst að reyna, elsku vinkona. Sagt er að guðirnir leggi mest á þá sem þeim þyki vænst um. Aldrei minnist ég þó að þú hafir barmað þér yfir orðnum hlut, heldur hélstu áfram staðráðin í að gera betur næst, alltaf bjartsýn og jákvæð. Ég sé þig fyrir mér brosandi með þína einstöku útgeislun, alltaf svo mikið líf í andlitinu á þér sem sagði til um líðan þína, hvort þú varst glöð, hissa, spennt eða smeyk. Já, þú tal- aðir með andlitinu, Unnur, og fékkst mig oft til að hlæja. Stundum gat ég ekki varist hlátri þegar við mættum hund- um, þér stóð ekki alveg á sama, þið áttuð það sameiginlegt þú og dóttir mín, enda eigið þið sama afmælisdag. Erfið finnst mér tilhugsunin um okkar síðasta samtal, sem var svo stutt, eitthvað stóð illa á það augnablikið og ætluðum við að heyrast eftir smá, sem varð þó ekki. Ég hafði ekki séð þig í nokkra mánuði, ekki hafði liðið svona langur tími milli funda okkar síðustu tíu árin. Ég var farin að sakna þess að sjá þig koma upp stigann á hálfgerðum spretti, pústa smá, brosa og spyrja hvort ég ætti ekki kaffi. Þú hafðir góða nærveru stelpa og alltaf varstu boðin og búin ef eitthvað var, aldrei upptekin þó alltaf væri nóg að gera. Manstu fyrir nokkrum árum þegar við á örskotsstundu tókum ákvörðun um að skreppa til Kaupmanna- hafnar, tíminn til miðakaupa var að renna út og þú hélst það nú, ég kem með þér, kaupum miða. Mikið er ég þakklát í dag fyrir að eiga myndir og minn- ingarnar úr þessari ferð okkar. Eins geymi ég þær minningar í hjarta mínu um okkar óteljandi samtöl, misalvarlegs eðlis. Takk fyrir að treysta mér, elsku vin- kona. Þín verður sárt saknað. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Benediktsson.) Elsku Sandra, Matthías, Al- exander og aðrir aðstandendur, ykkur votta ég mína dýpstu samúð. Megi hið skærasta ljós lýsa veginn framundan. Elsku Unnur mín, ég kveð þig með sömu orðum og þú kvaddir Dallý vinkonu okkar. Drottinn er alvaldur Guð, hann talar og kallar á jörðina frá upprás sólar til niður- göngu hennar. Hvíl í friði. Þín vinkona, Helga Nanna. Í dag kveð ég með trega æskuvinkonu mína. Ég kynnt- ist Unni þegar við vorum 14 ára gamlar og urðum við strax bestu vinkonur. Hún var litrík- ur og sterkur persónuleiki sem hreif fólk með sér. Það var alltaf líf og fjör í kringum þessa fallegu og brosmildu stelpu. Mörg uppátækin voru skemmtileg, enda slagur jafn- an látinn standa. Unnur hafði til að bera hugrekki og sjálfs- bjargarviðleitni þar sem hún hafði lengi þurft að standa á eigin fótum. Framtíðin blasti við okkur og áhyggjur morg- undagsins víðs fjarri. Það var því sárara en tárum taki að horfa á eftir kærri vinkonu festast í viðjum sjúkdóms sem gaf engan grið. Saga Unnar var ekki röð afreksverka, held- ur saga viðkvæmrar stúlku sem þráði ekkert heitar en ró og öryggi. Ljós og arfleifð Unnar í lífinu eru börn hennar sem hún var óendanlega stolt af. Meðan einn bognar brotnar annar við blakka rót. Þau brotna þvert þroskamestu blómin og falla þyngst til jarðar. Þau sem eftir standa geyma stolta fegurð þess fallna. (Guðrún Guðlaugsdóttir.) Hvíl í friði, elsku vinkona. Lilja B. Jónsdóttir. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr.) Elsku vinkona. Það var yndislegt að fá að kynnast þér og þínu fallega brosi, þín verður sárt saknað. Hvíl í friði, Unnur mín, Guð geymi þig varðveiti. Elsku Sandra, Matthías og Alexander, ég sendi ykkur mín- ar dýpstu samúðarkveðjur. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn og verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson.) Þín vinkona, Aldís Höskuldsdóttir. Unnur Munda Friðriksdóttir ✝ Helgi Jónssonfæddist 12.3. 1930 á Reykjanesi á Ströndum. Hann lést á líknardeild Landspítalans 25. febrúar 2013. Foreldrar Helga voru Jón Jónsson, f. 28.11. 1891, d. 1.6. 1954, og Rósalía Jónína Guðjónsdóttir f. 20.4. 1890, d. 14.11. 1968. Helgi átti tvö systkini, Guðmund Trausta Jónsson, f. 7.4. 1923, d. 24.10. 1990, og Guðfinnu Jóns- dóttur, f. 2.4. 1926, d. 30.8. 2010. Helgi tók við búi föður síns þegar hann lést. Hann flutti ásamt systkinum sínum til Reykjavíkur 1958, daginn eftir hóf hann störf hjá föðurbróður sínum, Þorsteini Jafeti Jónssyni og vann fyrir hann til árs- ins 1972. Þá hóf hann störf hjá Gluggasmiðjunni og vann þar til ársins 1999. Helgi bjó með systkinum sín- um, honum varð ekki barna auðið. Útför Helga fer fram frá Digraneskirkju í dag, 8. mars 2013, og hefst útförin kl. 13. Ég kveð þig, Helgi minn, með miklum trega og söknuði og er enn ekki farin að gera mér grein fyrir því að sjá þig ekki aftur. Þú kvaddir þennan heim frið- samlega eins og allt þitt líf ein- kenndist af friði og kærleik, yf- irvegun, heiðarleika. Ég á bara ekki til orð til að lýsa því hvaða mann þú hafðir að geyma svo einstakur varst þú. Þér var farið að hraka heilsufarslega síðustu misseri en maður gerði sér kannski ekki fulla grein fyrir hversu mikið því þú kvartaðir aldrei, aldrei. Það var svo gam- an að sækja þig og fá þig í mat, þú varst svo þakklátur fyrir allt sem gert var fyrir þig og alltaf sagðir þú: „Þú hefur allt of mik- ið fyrir mér“ en sjálfur varst þú að stjana við ættingja þína og man ég það þegar ég var ung- lingur og þú varst svo oft heima hjá ömmu og afa á Guðrúnar- götu, ef það var veisla þá varst þú að mynda og ef þurfti að keyra einhvern þá varst þú tilbúinn og þar fram eftir göt- unum. Þú kunnir svo margar sögur gamlar frá Reykjanesi á Strönd- um og þú sagðir svo skemmti- lega frá. Þú vannst lengst af hjá Gluggasmiðjunni og sagðir mér margar góðar sögur þaðan og hvað þér þótti vænt um fólkið og þá sérstaklega Gissur heitinn sem var greinilega einstakur maður eins og þú. Það var svo gaman að tala við þig, alltaf hafðir þú að mínu mati rétta skoðun á hlutunum, heilbrigða og heiðarlega. Uppáhaldsmatur- inn þinn var steiktur fiskur og var þetta orðið þannig að ég hafði alltaf steiktan fisk, en hugsaði: María, þú verður að fara að hafa eitthvað annað, nei Helgi vill fiskinn og þar við sat. Þér var margt til lista lagt, þú varst þúsundþjalasmiður. Helgi minn, ég veit að þú ert kominn á besta staðinn, ef um marga er að velja þá ert þú á þeim besta. Ég þakka þér, Helgi minn, fyrir að hafa verið til og þú kenndir okkur mannfólkinu sem varð á vegi þínum svo margt og stund- um án þess að segja orð. Halli sonur minn mun sakna þín líka, mikið gátuð þið rætt lengi um Liverpool og þú sagðir: „Ég get sagt ykkur það að ég hef alltaf haldið upp á Liverpool en ef þið mynduð spyrja mig hvers vegna, þá hef ég ekki hug- mynd af hverju.“ Hvíl í friði, elsku besti Helgi. Þín frænka, María Haraldsdóttir. Helgi Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.