Morgunblaðið - 08.03.2013, Síða 40

Morgunblaðið - 08.03.2013, Síða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Lúðrasveit verkalýðsins var stofnuð 8. mars árið 1953 og er því sextug í dag. Stofnfélagar sveitarinnar voru 13 talsins og hef- ur hún allt frá stofnun leikið í kröfugöngum á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí, en fyrstu tónleika sína hélt hún í Austurbæj- arbíói árið 1970. Nú starfa í sveit- inni um 60 hljóðfæraleikarar þegar mest er og eru þeir á öllum aldri, frá 16 ára upp í sextugt. „Börnin sem eru að koma inn núna seinni árin eru orðin gríðarlega vel þjálfuð, búin að fara í gegnum skólalúðrasveitirnar og eru virkilega tilbúin í slaginn,“ segir stjórnandi lúðrasveitarinnar, Kári Húnfjörð Einarsson sem er jafnframt aðstoðarskólastjóri Tón- listarskóla Seltjarnarness. Spurður að því hvort það sé ekki lærdómsríkt fyrir unga tónlistarmenn að vera í lúðrasveit, segir Kári vissulega svo vera. „Það er ekki bara að spila á lúðurinn heldur líka að læra aga og taka tillit og hlusta á alls konar tón- list,“ segir hann. Tónleikaferð til Toronto Það stendur mikið til hjá lúðra- sveitinni á afmælisárinu. Hún mun m.a. fagna sextugsafmælinu nú á sunnudaginn með tónleikum í Ráð- húsi Reykjavíkur sem hefjast kl. 14. Á þeim verður flutt efnisskrá helguð dansi og er aðgangur að tónleik- unum ókeypis. Kári segir afmælis- fögnuðinn í raun hafa byrjað fyrir áramót með myndarlegum jóla- tónleikum en slíka tónleika hafi sveitin ekki haldið um árabil. Þá hafi tekið við mikill undirbúningur og æfingar fyrir tónleikana á sunnu- daginn. „Orðið „dans“ kemur fyrir í titlunum á öllu sem við spilum,“ seg- ir Kári og nefnir sem dæmi „La danza“ eftir Rossini, „Sverðdans- inn“ eftir Khachaturian og „Dancing in the Moonlight“ eftir hljómsveit- ina King Harvest og slavneska dansa. „Það er bara öll danssagan, nánast, ferlega gaman og búið að vera mjög skemmtilegt verkefni,“ segir Kári. „Síðan er að koma út heljarmikið blað, afmælisrit, 40 síður og þar eru ávörp frá hinum og þessum og sögur og skemmtilegheit, myndir o.fl. Síð- an er verið að fara til útlanda núna um páskana, við förum til Toronto í Kanada og spilum þar á strætótorg- um og meira að segja uppi í Niag- ara, förum upp á það svæði og tök- um lagið,“ segir Kári um aðra viðburði afmælisársins. Þá leiki lúðrasveitin á Barnamenningarhátíð í Eldborg í Hörpu undir lok apríl og á Menningarnótt muni hún fara í sérstaka sögugöngu í tilefni af af- mælinu. Í henni verði saga hljóm- sveitarinnar rakin, m.a. sýnt hvar hún æfði fyrst en í upphafi var hún ekki með fast æfingahúsnæði. „Þarna ætlum við að ganga á milli og einn gamall félagi mun skrásetja söguna vel og vandlega. Svo ætlum við að taka lagið, við marserum kannski ekki um alla borgina (hlær) en tökum lagið hér og þar. Og „Nall- inn“ verður náttúrlega, væntanlega talið í hann einu sinni eða tvisvar,“ segir Kári um sögugönguna. Getur orðið andstuttur Blaðamaður lætur eina kjánalega spurningu vaða og spyr hvort ekki sé erfitt að ganga og leika tónlist samtímis. „Jú, maður getur orðið svolítið andstuttur stundum,“ segir Kári kíminn. Menn verði auðvitað að ganga í takt við lagið og öndunin þurfi að vera í góðu lagi. „Svo þarf að beygja og ef það eru einhverjar hindranir á veginum getur það flækt svolítið málið. Við æfum okkur í því sérstaklega.“ Sextug Lúðrasveit verkalýðsins fyrir utan Fella- og Hólakirkja í nóvember í fyrra. Hún hélt tónleika í kirkjunni. Danssagan tekin fyrir á afmælis- tónleikum  Lúðrasveit verkalýðsins sextug í dag  Heldur tónleika á sunnudaginn Kári Húnfjörð Einarsson Ljósmynd/Andreas Stenlund Velska poppsöngkonan Bonnie Tyler mun keppa fyrir hönd Breta í Evróvisjón-söngvakeppn- inni. Greint var frá þessu á vef breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær. Tyler er 61 árs og átti góðu gengi að fagna á níunda áratugn- um. Þekktasta lag hennar er að öllum líkindum „Total Eclipse of the Heart“ frá árinu 1983. Haft er eftir Tyler að hún muni leggja sig alla fram í keppninni fyrir landa sína. Lagið sem Tyler flytur heitir „Believe in Me“ eða „Trúðu á mig“ og mun hún flytja það 18. maí nk. í Malmö. Vonandi gengur henni betur en síðasta keppanda Breta, Engelbert Humperdinck, sem lenti í 25. sæti í fyrra, því næstneðsta, með lagið „Love Will Set You Free“. Humperdinck hlaut einungis 12 stig í keppninni. Enn að Bonnie Tyler, réttu nafni Gayn- or Hopkins, á tónleikum árið 2005. Tyler syngur fyrir Breta í Evróvisjón m.a. Besta leikkona í aukahlutverki FRÁÞEIMSEMFÆRÐUOKKUR ALICE INWONDERLANDOG LEIKSTJÓRA SPIDERMANÞRÍLEIKSINS. MÖGNUÐ ÆVINTÝRA- MYND Í STÓR- KOSTLEGRI ÞRÍVÍDD 3 -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is IDENTITY THIEF Sýnd kl. 8 - 10:20 OZ THE GREAT AND POWERFUL Sýnd kl. 5 - 8 21 AND OVER Sýnd kl. 10:40 FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D Sýnd kl. 4 - 6 FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU Sýnd kl. 4 VESALINGARNIR Sýnd kl. 6 - 9 Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 12 12 FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! L L 10 14 Stórskemmtileg teiknimynd fyrir alla fjölskylduna! HHHH - K.N. Empire ÓSKARSVERÐLAUN M.A. BESTI LEIKARI ÁRSINS DANIEL DAY-LEWIS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS -EMPIRE IDENTITY THIEF KL. 5.40 - 8 - 10 12 21 AND OVER KL. 10.10 14 THIS IS 40 KL. 5.40 12 / JAGTEN KL. 8 16 IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 IDENTITY THIEF LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 21 AND OVER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D KL. 3.40 - 5.50 L FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 3.40 L THIS IS 40 KL. 6 12 DIE HARD 5 KL. 8 - 10.20 16 DJANGO KL. 9 16 HÁKARLABEITA 2 KL. 3.40 L - H.S.S., MBL Yippie-Ki-Yay! IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 THIS IS 40 KL. 8 - 10.40 12 LINCOLN KL. 6 - 9 14 LIFE OF PI 3D KL. 5.20 10

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.