Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Qupperneq 9
Íslensk kona búsett í Ástralíu, Olga Sturludóttir,gladdi bresk hjón líklega meira en orð fá lýst á dög-unum þegar hún kom til skila minniskorti með öll-
um ljósmyndum sem teknar voru í brúðkaupi hjónanna
fyrir tæpu ári. Sá sem tók myndirnar, vinur hjónanna,
skrapp til Ástralíu og týndi kortinu en á því voru vistuð
einu eintökin af umræddum myndum! Olga fann það í
almenningsgarði í borginni Daylesford og hafði uppi á
eigendunum hinum megin á hnettinum, norður á Bret-
landseyjum, eftir rannsóknarvinnu á netinu.
Netið kom í góðar þarfir
„Það var í byrjun febrúar sem ég fann minniskort í
garði í bænum Daylesford. Ég tók kortið með mér
heim, ákvað að kíkja á myndirnar og hugsaði með mér
að sniðugt væri að birta einhverjar þeirra á Facebook
og einhver gæti þekkt fólkið,“ segir Olga við Sunnu-
dagsblað Morgunblaðsins.
Enginn hafði samband við Olgu þrátt fyrir að mynd-
irnar birtust á netinu. „Af myndunum að dæma leit út
fyrir að fólkið væri frá Evrópu og hefði verið túristar í
Ástralíu. Það var nefnilega hellingur af túristamyndum
frá Sydney og Melbourne og svo var mikið af myndum
frá brúðkaupi. Af landslaginu sem sást á myndunum
eftir brúðkaupið fannst mér líklegt að myndirnar væru
teknar á Bretlandi. Þetta voru alls 580 myndir.“
Olgu fannst leiðinlegt að geta ekki komið kortinu til
skila og ákvað því að fara í gegnum myndirnar aftur og
reyna að finna einhverjar vísbendingar um það hvaðan
fólkið væri. „Á einni mynd gat ég séð skilti sem á stóð
Barceló og svo Hall Hotel,“ segir Olga, sem sló inn
þessi orð á Google-leitarvélina og Wedding venue að
auki. Redworth Hall-hótelið nálægt borginni Darlington
á Englandi kom upp við þessa leit „og myndirnar af
heimasíðu þess pössuðu við myndirnar frá brúðkaupinu.
Ég hafði samband við hótelið og sendi þangað myndir
frá brúðkaupinu í von um að starfsfólkið myndi eftir
brúðhjónunum“.
Starfslið hótelsins mundi blessunarlega eftir fólkinu
og sendi brúðhjónunum, Annice og Glen Grundy, net-
fang Olgu. Þau höfðu samband við vinafólk sitt, Ayesha
og Carl Horsman, sem voru gestir í brúðkaupinu, minn-
iskortið var Carls og hann hafði tekið myndirnar. „Þau
höfðu síðan samband við mig og gáfu mér heimilisfangið
sitt á Bretlandi svo ég gæti sent þeim minniskortið,“
segir Olga. „Ayesha og Carl höfðu verið í heimsókn í
Ástralíu í janúar og febrúar, Carl hafði notað mynd-
bandsupptökuvél í Daylesford og skipt um minniskort.
Hann setti minniskortið í töskuna sína en það hlýtur að
hafa dottið úr töskunni í garðinum.“
Brúðhjónin voru vitaskuld himinsæl að fá loks mynd-
irnar. „Það er alveg ótrúlegt að þessi vingjarnlega kona
skuli hafa lagt á sig alla þessa spæjaravinnu til þess að
finna okkur,“ segir Annice í samtali við breska blaðið
Daily Mail.
Ekki fylgir sögunni hvers vegna ljósmyndarinn var
ekki búinn að hlaða myndunum inn í tölvu áður en hann
fór til Ástralíu, tíu mánuðum eftir brúðkaupið …
LJÓSMYNDIR ÚR BRÚÐKAUPI FÓRU KRÓKALEIÐ TIL HINNA NÝGIFTU
Ein myndanna sem brúðhjónin óttuðust að sjá aldrei. Annice og Glen Grundy á stóra deginum 2012, fyrir utan Red-
worth Hall Hotel nálægt Darlington á Englandi. Skiltið aftan við þau kom Olgu á sporið í leit að eigendum myndanna.
Myndarleg hjón á
týndu minniskorti
OLGA STURLUDÓTTIR FANN MINNISKORT ÚR MYNDAVÉL Í ALMENNINGSGARÐI Í
ÁSTRALÍU Á DÖGUNUM. Á ÞVÍ VORU MYNDIR ÚR BRÚÐKAUPI Á ENGLANDI
TÆPU ÁRI ÁÐUR, EN BRÚÐHJÓNIN HÖFÐU ALDREI SÉÐ ÞÆR. ÞAU KÆTTUST ÞEGAR
OLGA HAFÐI SAMBAND OG MÁLIÐ RATAÐI Í FJÖLMIÐLA Í BRETLANDI.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Olga Sturludóttir sem fann minniskortið, býr ásamt fjöl-
skyldu sinni í bænum Ballarat í Ástralíu.
10.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
ER ÞÖRF Á
MARGSKIPTUM
GLERAUGUM?
MARGSKIPT
GLER
-25%
PIPA
R\TBW
A
-SÍA
-130787
Þú getur sótt um sumarstarf
hjá Kópavogsbæ til 8. apríl nk.
Viltu gera
eitthvað
uppbyggilegt
í sumar?
kopavogur.is
Til að sækja um sumarstarf þarftu að fara inn á vef
Kópavogsbæjar, kopavogur.is, og þar finnur þú líka
allar nánari upplýsingar um störfin sem eru í boði.
· Skilyrði fyrir ráðningu er að eiga lögheimili í Kópavogi.
· Ekki verður tekið við umsóknum eftir 8. apríl.