Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Side 13
10.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
kynferðislegri misnotkun presta á
skjólstæðingum sínum. Mörg nöfn á
listanum hafa verið orðuð við páfa-
stól. Á undanförnum áratug hefur
hvert barnaníðingsmálið rekið annað
víða um heim og yfirleitt hafði
kirkjan brugðist við með því að
þagga málin niður og færa gerend-
urna til. Enn á kirkjan í vandræð-
um með að taka á þessum málum
þótt þeim sé ekki lengur sópað und-
ir teppið.
Páfagarður vísaði kröfu samtak-
anna alfarið á bug og sagði að það
væri „ekki á valdi SNAP að ákvæða
hverjir tækju þátt í kjörfundinum
og hverjir gerðu það ekki“.
1,2 milljarðar manna tilheyra kat-
ólsku kirkjunni. Í Evrópu á hún í
vanda. Hún höfðar ekki til fólks í
sama mæli og áður og það vantar
presta. Það sama á við í rómönsku
Ameríku. Skortur er á prestum og
kirkjur standa tómar. Evangelískir
poppprestar draga fólkið til sín og
katólska kirkjan á ekki svar. Mestur
er vöxturinn í Asíu og Afríku. Í
Kongó er katólska kirkjan eina
þjóðarstofnunin sem virkar. Upp-
byggingarstarf trúboða í Afríku hef-
ur skilað sér í skólum, sjúkrahúsum,
munaðarleysingjahælum og heilsu-
gæslustöðvum fyrir alnæmis-
sjúklinga, sem líkt hefur verið við
eyjar vonar í álfu fátæktar.
Rekistefna kardinálanna
Árið 2005 tók það kardinálana þrjá
daga að ákveða hvenær kjörfundur-
inn skyldi hefjast og er litið svo á
að töfin nú endurspegli hin ýmsu
vandamál, sem blasa við kirkjunni.
Þótt enn hafi ekki verið ákveðið
hvenær kardinálarnir hefja fundinn
til að kjósa páfa er undirbúningur
hafinn í sixtínsku kapellunni þar
sem hann fer fram undir freskum
Michelangelos. Þar unnu smiðir að
því í vikunni að leggja nýtt gólf og
koma fyrir tveimur svörtum ofnum,
sem eru tengdir við reykháf kapell-
unnar og verða notaðir til að senda
reykmerki um val páfa. Þegar fund-
urinn hefst verða atkvæði kardinál-
anna brennd í þeim daglega. Svart-
ur reykur merkir að greidd hafi
verið atkvæði, en hvítur reykur að
nýr páfi hafi verið valinn. Páfagarð-
ur segir æskilegt að nýr páfi verði
sestur í embætti fyrir páska, sem í
ár eru 31. mars.
Kardinálarnir, sem taka þátt í
kjörinu, eru 115. Miklar vangaveltur
eru um hver verði næsti páfi. Meðal
kardinálanna takast á ólík sjónar-
mið, umbótasinnar og íhaldsmenn,
Evrópa gegn heiminum, kardinál-
arnir 30 í páfaráði andspænis kard-
inálum annars staðar frá, íhalds-
samir fulltrúar frá Afríku gegn
umbótasinnuðum kardinálum frá
rómönsku Ameríku.
Inn í 21. öldina?
Á sjöunda áratugnum voru gerðar
umbætur í katólsku kirkjunni undir
forustu Jóhannesar XXII. sem sagt
var að hefðu fært hana inn í 20. öld-
ina. Nú er krafa um að nýr páfi
þurfi að færa hana inn í 21. öldina.
„Ég get sagt ykkur að listinn yfir
þá, sem koma til greina sem páfar,
hefur frekar lengst en styst,“ sagði
Francis George, kardináli frá Chi-
cago, í samtali við dagblaðið La
Stampa á miðvikudag. „Nöfnin, sem
hampað hefur verið í blöðunum,
koma til greina, en við höfum einnig
talað um einstaklinga, sem ekki
hafa verið nefndir til þessa.“
Iðnaðarmenn setja upp
ofna í sixtínsku kapellunni
fyrir atkvæðagreiðsluna
um nýjan páfa.
AFP
Fáanlegur í
mörgum litum
Verð leður 439.000,-
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Hægindastóll
Edwald Schillig Movie star