Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2013 H ún tekur á móti börnunum úr skól- anum, Eiríki Erni, sex ára, Þórhildi Rósu, níu ára og Margréti Sól, 11 ára sem hún á með sambýlismanni sínum Sveini Arnarsyni. Hún er klædd í bláa gollu og dökkar buxur, annað auga brúnt en örlítill blámi í hinu. „Ég hafði alltaf verið mjög heilbrigð og aldrei kennt mér alvarlegs meins fyrr og hef lítið þurft að fara á spítala nema til að eignast börnin mín þrjú. En í kringum áramótin 2011/2012 fann ég þegar ég þreifaði á brjóstinu að eitthvað var ekki eins á það ætti að vera. Ég pantaði tíma í skoðun og sú sem þreifaði á mér á leitarstöðinni vissi samstundis að eitthvað var að. Í framhaldi tók við mánuður mik- illa rannsókna, mynda- og sýnatök- ur, áður en formleg meðferð gat hafist. Fyrsti mánuðurinn var mér hvað erfiðastur andlega en eftir það byrjaði ferli á leið til bata eins og ég upplifði þetta. Ég fór ekki í skurðaðgerð fyrst heldur var byrj- að á lyfjameðferð og svo fór ég í skurðaðgerð síðasta haust. Ég klár- aði síðan geislameðferð í desem- ber,“ segir Ragnhildur Þórarins- dóttir. Samtals stóð meðferðin yfir í um níu mánuði. „Jafnvel þótt ég haldi að ég hafi komist vel í gegnum meðferðina þá tekur þetta náttúr- lega einhvern toll af öllum sem reyna. Það sem ég held að hafi hjálpað mér mikið er að ég náði að stunda einhverja hreyfingu nánast allan tímann. Í sumar synti ég sem aldrei fyrr og náði meira að segja tökum á skriðsundi sem ég hélt að ætti ekki fyrir mér að liggja. Þetta er spurning um að finna þá hreyf- ingu sem hentar því að þegar ég var t.d. í geislunum mátti ég ekki synda í nokkrar vikur og þá færði ég mig yfir í það að ganga og svo núna er ég komin inn á líkams- ræktarstöð til að byggja mig upp. Mörgum hentar að fara í yoga og á þennan hátt ættu allir að reyna að finna út hvernig og með hvaða hætti þeim er mögulegt að hreyfa sig meðan á meðferð stendur. Ég hef þá trú að regluleg hreyfing skipti grundvallarmáli líka þegar veikindi koma upp og þá ekki síður fyrir andlega þáttinn. Það er nefni- lega vel mögulegt að vera heil- brigður þó maður sé með sjúkdóm. Að minnsta kosti að lifa sem heil- brigðustu lífi miðað við aðstæður, ég held að það sé ágætt viðmið.“ Ljósið í myrkrinu Ragnhildur fann mikinn stuðning í endurhæfingarstöðinni Ljósinu. „Ég byrjaði í Ljósinu áður en ég byrjaði í nokkru öðru. Ég heyrði af því í gegnum æskuvinkonu mína, sem kom hingað daginn eftir að ég greindist. Mér leið bara fyrstu vik- urnar eins og í frjálsu falli og ég reyndi hreinlega að grípa í allt sem gat til að stöðva fallið og gæti hjálpað mér í gegnum þetta tíma- bil. Vinkona mín sem sagt hvetur mig til að fara í Ljósið en mér fannst ég alls ekki tilbúin að fara þangað í byrjun; sá fyrir mér að fara að hitta fullt af krabbameins- sjúklingum. Ég fór þó að ráðum hennar og kíkti á heimasíðu Ljóss- ins og áður en ég veit af er ég komin á námskeið fyrir nýgreinda. Þar var farið í gegnum áfallið að greinast og að lifa með því. Það var iðjuþjálfi sem var með námskeiðið og þar fann ég strax mikla von og hvatningu og sérstaklega í því að horfa fram á veginn en ekki ein- blína á ógnina.“ Þessi ógn sem þú talar um, fannst þér hún alltaf yfirvofandi? „Fyrstu vikurnar fannst mér hún alveg skelfileg en eftir að hafa farið á þetta námskeið fyrir nýgreinda hjá Ljósinu tókst mér að vinna mjög vel úr henni og færa upplif- unina yfir í einhvers konar þroska. Mér tókst að upplifa að þetta væri tímabil sem ég þyrfti að fara í gegnum en alls ekki endalokin. Starfsemin í Ljósinu hjálpaði mér mjög mikið. Sá andi sem ríkir þar, að þetta þurfi ekki að vera það versta sem manneskja getur lent í, hjálpaði mér mikið. Vissulega eru þó margar tegundir krabbameins og veikindi fólks misalvarleg en hjá mörgum krabbameinsgreindum er full ástæða til bjartsýni og svo er það líka spurningin um að að lifa sem bestu lífi miðað við aðstæður hverju sinni. Ég man að í upphafi fyrsta námskeiðsins gat ég ekki sagt þetta orð „krabbamein“ og hvað þá tengt það við mína per- sónu án þess að brotna saman. Þá fengu börnin mín líka mikinn stuðning í Ljósinu og fóru þau á sérstakt námskeið ætlað börnum sem hjálpaði þeim mikið. Allt í einu voru þau ekki einu börnin á svæð- inu sem áttu sköllótta mömmu og allt í einu mátti tala um krabba- meinið án þess að allir færu í pan- ík. Ég verð reyndar að taka það fram að kennarar barnanna minna hafa sýnt sérstakan stuðning við börnin og látið sér annt um hag þeirra á þessu tímabili. Ég má til með að taka það fram að það er þakkarvert að hafa stað eins og Ljósið þar sem maður getur komið við án þess að eiga sérstakt erindi og fengið félagslegan og andlegan stuðning fyrir svo utan ýmis nám- skeið og klúbba sem þar er hægt að ganga í.“ Dýpkuð gildi og hugarfarsbreytingar En hver er staðan hjá þér núna? Nú er ég búin í meðferðinni og ég er að byggja mig upp. Maður lætur aðeins á sjá eftir þetta og orkan og þrekið fer langt niður. Ég er í Hreyfingu, sem er með sérstaka tíma í samvinnu við Ljósið fyrir krabbameinsgreinda sem mér finnst frábært framtak því ég er ekki viss um að ég þyldi pallapuð eða spinning með tilheyrandi lát- um,“ segir Ragnhildur sem greini- lega er mjög þakklát fyrir starf- semi Ljóssins. „Það er alveg tekið á því í tímunum en svona allt að- eins mildara en í almennum tímum og svo er félagsskapurinn líka góð- ur. Fyrir mig er mikilvægt að hreyfa mig á hverjum degi eins og áður segir og þá ekki síst núna þegar ég þarf að byggja mig upp og ná fyrra þreki eftir meðferðina. Það sem hefur verið svo mikill lærdómur í þessu ferli öllu er að laga sig að aðstæðum hverju sinni. Þegar maður er frískur kemst maður upp með að ana áfram og oft er fólk bara algjörlega á sjálf- stýringunni. Það er eins og sumt fólk þurfi hreinlega að láta kýla sig niður í stólinn svo það staldri við og fari að hugsa hlutina upp á nýtt. Þannig var það alla vega í mínu til- felli. „Það verða hugarfarsbreyt- Í frjálsu falli krabba- meinsins HÚN VILDI EKKI DEYJA OG Í STÓRA SAMHENGINU VAR HENNI SAMA UM AÐ BRJÓSTIÐ YRÐI TEKIÐ, BARA AÐ HÚN KÆMIST Í GEGNUM ÞETTA OG NÆÐI HEILSU AFTUR OG YRÐI HEILBRIGÐ. RAGNHILDUR ÞÓRARINSDÓTTIR TALAR UM ÞROSKANN SEM HÚN TÓK ÚT VIÐ ÞAÐ AÐ GLÍMA VIÐ ERFIÐ VEIKINDI Á SÍÐASTA ÁRI OG HUGARFARSBREYTINGARNAR SEM HÚN UPPLIFÐI. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir uhj@simnet.is * „Ég man að í upphafi fyrsta nám-skeiðsins þá gat ég ekki sagt þetta orð„krabbamein“ og hvað þá tengt það við mína persónu án þess að brotna saman.“ Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.