Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Qupperneq 18
É g og vinkona mín, Sigrún Hlín Sigurðardóttir myndlistarkona, ákváðum að við þyrftum annaðhvort að upplifa Vesalingana í Þjóð- leikhúsinu eða upplifa Vesalingana í París. Ég reyndar segi alltaf Les Miserables vegna þess að það hljómar allt betur á frönsku,“ segir Saga Garðarsdóttir leikkona en hún skellti sér til Frakklands að upplifa Vesalingana á frönsku sviði. „Ég kunni Les og ég kunni Miserables í frönsku áður en ég fór. Sem er nóg finnst mér,“ segir hún sposk á svip. „Þarna var ég að drekka í mig menn- inguna og reisa varnargarða og skoða þekkt minnismerki.“ Hún segir að þær vinkonur hafi dvalið mest í París enda sé það heimavöllur uppáhaldsatriða þeirra úr Vesalingunum. „Ég sá bara fram á að öll ferðalög út fyrir borgina gætu valdið mér hryllilegum vonbrigðum eða umhverfið verið of framandi. Þar væru jafnvel sungin lög sem ég þekkti ekki og fólk sem væri hamingjusamt.“ Almennilegur elegans Saga segir að Versalir hafi verið sá staður sem hafi verið eftirminnilegastur. „Það var allt svaka fínt og fallegt. Ég reyndar treysti mér ekki inn í sjálfa höll- ina því leiðsögumaðurinn okkar sagði að í gamla daga hefðu Frakkar kúkað bakvið gluggatjöldin svo mér datt í hug að það gæti verið komin mjög vond lykt. En Versalagarðurinn var ótrúlega fallegur og ég hvet alla til að fara á árabát út á vatnið í eins litlum fötum og hver og einn þorir. Ef enginn er í neinu að ofan þá tekur það bara eina og hálfa mín- útu að gera sex konur reiðar og einn pulsusala glað- an. Þetta er vísindalega rannsakað.“ Hún segir að Frakkar hafi komið sér þægilega á óvart. „Mér finnst mjög góð hugmynd hjá Frökkum að æfa sig ekki í að vera kurteisir heldur frekar í að baka ótrúlegustu hluti úr smjördeigi og hvítu hveiti og búa til osta og almennan elegans. Svo finnst mér líka fallegt af þeim að vera svona vel til fara og myndarlegir.“ Þrátt fyrir allt hafi hún ekki gengið í frakka. „Nei, það fer mér held ég ekki auk þess sem það væri virkilega hroðalegt og mann- vonskulegt. Þó það væri kannski í anda blóðugrar byltingarinnar. Ég hefði mögu- lega íhugað að ganga í frakka ef hann hefði verið gerður úr óþokkanum Javert. Og ég hefði ekki farið mjög vel með þann frakka.“ Súkkulaði úr gullbrydd- uðum kristalsskálum Saga og Sigrún gerðu margt sér til skemmtunar meðan á ferðalaginu stóð. En þær stopp- uðu helst í búðum sem buðu upp á smakk – enda Frakkar þekktir fyrir sína matargerð. „Við stoppuðum í öllum sérvöruverslununum sem seldu súkkulaði og buðu upp á smakk úr gullbrydd- uðum kristalsskálum,“ segir Saga um leið og síminn hringir. Þorleifur Arnar Arnarsson leikstjóri er að hringja en hann leikstýrir Sögu í Englum alheims- ins. „Ég er núna að æfa Engla alheimsins uppi í Þjóðleikshúsi undir styrkri stjórn Þorleifs, sem býr yfir öllum þokka og mannkostum biskupsins af Digne úr Les Miserables. Þegar ég hitti hann fyrst var ég nýbúin að stela kit katti úr Tíu ellefu fyrir hungurmorða litla frænda minn og senuna á Eddunni, en eftir að hann hafði talað við mig þá hef ég alveg látið af þjófnaði og helgað líf mitt kristnum gildum og alið upp ann- arra manna söngelska dóttur sem ég keypti af óprúttnum hjónum sem ráku ónefnt gistiheimili hér í bæ. Svo er ég að sýna Fyrirheitna landið. Það er Vesalingar Englands svo ég hvet alla aðdáendur stórverka til að kíkja. Hilmir Snær gæti fengið al- þýðu Íslands til að fylgja honum fram í rauðan dauðann með hráum kynþokka sínum og snjallri raddbeitingu.“ LEIKKONAN SAGA GARÐARS Í FRAKKLANDI Saga í stuði fyrir framan Eifel-turninn. Hljómar allt betur á frönsku GRÍNISTINN SAGA GARÐARSDÓTTIR SKELLTI SÉR Í MENNINGARFERÐ TIL PARÍSAR Í FYRRASUMAR ÞAR SEM HÚN SÁ VESALINGANA Á SVIÐI OG SKOÐAÐI VERSALA- GARÐINN ÚR ÁRABÁT. SAGA KANN AÐ META FRANSKA MENNINGU, MYNDARLEGA FRANSKA KARLMENN OG TAKMARKAÐA KURTEISI FRAKKA. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2013 Ferðalög og flakk 60 g áferð að eigin vali Íslensk hönnun og framleiðsla nun frá 19 elja um lit o r. 24.300 E60- Klassísk hön Hægt að v Verð frá k
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.