Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 36
hleypir hljómi út. Hljómur í slíkum heyrnartólum er almennt náttúru- legri en þegar þau eru lokuð. Að því sögðu þá geta góð lokuð heyrnartól skákað opnum og vissulega er ekki alltaf hægt að koma því við að hlusta á háværa tónlist í opnum heyrnartólum – maður verður líka stundum að taka tillit til nærstaddra. Ýmsir heyrnartólaframleiðendur gera mikið úr bassanum, enda hlustendur sólgnir í bassa og mikill bassi getur blekkt kaupendur, sérstaklega ef hlustað er í stutta stund í búð. Bassinn segir þó ekki alla söguna, miðjan verður líka að vera greinileg og hátíðnin tær og skörp en ekki skerandi. Í prófun hljómaði 320 kbps rip af Veins Of God með Liturgy (Aesthetica) framúrskarandi vel, hlýr og þéttur bassi og gítarar tærir og flugbeittir. Ámóta rip af Mama You Sweet með Lucindu Williams (West) hljómaði líka framúrskarandi vel, mikil fylling í hljómn- um og dýpt í hljóðmyndinni, en bassinn reyndar aðeins ýktur. Á reggíkantinum flaut svo tenórrödd „Ashanti“ Roy Johnson ljúflega á þéttum hryngrunni Boris Gardiner og Lowell „Sly“ Dunbar í Congos-laginu Children Crying. Þegar þessi lög voru spiluð af diskum hljómuðu þau vitanlega enn betur, en ég geri ráð fyrir að þorri hlustenda sé að streyma úr tölvum, spilastokkum eða sím- um. Miklar sviptingar hafa verið í heyrnartólaframleiðslu síðustu ár,enda náði einn framleiðandi, Beats, yfirburðastöðu á markaði áundraskömmum tíma. Ýmsir hafa reynt að fara sömu leið og Beats, beita frumlegri markaðssetningu og líflegri og litríkri hönnun og fá þekkta tónlistarmenn í lið með sér. Málsvari Beats er Dr. Dre, en Sony-bændur leit- uðu til breska Magnetic Man- teymisins, Skream, Artwork og Benga, við hönnun á MDR-1R heyrnartólunum. Það kemur því ekki á óvart að bassinn sé þéttur, en ekki úr hófi, og einnig að hátíðn- in skili sér vel. Ekki kemur heldur á óvart að hljómurinn í heyrnartólunum er ekki hlutlaus, þetta eru ekki hljóð- versverkfæri heldur tæki til að njóta tónlistar og þá helst tónlistar sem keyrir á bassa sem kryddaður er með hátíðni. Þegar velja á góð heyrnartól mælir maður alla jafna með „opnum“ tól- um, en svo kallast heyrnartól sem leggjast þétt að eyrunum, en eru þó opin að því leyti að á bak við hvern hátalara er svampur eða rist sem FEITUR BASSI MEÐ HÁTÍÐNIKRYDDI ÞEGAR KLIÐURINN FRÁ SAMSTARFSMÖNNUNUM ER AÐ GERA ÚTAF VIÐ MANN ER GOTT AÐ HÆKKA Í GRÆJUNUM, EKKI SÍST EF HEYRNARTÓLIN ERU AF VIÐLÍKA KLASSA OG SONY MDR-1R. Græja vikunnar * Það er kostur við heyrn-artólin að hægt er að taka snúruna úr sambandi og hún not- ar stöðluð 3,5 mm tengi. Með fylgja tvær snúrur, önnur með styrkstilli, sem getur líka skipt um lög á iPod, iPhone eða iPad. Snúr- urnar eru sverar og rifflaðar til að draga úr flækjum, en fullstuttar, 1,2 m. Þar sem tengin eru stöðl- uð þá er ekkert mál að fá sér lengri snúru ef vill. * Hátalararnir eru 40 mmog uppgefið tíðnisvið 4 til 80.000 Hz, viðnám 24 ohm við 1 kHz. Snúrutengi eru með gullhúðuðum tengjum og poki fylgir fyrir heyrn- artólin. Tólin eru um 240 g. ÁRNI MATTHÍASSON * MDR-1R heyrnartólin fráSony eru lokuð eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og hljóma vægast sagt afskaplega vel. Hönn- unin á þeim er einkar vel heppn- uð, stál, plast og gervileður – létt og nett en þó þrælöflug. Þau kosta sitt, listaverð er 59.990 kr. 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2013 Græjur og tækni FARÐU Á KAFFIHÚS Rannsóknir hafa sýnt fram á að bak- grunnshljóð á kaffihúsi hafa góð áhrif á afköst. Það getur einnig verið mjög gott að breyta um umhverfi og vinna við aðrar aðstæður en á skrifstofunni. En stund- um er ekki hægt að fara út af skrifstofunni, þótt mikið liggi við. Þá er hægt að endurskapa þau hvetj- andi áhrif sem skvaldur á kaffihúsi hefur með því að heimsækja vefinn Coffivity þar sem hægt er að fá bak- grunnshljóð frá kaffihúsi beint í eyrun. Þá er vonda kaffið á skrif- stofunni eina vandamálið sem þú stendur frammi fyrir. www.coffitivity.com SKIPTU TÍMANUM Í TÓMATA Pomodoro-tæknin (pomodoro þýðir tómatur á ítölsku) er lík- lega algengasta tímastjórnunarkerfið sem notað er í dag. Grunnhugmynd kerfisins byggist á að iðkandi skiptir tímanum í einingar (tómata) sem eru 25 mínútur hver. Í hverjum tómat einbeitir iðkandi sér að einu verkefni í 25 mínútur, og lætur ekkert trufla sig frá því. Að því loknu tekur iðkandi fimm mín- útna pásu, og svo annan tómat, og þannig koll af kolli. Kostirnir við Pomodoro-kerfið eru margir, en þó ekki síst sá að 25 mín- útur eru hæfilega stutt tímaeining til að maður getur hugsað sér að láta annað bíða á meðan, en þó nægilega löng til að mað- ur kemur helling í verk á þeim tíma. Með því að iðka Pomo- doro-tæknina er hægt að stórbæta einbeitingu og margfalda af- köst. Það er hægt að fá fjölda símaforrita sem taka tímann og minna þig á pásur, og vafraviðbætur sem loka fyrir óæskilegar síður (tímaþjófa) í 25 mínútur til að styðja einbeitinguna. Þá virkar þessi tækni stórkostlega á börn. Yngri börn vinna oft betur með styttri tíma, t.d. 15 mínútur (kirsuberjatómata?), en það er ótrúlegt hve hægt er að taka mikið til í barnaherbergi á svo stuttum tíma, ef einbeitingin er fyrir hendi. www.pomodorotechnique.com ALDREI GLEYMA Það getur verið erfitt að halda utan um vinnuskjöl, hugmyndir, minnislista og annað sem fylgir því að vinna. Evernote er þjónusta sem hefur verið í boði um skeið og hefur notið mikilla vinsælda. Evernote getur vistað ná- lega allt, skjöl, skjáskot, myndir, minnispunkta, hljóðupptökur eða annað sem þér dettur í hug að geyma til seinni tíma, og býður upp á ótrúlega flokkunarmöguleika, sem tryggja að ef rétt er farið með þarftu aldrei að týna eða gleyma aftur mikilvægum minnispunktum, tilvitnun, eða grein eins og þessa sem gott getur verið að grípa til seinna. Evernote geymir allt í skýinu og er fáanlegt fyrir alla snjallsíma og tölvur. Það er fátt jafn gagn- legt á vinnustaðnum. www.evernote.com ÞAU OKKAR SEM VINNA LUNGANN ÚR DEGINUM VIÐ SKRIFBORÐ OG EYÐA LÖNGUM STUNDUM FYRIR FRAMAN TÖLVUNA ÞEKKJA VEL HVE AUÐVELT GETUR VERIÐ AÐ TAPA EINBEITINGUNNI OG GLATA ÞRÆÐINUM Í ÞVÍ SEM MAÐUR HEFUR FYRIR STAFNI. AÐ SAMA SKAPI ER AUÐVELT AÐ GLEYMA SÉR VIÐ SKEMMTILEGT VERKEFNI OG VANRÆKJA AÐ STANDA UPP, BLIKKA AUG- UNUM, DREKKA VATN EÐA JAFNVEL FARA Á KLÓSETTIÐ. EN ÞAÐ ER ÝMIS- LEGT SEM HÆGT ER AÐ GERA TIL AÐ TEMJA SÉR BETRI VINNUBRÖGÐ. HÉR ERU NOKKRAR LEIÐIR TIL AÐ LÁTA SÍMANN OG TÖLVUNA HJÁLPA SÉR. Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com 6leiðir til að koma meiru í verk og halda geðheilsunni HJÁLP Í VIÐLÖGUM Á SKRIFSTOFUNNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.