Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Síða 40
Pils eða
belti?
B
eðið var með eftirvæntingu eftir sýningu
Hedi Slimane fyrir Saint Laurent á tísku-
vikunni í París en þar sýna hönnuðir
tískuna fyrir komandi haust og vetur.
Óhætt er að segja að þessi stjörnuhönnuður hafi
valdið mörgum vonbrigðum en gestir fóru
orðlausir af sýningu hans í Grand Palais
og vissu vart hvað þeir ættu að hugsa
um þessa gruggrokktísku.
Þekktur ritstjóri velti fyrir sér
hvort hún hefði verið fórnarlamb
afar vel útfærðs hrekks. Aðrir
gripu til kaldhæðni. „Er þetta
Saint Laurent eða Topshop
sem ég er að horfa á?“ tísti
ritstjóri hjá LA Times, en
aðrir kölluðu línuna All Sa-
ints Laurent með vísun í
bresku tískukeðjuna.
Tískupressan var almennt séð
frekar neikvæð út í línuna og fannst
hún ekki við hæfi svona þekkts
Parísartískuhúss. Stjörnurnar sem
TÍSKUVIKAN Í PARÍS
Gruggrokk
Saint Laurent
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2013
Föt og fylgihlutir
E
lín Hrund Þorgeirsdóttir
sýnir nýja línu Dýrinda
sem samanstendur af tösk-
um, buddum og púðum í
tengslum við Hönnunarmars. Hún
er þekkt fyrir hekluð hálsmen sín
en sem stendur afgreiðir hún ein-
ungis sérpantanir af þeim. Nýju
vörurnar eru allar úr endurunnum
efnum, bæði ull og flaueli og eru
þær framleiddar hér á landi.
Elín Hrund vinnur eftir hug-
myndafræði „slow design“, bein
þýðing er hæg hönnun, sem felst í
því að bera virðingu fyrir náttúr-
unni og sækja efnivið og vinnu í
nánasta umhverfi eins og unnt er.
„Hver hlutur er gerður af alúð og
ást með það í huga að hann eigi eft-
ir að veita eiganda sínum gleði um
ókomna tíð,“ segir hún og útskýrir
nánar: „Í heimi fjöldaframleiðslu og
þrælkunar á börnum og fólki al-
mennt í verksmiðjum þá held ég að
það sé mikilvægt að huga að því
hvernig framleiðslunni er háttað og
að endurnýta það sem þegar er til
og gera það vel. Með því að vinna
vörurnar á staðnum, það er án þess
að flytja þær fram og tilbaka yfir
þveran og endilangan hnöttinn, er
mengun einnig haldið í lágmarki,“
segir Elín Hrund, sem er hlynnt
því að hönnuðir reyni eftir því sem
mögulegt er að nýta sér staðbundn-
ar auðlindir.
Að staldra við og njóta
„Einnig er mikilvægt að varan lifi
lengi og sé því gerð af alúð og ást
og vandvirkni. Framleiðslan á að
fara fram í sátt við umhverfið, nátt-
úruna, samfélagið og fólkið sem
tekur þátt. Ég held að okkur veiti
ekki af að hægja aðeins á hrað-
anum í samfélaginu, staldra aðeins
við og njóta.“
Nafnið á nýju línunni, Lafðin og
umrenningurinn, vísar til samruna
stétta, menningarheima og jafnvel
tíma og rúms með því að endurnýta
Fánapúðarnir eru skemmtileg nýjung.
„Vegna þess að þetta eru endurunnin efni þá verður hver týpa og litasamsetn-
ing af bæði púðunum og töskunum yfirleitt aðeins til í nokkrum eintökum og
verður einstakari fyrir vikið.“
Elín Hrund vill framleiða á Íslandi og þannig halda mengun í lágmarki.
LAFÐIN OG UMRENNINGURINN
Alúð, ást og
vandvirkni
HÖNNUÐURINN ELÍN HRUND ÞORGEIRSDÓTTIR SÝNIR
NÝJA LÍNU DÝRINDA Á HÖNNUNARMARS, TÖSKUR,
BUDDUR OG PÚÐA ÚR ENDURUNNUM EFNUM.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Ljósmyndir/Nína Björk Hlöðversdóttir
Hönnuðurinn Elín Hrund Þorgeirs-
dóttir vinnur með endurunnin efni.
Pelssláin er flott
við kjólinn. AFP
Léttir kjólar
við þykkari
jakka minna
sannarlega á tí-
unda áratuginn.