Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 49
Í upphafi þótti Heru Björk
skondið að verðlaungripurinn væri
mávur, „silfurmávurinn“ til að gæta
fyllstu nákvæmni. „Múkkann heim!
sögðum við í gríni en fljótlega sá
maður að gripurinn nýtur mikillar
virðingar í Viña del Mar enda er
mávurinn tákn borgarinnar og mjög
áberandi fyrir vikið. Eftir að úrslitin
lágu fyrir vildi fólk endilega fá
mynd af sér með mér og silfurmáv-
urinn varð auðvitað að vera á mynd-
inni líka. Gripurinn varð sífellt
veigameiri í mínum huga og ég fékk
eiginlega nýja sýn á þennan fugl,
mávinn. Svei mér ef hann er ekki
með íslenska skapgerð!“
Beðin um að útskýra það nánar
glottir Hera Björk: „Hann fer sínu
fram.“
Í Sólarsmugunni
Talið berst aftur að framhaldinu.
Hera Björk kveðst til í hvað sem er
en gerir þó síður ráð fyrir því að
flytja til Suður-Ameríku bjóðist
henni þar álitleg verkefni. Hún á
tvö börn, fimmtán og níu ára, og
segir lítið vit í því að flytja með
þau utan. „Ég yrði hvort eð er
svo lítið heima, þetta er svo mikil
útlegð. Ég yrði alltaf í Smug-
unni.“
„Sólarsmugunni,“ skýtur Golli
ljósmyndari inn í.
Hera Björk hlær og bætir við:
„Verði eitthvað úr þessu gæti ég
þurft að vera í einhverja mánuði
þarna syðra. Hvort börnin færu með
mér verður bara að koma í ljós. Ann-
ars eru þau löngu orðin vön því að
mamma þeirra sé á flakki og vita að
hún kemur alltaf aftur.“
Hún sér ekki fyrir sér neitt glam-
úrlíf, þvert á móti séu stöðug ferða-
lög slítandi. „En maður leggur þetta
á sig af því maður fær að syngja.“
„Because You Can“ er þegar
komið út með spænskum texta í Síle
og Hera Björk upplýsir að unnið sé
að því að gefa út tvö lög til viðbótar
á næstunni. „Lögin eru til, við erum
bara að vinna í textunum. Ég syng
alveg á spænsku, þótt ég tali hana
ekki.“
Valdi sönginn
– eins og asni
Það sem Heru Björk þótti há sér
mest í Síle var að geta ekki svarað
aðdáendum sínum sem kölluðu mikið
á hana. „Nú þarf ég að fara að gera
alvöru úr því að læra spænskuna.
Minnstu munaði raunar á sínum
tíma að ég færi sem skiptinemi í eitt
ár til spænskumælandi lands en
þurfti að velja á milli þess og söngs-
ins. Og valdi sönginn – eins og asni.“
Hún skellihlær.
Heru Björk var afar vel tekið í
Síle og hún skynjar ekki annað en
að fólk kunni að meta hana þar um
slóðir, bæði sem söngkonu og flytj-
anda. „Fólki fannst æðislegt að ég
væri íslensk og að ég væri tveggja
barna móðir. Sumir líktu mér við
Adele, sem er ekki leiðinlegt fyrir
mig. Kannski aðeins verra fyrir
hana, þar sem hún er tuttugu árum
yngri,“ segir Hera Björk og hlær.
„Svo var ég líka mikið spurð um
Björk, til að mynda hvort við nöfn-
urnar værum frænkur. Þessar
ágætu konur, Björk og Adele, voru
búnar að vinna góða grunnvinnu
fyrir mig þarna.“
Hún glottir.
Loftið og vatnið
Hera Björk var ekki fyrr búin að
vinna keppnina í Síle en upplýst var
að 187 tónleikar með íslensku tónlist-
arfólki færu fram erlendis í þessum
mánuði. Hér og þar. „Þetta eru frá-
bær tíðindi,“ segir hún og þegar
spurt er hverju þetta sæti svarar
Hera Björk: „Er þetta ekki bara
loftið og vatnið? Við Íslendingar er-
um aldir upp við að framkvæma allt
sem við viljum gera. Auðvitað hefur
þetta komið okkur í koll en þegar
kemur að menningu og listum vinnur
þetta hugarfar klárlega með okkur.“
Hún var ekki bara spurð út í
Björk í Síle, heldur líka Sigur Rós
og Of Monsters & Men. „Þó þetta
séu gjörólíkir listamenn erum við öll
eins í þeirra huga. Ætli það sé ekki
þetta afslappaða öryggi sem við bú-
um yfir. Það er eitthvað í karakt-
ernum sem fær okkur til að vilja
skara fram úr.“
Hún ber einnig lof á Iceland
Airwaves í þessu sambandi, sú hátíð
hafi vakið mikla athygli á íslenskri
tónlist erlendis. „Það hjálpar líka að
markaðurinn hér heima er lítill. Það
þýðir að allir sem hafa eitthvað
fram að færa ná í gegn, týnast ekki
í öllum hinum milljónunum sem eiga
sömu drauma erlendis. Við erum
líka býsna fljót að sigta út x-
faktorana og koma þeim í umferð.“
Og við gætum gert meira: „Ég
„Ég kalla þetta „mömmupopp“,
það er tónlist sem þú syngur
með og hækkar í meðan
þú ert að keyra bílinn,“ segir
Hera Björk um tónlist sína.
Morgunblaðið/Golli
kasta fram hugmynd: Hvernig væri
að breyta Iceland Airwaves í söngv-
ara- og/eða lagakeppni? Það myndi
vekja enn meiri athygli á hátíðinni
og styrkja hana til lengri tíma.“
Evrópugigg og jólaplata
Sitthvað fleira er á döfinni hjá Heru
Björk. Hún er bókuð á nokkrar há-
tíðir í Evrópu á næstunni, svo sem í
Danmörku, Belgíu og Hollandi,
mest tengt Gay Pride-hátíðahöldum.
„Ég er ennþá að fá verkefni í Evr-
ópu út af Evróvisjón,“ segir hún.
Þá er Hera Björk farin að leggja
drög að jólaplötu. „Ég gaf út jóla-
plötu fyrir þrettán árum, Ilm á jól-
um, og núna fermi ég hana fyrst áð-
ur en ég kem með nýja. Hún verður
í sama dúr og sú fyrri.“
Þá hyggst hún halda áfram að
semja og vinna í lögum með ýmsum
meðhöfundum sínum. „Tilgangurinn
með minni tónlistarsköpun er alls
ekki að finna upp hjólið. Maður
verður að þora að vera pínu hallær-
islegur og jafnvel væminn, þar sem
það á við. Nota klisjurnar sem
ganga vel í fólk. Ég kalla þetta
„mömmupopp“, það er tónlist sem
þú syngur með og hækkar í meðan
þú ert að keyra bílinn. Lykilatriðið
er að vera sjálfri sér trú og færa
fólki smá gleði. Ég er ekki mikið að
velta mér upp úr hlutunum. Hvers
vegna fórstu frá mér? og allt það.
Aðrir geta séð um það.“
Vatnaskil urðu hjá Heru Björk
fyrir um fimm árum þegar hún
ákvað að hætta að hlusta á aðra og
einbeita sér í staðinn að því sem hún
vildi gera sjálf í tónlist. „Það er von-
laust mál að eltast við það sem mað-
ur heldur að aðrir vilji, maður verður
að fylgja hjartanu. Síðan hefur þetta
verið eintóm gleði og ég sé ekki bet-
ur en það sé pláss fyrir íslenska
bjútíbollu á þessum markaði.“
Hera Björk er orðin fertug og seg-
ir aldurinn ekki skipta nokkru máli.
„Sumir telja sér trú um að vonlaust
sé að elta draumana sína eftir þrí-
tugt, ekki síst konur. Það er algjör
vitleysa. Nennirðu að vinna vinnuna
þína og vera sjálfri þér trú eru þér
allir vegir færir. Það þarf bara að
grípa tækifærin þegar þau koma.“
10.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
* „Sumir líktu mér við Adele, sem er ekki leiðinlegt fyrir mig.Kannski aðeins verra fyrir hana,
þar sem hún er tuttugu árum yngri.“
• Vetnismeðhöndlun skilar hreinni lífrænni olíu en áður hefur þekkst.
• Íblöndunarhlutfall jafngildir 5% minni koltvísýringsmengun.
• Má nota á allar díselvélar án þess að breyta þeim eða endurstilla.
• Stuðlar að hreinni og betri bruna sem skilar hreinni vél.
• Eykur ekki viðhald eða eyðslu og hefur ekki áhrif á verð.
• Skilar sama afli og venjuleg díselolía og 5% meira afli en hefðbundin lífdíselolía.
• Er mjög kuldaþolin og geymist vel, jafnt í hita sem kulda.
Nánari upplýsingar á olis.is
út í andrúmsloftið. Það má því segja að ef allir díselbílaeigendur fylltu hjá Olís myndi 5% minnkun útblásturs
svæði Reykjavíkur.