Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 50
Viðtal
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2013
M
aður er kannski búinn að eiga erfiðan dag,
fer á hljómsveitaræfingu og kemur til baka
endurnærður. Þetta er algjör vítamín-
ssprauta. Það er alltaf eitthvað spennandi að
gerast í kringum bandið og eitthvað til að
hlakka til. Þetta er okkar sálfræðiþjónusta og heldur manni í
jafnvægi,“ segja þær Gyða Hrund Þorvaldsdóttir og Edda
Tedeger í dauðarokkshljómsveitinni Angist. Angist hefur hægt
og bítandi verið að klifra metorðastigann í dauðarokkinu en
bandið er stofnað 2009 og auk þeirra eru þeir Haraldur Ingi
Shoshan bassaleikari og Tumi Snær Gíslason trommuleikari í
bandinu. Dauðarokkið er yfirleitt tengt við staðalímyndina um
karla í eiturlyfjavímu ofan í kjallaraholum að semja einhverja
djöflamúsík. Því fer fjarri hjá þeim stöllum. Gyða Hrund er
grænmetisæta og aðhyllist það sem kallað er „vegan“ fæði og
hefur gert í 11 ár. Hún starfar sem grunnskólakennari og
Edda er í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti að klára stúdents-
próf. En á kvöldin er gítarinn hengdur á öxlina og talið í hörð-
ustu tegund rokksins. „Angist byrjaði um haustið 2009. Þá
hittumst við Edda og fórum að spá í málin og spila. Við höfð-
um þekkst og gælt við það að stofna band,“ segir Gyða. Edda
bætir við að Gyða hafi verið eina stelpan sem hún þekkti sem
hlustaði á þessa tegund tónlistar af jafn miklum áhuga og hún
sjálf. „Við hittumst með gítarana og fórum að semja. Svo voru
stjörnurnar réttar og allt small saman. Það er líka ekki al-
gengt að hitta svona gimstein.“
Þungarokk og skór
Gyða hefur verið lengi hlustað á þessa tegund tónlistar. Alveg
frá því að hún var unglingur. „Ég fór að mæta á tónleika sem
þróaðist síðan í að ég fór að setja upp tónleika, flytja inn bönd
og fleira tengt þessum bransa. Ég hafði alltaf haft áhuga á
músík og að búa hana til en aldrei komið mér almennilega í
það. Svo dreif ég mig bara í það. Eftir að bandið sem ég var í
á undan lagði upp laupana hringdi ég í Eddu og sagði að nú
skyldum við láta slag standa. Ekki það að við ætluðum að
stofna eitthvert stelpuband. Það var aldrei málið. Við náum
bara ótrúlega vel saman og það er gott að geta blandað saman
umræðum um skó og þungarokk.“
Edda hefur fengið einróma lof fyrir frammistöðu sína í lag-
inu Hel með Skálmöld þar sem hún túlkar samnefnda veru. Er
þar í stríði án vopna við Hilmar Baldursson, söguhetju plöt-
unnar frábæru Börn Loka. Ekki er mjög algengt hér á landi
að kona syngi í dauðarokksbandi en Edda leysir það með
glæsibrag. „Maður getur lært svo mikið af þeim Skálm-
aldarmönnum. Það er ekkert stress og það er svo ofsaleg
spilagleði. Samt rosalegur metnaður. Ég var pínu feimin við
þetta allt, að labba inn fyrir framan troðfullan sal af fólki. Ég
verð að viðurkenna að ég var pínu stressuð en það lagaðist
þegar á leið. Ég datt ekkert eða neitt slíkt. Það var svo margt
sem gat gerst. Það hjálpar líka að fá svona góðar móttökur
eins og ég fékk.“ Gyða tekur í sama streng varðandi Skálmöld.
„Skálmaldarmenn hjálpast að, eru rólegir og skipulagðir. Það
er heilmikið sem þarf að gera fyrir eina tónleika og því mikil-
vægt að allir hjálpist að. Við Edda höfum meira að segja rótað
á háum hælum.“
Hugurinn alltaf við bandið
En hvernig kom það til að Edda byrjaði að syngja með Angist.
„Við vorum búin að fá einhverja söngvara í prufur en Gyða
var alltaf að ýta á mig að standa fyrir framan míkrafóninn,“
segir hún og Gyða segist aldrei hafa verið í vafa um að Edda
myndi taka þetta hlutverk að sér. „Ég hafði heyrt hana syngja
með öðru bandi og vildi endilega að hún myndi syngja því hún
er rosaleg söngkona. Svo lét hún bara vaða.“ Þær stöllur
sömdu tvö lög og settu á netið. „Eftir að við settum lögin okk-
ar á netið sátum við heima og nöguðum á okkur neglurnar því
við vorum svo stressaðar yfir að við yrðum hakkaðar í spað.
En svo var þeim ótrúlega vel tekið og fengum góð viðbrögð.“
Við gáfum okkur langan tíma í þetta, æfðum vel því við vild-
um vera tilbúnar og geta flutt okkar efni vel á tónleikum. „Við
viljum gera þetta vel og við erum alltaf með hugann við band-
ið, lögin og allt í kringum þetta. Við erum oft að senda skila-
boð til hvor annarrar um miðjar nætur með einhverjum hug-
myndum, maður er alla daga alltaf eitthvað að pæla,“ bætir
Gyða við og heldur áfram. „Við erum dugleg að prófa allt sem
okkur dettur í hug. Annaðhvort gengur það eða ekki. Svo
verður maður bara að vinna úr þessum hugmyndum sem
koma. Við skipuleggjum okkur vel og leggjum mikla vinnu í
bandið því maður uppsker eins og maður sáir. Ég bý vel að
því að hafa flutt inn bönd og sett upp mikið af tónleikum svo
ég þekki aðeins inn á bransann og hef því ágæta reynslu.“
Edda grípur inn í og bendir á að Gyða hafi bein í nefinu. „Það
er alveg frábært að hafa svona snilling með sér í bandi til þess
að sjá um þetta allt saman, vita hvað þarf að gera og svo
framvegis.“
Í kringum tónlistina er margt gríðarlega skemmtilegt enda
spretta upp bílskúrsbönd eins og gorkúlur. Þeir sem hafa verið
í hljómsveit vita ekkert skemmtilegra. Skemmtilegt fólk og
skemmtilegt andrúmsloft. Sérstaklega í þungarokkinu þar sem
mikið bræðralag ríkir. „Að semja tónlist, spila og fara á æfing-
ar er svo skemmtilegt. Það er svo margt að hlakka til á hverj-
Dauðarokkið er
okkar sálfræðingur
FRÆGÐARSÓL DAUÐAROKKSHLJÓMSVEITARINNAR ANGISTAR HEFUR RISIÐ HRATT FRÁ ÞVÍ AÐ HÚN VAR STOFNUÐ HAUSTIÐ
2009. HLJÓMSVEITIN SPILAR DAUÐAROKK AF HÖRÐUSTU SORT OG VEKUR HVARVETNA ATHYGLI ENDA STELPUSVEITIR Í ÞESSARI
TEGUND ROKKS EKKI Á HVERJU STRÁI. EDDA TEDEGER RYMUR TEXTANA MEÐ SINNI MÖGNUÐU RÖDDU EN HÚN OG GYÐA
HRUND ÞORVALDSDÓTTIR GÍTARLEIKARI RÆÐA UM ÚTGÁFUSAMNINGINN Í BANDARÍKJUNUM OG SAMHELDNINA Í ROKKINU.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Edda Tedeger syngur í
laginu Hel með
Skálmöld. Slær þar í
gegn. Svo um munar.
Morgunblaðið/Eggert
Angist er fjarri því að vera eina dauðarokkshljómsveit
heimsins þar sem konur spila eða syngja. Árið 2012
varð ákveðin sprengja í hljómsveitum sem eru með
konur innanborðs í þessari músík.
Sharon Bascovsky stofnaði hljómsveitinni Derketa
sem spilar grimmt dauðarokk og gaf út hina frábæru In
death we meet í fyrra. Bandið er með þrjár konur inn-
anborðs.
Melynda Jackson stofnaði Eight Bells eftir að hljóm-
sveitin hennar SubArachnoid Space batt enda á sitt
samstarf eftir 15 ár. Jackson steig fyrir framan míkra-
fóninn og er að finna sig æ betur. Rymur í hæsta gæða-
flokki.
Þá má benda á að í frönsku X-factor-keppninni mætti
Rachel Aspe og söng fyrir dómarana með þessum
hætti sem þekkist í dauðarokkinu. Hún komst samt
ekki áfram en fékk mikið hrós.
Rokkið hins vegar á fullt af söngkonum sem slegið
hafa í gegn bæði hér heima og erlendis. En það er ekki
allra að rymja í míkrafóninn. Það telst til hæfileika.
KONUR Í DAUÐAROKKI