Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Qupperneq 59
10.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Margir hjá guði nota farartæki. (9)
4. Drykkjarílát barna til að geyma inni á sér? (8)
8. Viðkvæði lært sem markmið. (9)
10. Sjá lítinn mág úr KA með grænmeti. (8)
13. Ruglist af fallegum. (9)
15. Fer járn með í meni hjá þeim sem vill breyta heiminum.
(9)
16. Þú sem Færeyingur og Bandaríkjamaður færð fugl. (6)
17. Erlendur maður sem spilar spil. (5)
18. Lykta tátur af kisum. (9)
20. Breyttist í partí út af geymslu. (10)
24. Skjalið um fatnaðinn. (7)
27. Þrenna vegna Akureyrar og rásar. (8)
28. Skólaðir Elí einhvern veginn í mismunandi. (11)
30. Kalla aftur og góla yfir frenju. (6)
33. Grafir áfjáðar í að vera þreytandi. (10)
34. Karlar með engan frið eru þeir sem valda uppþotum. (11)
35. Sjá mött rúða! Ger við í búningi. (10)
36. Óvarin borg gefur ávöxt. (6)
37. Stúkaði af sölusvæði. (9)
LÓÐRÉTT
1. Eyru Slafa taka við líkt og ílát. (9)
2. Stök eggja þjáðan. (7)
3. Eltir yður blandaður og rauður. (9)
5. Skapverstir með Argonloft með títaníum (7)
6. Stöðugt efni eða L-loft? (7)
7. Skapvond yrði út af skömmum. (7)
9. Ójafn hefur misst aftur frið. (7)
11. Þögull með álfana að sögn. (7)
12. Koma auga á tvær stærðir og smokra. (7)
14. Sýnir gang með rýmismáli. (6)
19. Aðdáun á mælingarhugtaki veldur ósamkomulagi. (7)
21. Þór ruglast eftir meðvitundarleysi við ker. (6)
22. Treg lærði um eir síðar. (10)
23. Darwin verður íslenskari við að komast í bor hjá góðum
félaga. (10)
24. Ekki mjög kvalin vegna smæðar sinnar. (9)
25. Heilsuðuð með því að stama nafn drottins. (7)
26. Stúlkan æpir við hreyfingu hljóðfærisins. (7)
29. Ósanngjarnar reglur stjórna þegar maður er ekki orðinn
18 ára. (8)
31. Kvæði sem er skilyrt einhverju er dár. (7)
32. Hergöngulag dvelji hjá ímyndaðri veru. (7)
Víkingaklúbburinn, félagsskapur
sem stofnaður var í kringum „vík-
ingaskák“, er Íslandsmeistari
skákfélaga eftir harða baráttu í
Hörpunni um síðustu helgi. Vík-
ingaskák hefur aldrei náð mikilli
útbreiðslu en komst í fréttirnar
við slit „einvígis aldarinnar“ 1972
þegar þeim Fischer og Spasskí var
gefið sitt eintakið hvorum af tafl-
inu. Forsprakkar Víkinga-
klúbbsins eru kunnir meistarar,
Gunnar Freyr Rúnarsson og Dav-
íð Kjartansson og halda þeir
tryggð við stofnskrána sem höf-
undur víkingaskákarinnar, Magn-
ús Ólafsson, samdi.
Þegar Magnús lést lét hann eft-
ir sig umtalsverðar eignir sem
m.a. renna til þátttöku Víkinga-
klúbbsins á Íslandsmóti skák-
félaga. Sigurliðið sem hlaut 41 ½
vinning af 56 mögulegum var skip-
að Úkraínumanninum Pavel Elj-
anov, Pólverjunum Bartosz
Socko, Gregorz Gajewskii og
Marcin Dziuba og Hannesi Hlífar
Stefánssyni, Stefáni Kristjáns-
syni, Birni Þorfinnssyni og
Magnúsi Erni Úlfarssyni. Átta lið
kepptu í efstu deild og varð Tafl-
félag Reykjavíkur í 2. sæti með
38 vinninga, Skákfélag Bolung-
arvíkur í 3. sæti með 3 6 ½ vinn-
ing og Taflfélag Vestmanneyja í
4. sæti með 34 ½ vinning. Þessi
fjögur lið héldu öll möguleikum á
sigri fram á lokadag keppninnar.
Í 2. deild sigraði Goðinn-Mátar,
b-sveit, í 3. deild b-sveit Víkinga-
klúbbsins og í 4. deild Bridsfje-
lagið. Um 400 skákmenn tefldu í
Hörpunni um helgina og lauk þar
magnaðri skákveislu í stórkost-
legum húsakynnum.
Óvæntustu úrslit mótsins voru
þegar Andri Áss Grétarsson vann
Jóhann Hjartarson. Skákir úr Ís-
landsmótinu liggja enn ekki fyrir
en af mörgu er að taka frá Reykja-
víkurskákmótinu. Eins og fram
hefur komið náði Hannes Hlífar
sér vel á strik og vann marga góða
sigra. Hann lagði t.a.m. félaga
sinn úr Víkingaklúbbnum í átt-
undu umferð:
29. Reykjavíkurskákmótið 2013:
Hannes Hlífar Stefánsson – Bar-
tosz Socko (Pólland)
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Bxc6
Uppskiptaafbrigði Spænska
leiksins. Hannes tefldi síðast gegn
því á Reykjavíkurmótinu 2010.
5. … dxc6 5. O-O Dd6 6. Ra3 b5
7. c3 c5 8. Rc2 Bb7 9. a4
Tiltölulega máttlaus leikur en 9.
d4 sem er algengast gefur heldur
ekki mikið.
9. … Rf6 10. axb5 axb5 11. Hxa8
Bxa8 12. Ra3 Bxe4 13. Rxb5 Dc6
14. Ra3 Bd6 15. Rc4 Bxf3 16. Dxf3
Dxf3 17. gxf3 Kd7 18. He1 Ha8!?
Byggir á hugmyndinni 19. Rxe5+
Bxe5 20. Hxe5 Ha1 21. He1 c4!
o.s.frv.
19. d3 Ha1 20. Kf1 Rd5 21. Ke2
Ha8 22. Kd2 f6 23. Kc2 h5 24. Be3
g5
Vinningsmöguleikar svarts eru
aðeins betri í þessari stöðu því peð-
in á kóngsvæng gefa ýmsa mögu-
leika.
25. Rd2 g4 26. Re4 Kc6 27. Bd2
Hf8 28. Rg3 gxf3 29. c4 Rf4 30. Rf5
30. Bxf4 exf4 31. Rxh5 kom til
greina en eftir 31. .. Be5 er ridd-
arinn á villigötum.
30. … Re2 31. Rh4 Rd4 32. Kd1
Ha8 33. Bc3 Re2 34. Rxf3 Rxc3 35.
bxc3 Ha3 36. Kd2 Ha2 37. Ke3 f5
38. Hg1 Hc2 39. Hg6 Kd7 40. Hf6 f4
41. Ke4 Hxf2 42. Rxe5 Ke7 43. Kf5
f3
-sjá stöðumynd-
44. h4??
Það er ekki útilokað að Socko hafi
talið sig getað teflt til vinnings í
þessari stöðu. Jafntefli og ekkert
meira var að fá með 44. Rg6+ Kd7
45. Ke4 o.s.frv.
44. … Bxe5 45. He6+ Kf7 46.
Hxe5 He2!
- Laglegur hnykkur í lokin. Socko
gafst upp þar sem hann ræður ekki
við f-peðið, t.d. 47. Hf6+ Ke7 48.
Kg5 He5+ 49. Kg6 He6 með upp-
skiptum á hrókum.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Víkingaklúbburinn er Íslandsmeistari skákfélaga
Verðlaun eru veitt fyrir
krossgátu vikunnar.
Senda skal þátttökuseðil í
umslagi merktu: Kross-
gáta Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110
Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu
10. mars rennur út á
hádegi 15. mars.
Vinningshafi krossgát-
unnar 31. febrúar er
Guðrún Halldórsdóttir,
Skólavörðustíg 23,
Reykjavík. Hún hlýtur í
verðlaun bókina Útlaga eftir Jakob Ejersbo. JPV gef-
ur bókina út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang