Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Page 60
„Fullkomin,“ sagði aðstoðarþjálfari Real,
Aitor Karanka, beðinn um að lýsa frammi-
stöðu Varane í leiknum.
Í seinni leiknum í Katalóníu skoraði hann
aftur, með skalla eftir horn, í 3:1 sigri.
Þvílíkt efni, sögðu menn. Og það eru eng-
ar ýkjur að drengurinn er ótrúlega góður
miðað við aldur. Hann fagnar tvítugsafmæl-
inu 25. apríl í vor.
Engan sem séð hefur Frakkann
leika undanfarið skyldi undra
að sjálfur Mourinho hefur lýst
því yfir að í Varane hafi Real
tryggt sér afburða varnarmann
til næstu tíu ára.
Hann er 191 cm hár, góður
skallamaður, gríðarlega fljótur
og hefur góða knatttækni.
Er jafnan rólegur og yf-
irvegaður og sýnist
oftast mun eldri
og reyndari en
raunin er.
Gert var ráð
fyrir því að Varane
yrði að gera sér bekkjarsetu að
góðu hjá Real í töluverðan tíma enda
spænski landsliðsmaðurinn Sergio Ra-
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.3. 2013
Didier Deschamps, landsliðsþjálfari
Frakka, hefur fylgst spenntur með Var-
ene. „Hann er mun þroskaðri sem knatt-
spyrnumaður en árin 19 gefa til kynna,“
sagði franski landsliðsþjálfarinn, eftir leik
Real og Manchester United í Evr-
ópukeppnini í Old Trafford.
Mistökin skipta ekki máli
„Frammistaða hans var mjög athyglisverð
í leik sem jafnast á við sjálfan úrslitaleik
Meistaradeildarinnar,“ sagði Deschamps í
samtali við franska dagblaðið Le Parisien
eftir viðureignina. Þjálfarinn gerði lítið úr
mistökum varnarmannsins unga áður en
United gerði fyrsta mark leiksins; sagði
þau ekki skipta nokkru máli í stóra sam-
henginu.
Varane hefur enn ekki leikið með A-
landsliðinu. Deschamps valdi hann í hóp-
inn fyrir vináttuleik gegn Þjóðverjum í
síðasta mánuði en vegna meiðsla lék Var-
ane ekki.
Þjálfarinn talar um Varane sem mann
framtíðarinnar og vill, þrátt fyrir hólið,
ekki ljóstra upp hvort hann verði í liðinu
alveg á næstunni. „Hann verður að leika
svona vel í langan tíma. Menn verða að
sýna jafna og góða frammistöðu lengi til
að teljast á meðal þeirra bestu.“ En
Deschamps fékkst þó til að viðurkenna
að Portúgalinn Pepe væri ekki „bara ein-
hver leikmaður“ svo mikið væri í þann
spunnið sem héldi honum úti úr liði
Real.
Framtíðin er komin
Alvaro Arbelao, spænski landsliðsbakvörð-
urinn gamalreyndi hjá Real, hefur hrifist
af hinum unga, franska liðsfélaga sínum.
„Strax þegar hann fór að æfa með okkur
gerði maður sér grein fyrir því hve hann
hefur mikla hæfileika frá náttúrunnar
hendi; hraða og styrk, einnig mikinn leik-
skilning, og svo nokkuð sem hann hefur
ekki sýnt áhorfendum: hann er mjög góð-
ur skotmaður með báðum fótum.“
Varane lék í fyrri bikarleiknum gegn
Bar-celona vegna þess að Pepe var
meiddur og Sergio Ramos í leikbanni. Í
haust var hann í raun fimmti í röð mið-
varða hjá félaginu; Raúl Albiol var a.m.k.
nær aðalliðinu og jafnvel gamla brýnið
Ricardo Carvalho.
Varane er maður framtíðarinnar. En
þannig vill til að framtíðin er núna.
Varane fagnar marki sínu gegn Barcelona ásamt
José Mourinho, þjálfara Real Madrid. Til vinstri
er Portúgalinn Pepe sem Varane sló út úr liðinu.
AFP
ÓVENJUÞROSKAÐUR
STRÁKURINN FRÁ LENS VERÐUR LYKILMAÐUR Í STERKU LANDSLIÐI
FRAKKLANDS Í MÖRG ÁR EF FRAM FER SEM HORFIR.
Varane á sér marga aðdáendur
Nokkrum misserum eftir að franskagoðsögnin Zinedine Zidane kom tilstarfa hjá Real Madrid, sem náinn
samstarfsmaður José Mourinhos þjálfara,
keypti félagið ungan franskan varnar-
mann, Raphaël Varane, frá Lens. Þetta
var í júní 2011 og kaupverðið 12
milljónir evra að því talið var.
Því var haldið fram í íþrótta-
dagblaðinu El Mundo Depor-
tivo (sem gefið er út í
Barcelona borg vel að
merkja) að kaupin væru
„pólitísk“ að því leyti
að með þeim vildi
félagið gleðja
Zidane og
sýna umheiminum að hann hefði áhrif inn-
an félagsins.
„Fullkomin frammistaða“
Umfjöllunin var sem sagt ekki í sérlega
jákvæðum tóni. Það var því kaldhæðni
örlaganna að þegar Varane þessi mætti
liði Barcelona í fyrsta skipti fyrir nokkr-
um dögum var hann valinn besti maður
vallarins! Það var í fyrri undanúrslita-
leik liðanna í spænsku bikarkeppninni.
Snillingarnir í Katalóníuliðinu komust
hvorki lönd né strönd gegn Varane
og samherjum hans í vörninni á
Bernabeu-leikvanginum í Madríd.
Til að kóróna frábæra frammi-
stöðu gerði sá franski mark
Real í leiknum, sem lauk
með 1:1 jafntefli. Varane
er enn aðeins 19 ára
og varð þarna næst-
yngsti leikmaður
Madrídarliðsins til
að skora gegn
Barcelona.
mos og Pepe sá portúgalski engir aukvisar
sem miðvarðapar. Enda varð Frakkinn að
bíða eftir tækifærinu. Kom að vísu lítillega
við sögu í fyrravetur en fyrsti „stóri“ leik-
urinn var gegn Manchester City í Meist-
aradeildinni 27. september í haust. Hann
var í byrjunarliðinu, stóð sig eins og hetja í
3:2 sigurleik, lék annað slagið eftir það og
kom t.d. við sögu í fimm af sex leikjum
Real í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Ferguson vildi hann líka!
Rétt er að Real keypti Varane á sínum
tíma að ráði Zidanes en ekki eingöngu til
að gleðja þann góða dreng. Zidane vissi að
Manchester United hafði sýnt stráknum
áhuga og fullvissaði Florentiono Perez, for-
seta Real, um að Varane yrði besti mið-
vörður Frakka síðan Laurent Blanc var og
hét. Enginn átti þó von á að frami hans
yrði svo skjótur.
„Ég sagði honum í byrjun leiktíðarinnar
að hann yrði örugglega einn besti mið-
vörður í heimi eftir nokkur ár,“ sagði
Portúgalinn Pepe á dögunum. Nú er svo
komið að Varane hefur slegið Pepe út úr
liðinu! Mourinho getur ekki annað en valið
hann í liðið!
AFP
Varane var frábær gegn Barcelona í byrjun mánaðarins. Hér hefur hann betur gegn Lionel Messi,
argentínska undramanninum sem varnarmenn Real náðu að halda algjörlega í skefjum í leiknum.
Varanlegur
varnarmaður
FRANSKI UNGLINGALANDSLIÐSMAÐURINN
RAPHAËL VARANE HEFUR SLEGIÐ Í GEGN Í
VÖRN REAL MADRID UPP Á SÍÐKASTIÐ.
Raphael Varane
og Robin van
Persie hjá Man-
chester United.
AFP
„Ég vil auðvitað ekki að Rooney fari til liðs utan Bretlands, en
ef hann gerir það reikna ég með að það verði erlendis.“
Ian Wright, fv. framherji Arsenal, um enska landsliðsmanninn Wayne Rooney.
Boltinn
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is