Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2013, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 10. MARS 2013
Fermingartilboð á
iPhone 5 og gjöf frá
Vodafone fylgir með
Þín ánægja er okkar markmið
iPhone 5
Með stærri skjá en fyrri útgáfur, auk
þess að vera þynnri, léttari og öflugri.
129.990 kr. 11.990 kr. á mán.*
*M.v. 12. mánuði. Við afborgunarverð bætist greiðslugjald, 340 kr. á mánuði.
Boladagurinn var haldinn á samfélagsmiðlinum Twitter í þriðja
sinn á föstudag. Íslenski twitterheimurinn fer stækkandi og var
metþáttaka þetta árið en allir sem vildu gátu verið með. Í stuttu
máli gengur Boladagur út á að Íslendingar trufli erlendar stór-
stjörnur og reyni að fá svar frá þeim á Twitter með öllum til-
tækum ráðum. Þátttakendur fara margir hverjir óvenjulegar
leiðir til að ná til hinna erlendu stórstjarna.
Íslandsvinurinn Russell Crowe hafði í gær svarað þessum
truflunum í formi tísts í gríð og erg frá aðdáendum auk þess sem
fjölmiðlateymi Toms Cruise virðist hafa tekið við sér. Þá kom í
ljós að mamma Russells Brands er mikill Íslandsvinur. Úrslit
verða kunngjörð á mánudagskvöldið á Sportrásinni á Rás 2.
AFP
BOLADAGURINN Á TWITTER
Íslendingar
angra fræga
Mamma Russells Brands, Barbara Elizabeth, hefur
komið til Íslands. Það kom í ljós á Boladeginum.
AFP
Glenn Hughes, fyrrverandi
söngvari og bassaleikari
Deep Purple, svaraði kall-
inu frá Friðriki Inga, fram-
kvæmdastjóra KKÍ, sem er
mikill aðdáandi.
„Fuglinn heitir Birgitta Haukdal.
Úlfur Bjarni sonur minn er mikill
Eurovision-aðdáandi og við feng-
um hana rétt fyrir keppnina í ár.
Við áttum Heru Björk á undan en
hún flaug á vit ævintýranna,“ segir
Sunna Valgerðardóttir fréttakona
sem á glæsilegan páfagauk.
Sunna er mikill aðdáandi páfa-
gauka og hefur haft fugl í sínu lífi
frá því hún var aðeins fimm ára
gömul.
Það þarf ekki að koma á óvart að
Úlfur hélt með Birgittu í Eurovisi-
on. „Þegar það gekk ekki upp var
minn maður frekar fúll. Eins og
þegar það gekk ekki upp hjá Heru
á stóra sviðinu á sínum tíma.“
Sunna segir að hún ætti kannski
bara að breyta nafninu aftur í
Heru í tilefni af velgengni hennar
á alþjóðlegum vettvangi. „Okkar
Hera flaug bara til Síle til að að-
stoða nöfnu sína. Hún er farin
blessunin,“ segir Sunna.
Hún segir að Birgitta sé frábær
fugl og hvers manns hugljúfi.
„Hún er alveg sú besta, voðalega
gæf og skemmtileg. Fer með
manni í sturtu og les með okkur á
kvöldin.
Páfagaukar geta alveg verið
pirrandi en þeir þagna þegar það
er sett teppi yfir búrið.
Aðalmarkmiðið er að kenna
henni að tala. Það hefur aldrei
gengið hjá mínum fuglum en við
ætlum að reyna með Birgittu.“
GÆLUDÝR VIKUNNAR
Langar að
kenna henni
að tala
Úlfur Bjarni, Sunna og páfagaukurinn Birgitta Haukdal saman á góðri stundu.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Íslandsvinurinn Paul Rudd er eins
og þeir félagar. Með gott bros.
Bergþór Pálsson er einnig með
bros sem bræðir.
Leikarinn Valur Freyr Einarsson
er með fallegt bros.