Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 23
14.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 E f ég á að vera hreinskilinn þá er það við fataskiptin sem kuldinn bítur á mann. Í sjónum er ég á fullu og svitna mikið. Það eru aðeins hend- ur og fætur sem kólna meira. Ég sef í tjaldi eða bíl og get aldrei þurrkað blautbúninginn almenni- lega. Þannig að það að fara á fæt- ur og fara í frosinn blautbúning er í rauninni eina skiptið sem ég finn fyrir kulda,“ segir Ian Batt- rick sem nýverið gaf út bókina Numb Cold Water Surfing. Ísland leikur þar stórt hlutverk. „Ég elska Ísland og fólkið er yndislegt. Að geta skellt sér í sjóinn hvenær sem er yfir sumartímann er magnað en enn betra er að fara yfir vetrartímann. Ekki skemmir súkkulaðihjúpaður lakkrísinn,“ segir hann og skellir upp úr. Bókina gerir Ian til að fá fólk til að sleppa fram af sér beislinu. Skella sér í smá ævintýri hvort sem það er yfir eina helgi, eitt ár eða jafnvel heila eilífð. „Bókin sýnir sex ára ferðalög þar sem ég er að leita að öldum sem eru ekki troðnar af fólki. Tim Nunn vinur minn tók allar myndirnar í bók- inni sem er 208 síður. Þarna erum við einir í nátt- úrunni og segjum sögur af okkur og öldunum. Við lentum líka í æv- intýrum með birni, fjallaljón og háhyrninga. Eldgos á Íslandi, prófuðum slabbið í Skotlandi og keyrðum marga daga í Noregi. Þetta er í raun óður til þess sem hefur ekki verið uppgötvað í heimi brimbretta.“ Ian vill helst ekki segja hvar hann var á brimbrettinu sínu hér við land því hann segir að þegar staðir eru nefndir þá fyllist allt af öðrum brimbrettamönnum. „Það er líka bara virðing fyrir heima- mönnum. Öldurnar hérna við íslensku strandlínuna eru ekki eins stórar og reglulegar og á öðrum stöðum. En fjölbreytnin hér við land er mikil og það að maður geti enn fundið öldu sem maður hefur ekki prófað og gert það nánast einn hefur mikið aðdráttarafl fyrir mig.“ Ian hefur grandskoðað alla strandlínu Íslands til að leita að öldum og sefur í bílaleigubíl á meðan. „Það er nú aðallega vegna verðlagsins,“ segir hann og hlær. „Mér finnst bara betra að vakna við hliðina á öldunum með allt sem ég þarf við hliðina á mér.“ Ian hefur verið að þróa sinn eigin blautbúning sem nota má í köldum sjó og kallar hann Luna- surf. „Ég prófaði nýjustu línuna í janúar á Íslandi. Hann er 6,4 millimetrar að þykkt og virkaði ótrúlega vel. Mér var allvega ekki kalt,“ segir þessi hressi og káti of- urhugi. Maður með stáltaugar. Vaðið út í ískaldan sjóinn snemma morguns. OFURHUGINN IAN BATTRICK Elskar íslenskar öldur og lakkrís IAN BATTRICK HEFUR KOMIÐ TIL ÍSLANDS SÍÐUSTU SEX ÁR TIL ÞESS AÐ REYNA SIG VIÐ ÖLDURNAR HÉR VIÐ LAND Á BRIMBRETTI. Í ÍSKÖLDUM SJÓ SKELLIR HANN SÉR ÚT Í OG SEGIR AÐ HANN FINNI EKKI MIKIÐ FYRIR KULDANUM. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Ian segist finna mest fyrir kuldanum þegar hann fer í frosinn blautbúninginn. Ljósmyndir/Tim Nunn Öldurnar á Íslandi eru fjölbreyttar og óreglulegar, segir Ian. Úti í ísköldum sjónum með bókina sína. Sofið undir berum himni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.