Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2013
Matur og drykkir
Þ
etta er frábær útivera og gríðarlega skemmtilegt,“ segir Stefán
Pétur Sólveigarsson kræklingatínari og vöruhönnuður. „Þetta er
ekta fjölskyldu- og vinasport. Að borða þetta með konunni er frá-
bært en enn betra ef það eru tíu vinir saman. Sem forréttur er
þetta frábært.“
Stefán segir að þegar hann fari til kræklingatínslu þá fari hann með
prímus, pott og hvítvín í vatnsflösku, niðurskorinn lauk og steinselju
ásamt góða skapinu. Því eftir tínsluna sé sest niður og aflinn eldaður. „Ég
tek með mér græjur til að elda þetta á staðnum og það hefur gefið þessu
mikinn lit,“ segir Stefán. Það þarf ekki mikið til að gera veislu niðri í
fjöru.
„Sumir elda kræklinginn bara upp úr sjó. Það er ekki fyrir mig. Svo
hafa menn verið að prófa bjór, epla cider og allskonar. Ég kann hins veg-
ar best að meta hvítvínið.“
Góð regla að tína ekki yfir sumarið
Stefán tínir sinn krækling í Hvalfirði á stað sem verður vinsælli og vin-
sælli með hverju árinu. „Kræklingur getur alveg orðið eitraður og valdið
lömunarveiki. Það gerist alltaf yfir sumarið að kræklingurinn verður eitr-
aður. Það er ekki alveg vitað hvenær því eiturmagnið er ekki mælt. En
það er svona góð regla að fara ekkert yfir sumarið.“
Vegna eiturþörunga er kræklinganeysla hættuleg á þeim tímum ársins
þegar sjór er hlýr og þörungablómi í hámarki. Almennt er ekki talið
öruggt að tína krækling við Ísland frá því í maí og fram í desember.
Vegna hættu á skelfiskeitrun hefur Hafrannsóknastofnun Íslands mælt
magn eiturþörunga í kræklingi með reglubundnum hætti, og hægt er að
nálgast niðurstöður á heimasíðu þeirra
Stefán sló í gegn á hönnunarmars með lyklaklukkunni en hann gerði
einnig spaghettímælinn Ég gæti borðað heilan hest sem kemur í góðar
þarfir þegar miða á út skammtastærð á spaghettí. En á vormánuðum er
kræklingur númer eitt tvö og þrjú hjá Stefáni og hans fjölskyldu.
KRÆKLINGATÍNSLA VIÐ HVALFJÖRÐ
Veisla
í fjörunni
*Að tína kræk-ling er ektafjölskyldu- og vina-
sport. Að borða
þetta með konunni
er frábært en enn
betra ef það eru tíu
vinir saman.
VÖRUHÖNNUÐURINN STEFÁN PÉTUR SÓLVEIGARSON
REYNIR AÐ KOMAST Í KRÆKLINGATÍNSLU FJÓRUM TIL
FIMM SINNUM YFIR VORMÁNUÐINA. HANN SEGIR TÍNSL-
UNA VERA SKEMMTILEGA, MATURINN SÉ YNDISLEGUR OG
FÉLAGSSKAPURINN ENN BETRI.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Stefán lét kræklinginn aðeins þorna rétt áður en hann skellti honum í pott.
Morgunblaðið/Benedikt Bóas
Matthildur Embla týndi fulla fötu af fallegum skeljum og pínu krækling líka. Hún smakkaði og fannst þetta gott.
Magnús, Stefán Pétur, Tómas Orri,
Hildur, Brynja Björk, Þuríður Helga,
Tinna Kvaran, Þorgerður, Benedikt,
Kolfinna, Matthildur og Anna.
Stefán smakkar á krækling.