Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2013
Græjur og tækni
Þ
að er lítið mál að stofna til mikils kostnaðar við að
gera vefsvæði fyrir þig eða fyrirtækið þitt. Klukku-
stund hjá vefhönnuði og forritara kostar sitt, og það
getur tekið langan tíma að gera umfangsmikinn vef
vel úr garði. En stundum er það líka óþarfi. Flestir ein-
staklingar og mörg minni fyrirtæki geta komist af með um-
talsvert einfaldari og minni vefi, og oft á tíðum getur alger-
lega óvanur byrjandi búið til mjög frambærilega heimasíðu á
skömmum tíma, án nokkurrar sérþekkingar og með litlum
tilkostnaði.
Það fyrsta sem þarf að gera er að átta sig á því hvert er
hlutverk vefsins. Er þetta kynningarvefur fyrir vöru, þjón-
ustu eða persónu? Er þetta vefverslun? Er þetta upplýs-
ingasíða fyrir Lionsklúbb? Ólíkar lausnir geta hentað ólíkum
þörfum. Þegar þú hefur gert þér grein fyrir markmiðum
vefsins er nauðsynlegt að velta því fyrir sér hvað á að
vera á honum. Inniheldur vefurinn margar síður eða bara
eina? Þarf vefurinn að vera uppfærður reglulega með
nýju efni, eða breytist hann lítið á milli ára? Þarftu
sérstakt lén, eða nægir þér að nota undirlén frá þjón-
ustuaðila? Þegar þetta liggur fyrir er svo hægt að
fara að skoða hvernig er best að gera vefinn úr
garði.
ALLIR GETA TJÁÐ SIG Á VERALDARVEFNUM
Létta leiðin til að búa til eigin vefsíðu
MARGIR HAFA ÞÖRF FYRIR AÐ HALDA ÚTI
SINNI EIGIN HEIMASÍÐU. KANNSKI VILTU
STOFNA LITLA NETVERSLUN TIL AÐ SELJA
KÖKUSKREYTINGAR SEM ÞÚ BÝRÐ TIL Í FRÍ-
STUNDUM, EÐA KENNA ÁHUGASÖMUM
AÐ HNÝTA FLUGUR. KANNSKI ERTU UPP-
RENNANDI SKÁLD OG VILT KOMA LJÓÐUM
ÞÍNUM Á FRAMFÆRI, EÐA SMIÐUR SEM VILL
FLEIRI VERKEFNI. Í ÖLLU FALLI ERU MARGAR
LEIÐIR FÆRAR ÞEGAR KEMUR AÐ ÞVÍ AÐ
SETJA UPP VEFINN ÞINN.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
WordPress er sennilega algengasta vef-
umsjónarkerfið sem er í notkun í dag,
en það er notað til að keyra um 17%
allra vefja í heiminum. Kostir þess
eru margir. Það er mjög einfalt í
notkun, en býður upp á gríðarlega
mikla möguleika. Þrátt fyrir að
WordPress hafi upphaflega verið
hannað sem einfalt bloggkerfi, þá
er það nánast fullbúið vefumsjón-
arkerfi í dag og getur ráðið við að
halda utan um mjög stóra og efn-
ismikla vefi. Þá er það ótvíræður kostur
við WordPress að mörg fyrirtæki sérhæfa
sig í að búa til einfaldar viðbætur fyrir kerfið sem
gera þér kleift að innleiða ýmiskonar sérlausnir fyrir vefinn
þinn, og hægt er að láta forrita sérlausnir fyrir vefinn ef á þarf að halda.
Hægt er að fá einfalda útgáfu fyrir blogg, og setja upp síðu hjá WordPress þér að
kostnaðarlausu. Ef þú vilt hins vegar njóta allra þeirra kosta sem WordPress býður
upp á þarftu að kaupa þér lén og hýsingu, en það er mjög einfalt að ráða fram úr því
með aðstoð WordPress. Þá er auðvelt að breyta útliti vefsins með fjölda svokallaðra
þema, sem eru fyrirfram hannaðir útlitsstaðlar fyrir vefinn. Mikill fjöldi þema er í boði.
Með WordPress að vopni er nánast öruggt að vefurinn þinn getur vaxið til frambúðar
og tekið við nýjungum án teljandi vandræða. Þá eru margir sérfræðingar, bæði hér
heima og erlendis, sem sérhæfa sig í gerð WordPress-vefja, ef þú ákveður seinna meir
að færa út kvíarnar, eða lendir í vandræðum.
www.Wordpress.com
Wordpress
Squarespace er þjónusta sem er í uppáhaldi hjá mörg-
um. Þar er mikið lagt upp úr að skapa einstakt og fal-
legt útlit fyrir vefinn þinn. Squarespace býður upp á
mikla möguleika í framsetningu efnis og fjölda af inn-
byggðum lausnum fyrir vefverslanir, ljósmyndagallerí,
eða aðrar sérþarfir. Kerfið er hannað með leitarvél-
arbestun í huga og er auðvelt að passa upp á að leit-
arvélarnar finni efnið þitt. Hægt er að stofna marga
notendur fyrir hvern vef svo auðvelt er að láta marga
einstaklinga sjá um að uppfæra vefinn. Þá er auðvelt
að fylgjast með tölum um heimsóknir með þægilegu
greiningartóli sem er innbyggt í kerfið. Squarespace
býður upp á mikla möguleika fyrir vefi sem þurfa að
geta vaxið og dafnað.
www.Squarespace.com
Squarespace
Ef þú þarft bara einfalda vefsíðu sem inniheld-
ur helstu tengslaupplýsingar um þig, þá er
vert að skoða svokallaðar nafnspjaldasíður á
borð við About.me og Flavors.me (sem eru
mjög sambærilegar). Þar er boðið að birta
eina mynd, ásamt helstu upplýsingum og
tengingum við helstu samfélagsmiðla. Það er
kjörið að skapa slíkar síður til að nota í undir-
skrift tölvupósta, eða til að safna saman á
einn stað tengingum á alla samfélagsmiðla.
Þetta getur líka verið ágætis lausn fyrir fyr-
irtæki sem þurfa ekki að sýna mikið þjónustu-
framboð, en vilja vera finnanleg á netinu.
Uppsetning á slíkum síðum er mjög einföld.
www.About.me
www.Flavors.me
About.me /
Flavors.me
Ef þú þekkir vel til Google Docs, þá kann Google
Sites að henta þér vel. Eins og önnur þjónusta frá
Google er hún ókeypis og einföld í notkun. Það
er auðvelt að byggja ansi umfangsmikinn vef með
mörgum undirsíðum með því að nota Sites, og
hægt að tengja kerfið við annað þjónustuframboð
Google. Útlit og efnisframsetning er þó ekki til að
hrópa húrra fyrir, en hentar ágætlega fyrir efn-
ismiklar síður sem þarf að vera hægt að bæta við
með einföldum hætti.
www.Sites.Google.com
Google Sites
Meiri virkni, minna mas. Ef þú vilt búa til þægi-
legan og fagmannlegan vef er Weebly ágætur
kostur með einfalt notendaviðmót. Mikið er til
af þemum sem hægt er að nota, eða breyta til
að búa til sérhæft útlit. Hægt er að færa efni til
um vefinn með einföldu draga og sleppa (drag
n’drop)-viðmóti. Það er boðið upp á mikið af
sérhæfðum viðbótum, svo sem bloggviðbót og
vefverslunarviðbót sem er auðvelt að tengja við
vefinn og talsvert mikið í boði fyrir ókeypis út-
gáfuna. Weebly-þemu aðlaga sig sjálfkrafa að
ólíkum skjástærðum, svo sem fyrir síma og
spjaldtölvur.
www.Weebly.com
Weebly
Wix er annar kostur sem er einfaldur í notkun
en býður upp á töluverða möguleika. Wix býður
upp á fjölda þema og mikið af viðbótum sem
hægt er að bæta við vefinn. Wix leggur talsvert
upp úr tengingum við samfélagsmiðla og það er
mjög auðvelt að laga útlit vefsins að því sem þér
þóknast, því hægt er að breyta nánast öllu í útliti
vefsins. Þá má finna mikið af myndböndum á síð-
unni sem kenna undirstöðuatriðin við að setja
upp vef með hjálp Wix.
www.Wix.com
Wix
Jux er spennandi viðmót sem býður þér upp á
að sérsníða hverja síðu, hvern bloggpóst eða
efni. Mikið er lagt upp úr því að gera vefinn þinn
aðlaðandi með stórum myndum og hönnun sem
miðar við að vera notuð í fullri skjástærð. Kostir
Jux eru ekki síst hve auðvelt er að búa til vefi
sem líta mjög vel út á snjallsímum og spjaldtölv-
um.
www.Jux.com
Jux
Eitt vinsælasta bloggkerfið í dag er Tumblr, en það hefur nokkra stóra kosti.
Það er ótrúlega auðvelt að byrja, það sameinar kosti vefsíðu og samfélagsmið-
ils, það er mjög einfalt að breyta útliti þess, en mikill fjöldi þema er í boði. Þá
er auðveldlega hægt að tengja það við önnur forrit, svo sem símaforrit og nota
Tumblr til að birta efni þaðan. Hægt er að velja Tumblr blogg til að fylgjast með
og skoða í tímalínu með svipuðum hætti og Twitter. Þessi samfélagsmiðlateng-
ing þjónustunnar hefur gert það mjög vinsælt hjá yngri notendum. Tumblr er
mjög þægilegt til þess að deila ýmiskonar efni, svo sem texta, ljósmyndum,
hljóðskrám og myndböndum, en virkni þess er nánast einskorðuð við það.
www.Tumblr.com
Tumblr