Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 39
14.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
T
ískustraumar eldast
misjafnlega og fæ ég
seint leið á að rifja upp
tískustrauma sokka-
bandsáranna sem náðu
ákveðnum hápunkti í kringum
2000. Ég var dálítið að vinna með
Tark-buxur og eitthvað sítt yfir
rassinn á þessu tímabili. Þessi
unga og óreynda kona hélt að
hann myndi virðast mun minni ef
honum væri pakkað inn í nokkur
lög af fataefnum. Þarna var ekki
búið að kenna okkur að þrýsta
innyflunum (og fitunni) inn með
rándýrum aðhaldsfötum og
þetta var líka áður en ég áttaði
mig á því að það gerir ákaflega
lítið fyrir útlitið að borða brauð
með túnfisksalati og „hreinan“ appels-
ínudjús í fernu í morgunmat.
Þar sem lukkudísirnar vaka alltaf
yfir mér var Þor-
björg Hafsteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur
(og síðar metsölu-
bókahöfundur) send til
mín stuttu síðar. Eftir
að hafa mælt mig hátt
og lágt tók hún af mér
sykurinn í ákveðinn
tíma og sitthvað fleira
sem gerði það að verkum
að lífið varð einhvern veg-
inn miklu ánægjulegra.
Ég er ekki hætt að borða sykur. Ég
reyni að borða hann ekki í hvert mál
alla daga ársins, heldur spari.
Það felast nefnilega ákveðin lífsgæði í því að geta keypt sér föt án þess
að þurfa alltaf að troða sér í stærstu stærðina og sjálfstraustið eykst hjá
fólki þegar því líður vel. Ég þreytist ekki á að halda því fram að það sé
skemmtilegra hjá fólki með gott sjálfstraust því það leyfir sér að fram-
kvæma það sem hinir láta sér nægja að hugsa um.
Á dögunum kom út bókin Lág kolvetna lífsstíllinn eftir Gunnar Má
Sigfússon einkaþjálfara. Bókin rataði strax á metsölulista Eymundsson
og ekki leið á löngu þar til ljósabekkjabrúnn næringarfræðingur reis upp
á afturlappirnar og vísaði í löngu úreltan fæðupíramída. Sá ljósabekkja-
brúni vill endilega að við höldum áfram að dæla í okkur kornvörum og
sykri og vill meina að það sé bara della að hafa próteinið í fyrsta sæti.
Það sem er áhugavert við bók Gunnars Más er að hugmyndir hans um
mataræði eru ekki ósvipaðar hugmyndum Þorbjargar Hafsteinsdóttur.
Það sem Þorbjörg var að hugsa árið 2000 hefur því elst mun betur en
tískustraumar þess tíma.
Í vikunni var ég á fundi úti í bæ hjá stóru fyrirtæki og af einhverjum
óskiljanlegum orsökum bárust 15 ára gamlir tískustraumar í tal. For-
stjórinn lokaði umræðunni með þeim orðum að ég ætti endilega að taka
mynd af mér í dressi dagsins. Að fatasamsetningin væri alveg að gera sig
en bætti svo við: „Ég er samt ekki viss um að þú verðir jafn töff í þessum
fötum eftir 15 ár.“
Ég efast ekki um að það sé rétt hjá honum blessuðum en eitt er þó víst
að ef ég fylgi ráðum Þorbjargar er mun líklegra að ég komist í fötin eftir
15 ár. Mér finnst það vera lykilatriði …
martamaria@mbl.is
Mataræði
sem stenst
tímans tönn
Hress hópur í afmæli Skjás
eins árið 2000. Tískan hef-
ur haldið áfram.
Gamalt
og gott.
Mataræði sem
stenst tímans
tönn. Bók Gunn-
ars Más Sigfús-
sonar hefur sleg-
ið í gegn.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir var
ekki búin að skrifa þessa bók
þegar ég fór til hannar árið 2000.
Lífið er litríkt
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á Íslandi
Útsölustaðir:
Verslanir Húsasmiðjunnar, Verslanir ELKO , Byggt og Búið, Verslanir Ormsson, BYKOAkureyri,
Þristur, Hljómsýn, Geisli, Skipavík, Kaupfélag Skagfirðinga og Johann Rönning,
FOCUS
ÖFLUGI ORKUDRYKKURINN
Með koffín, gurarana og ginseng
– fyrir orku, úthald og einbeitingu
Góðar ástæður
a Áhrifarík innihaldsefni - virkar samstundis
a Freyðitöflur - 15 stk. Leystar upp í vatni
þegar þér hentar
a Aðeins 2 hitaeiningar í 100 ml
a Inniheldur „electrolytes” - gott fyrir
vökvajafnvægi líkamans
a Ótrúlegt verð
Hentar vel
a Fyrir allar aðstæður sem þú gætir þurft á
aukinni orku að halda
a Alltaf við hendina – heima, í vinnunni,
íþróttatöskunni, skólatöskunni, golfpokanum...
Fæst í helstu apótekum
brokkoli.is