Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 59
14.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Erfiði sem kemur á undan Kaupmannahöfn. (9)
4. Upp á skafa stara á þessum tíma? (10)
9. Steingrímur án mín finnur efnisyfirlit. (8)
11. Teikning Kana sýnir minnkun. (10)
12. Fáleiki er ekki hjá fugli. (5)
13. Frú Jósa náði að verða mjög kalt. (6)
15. Aðdáunarskrækur við rúmið kemur án þess að hvatt sé til
þess. (7)
17. Viðbótin við skáldið út af kíkinum. (10)
18. Tíu enskumælandi við gilið sjá að endingu menn sem bera á
milli. (10)
21. Fljótið ruglar það sem snertir. (7)
23. E í öðru veldi við sigti veldur sjúkdómnum. (6)
24. Hrópa á eftir stelpu. (5)
28. Var þjónn heila og það er hættulegt. (11)
29. Nakið rádýr finnur fæðu? (7)
31. Skást er að missa miðju fyrir reiða sem dragnast. (9)
32. Fór niður götu og eyðilagði. (10)
33. Varð verkfærataska purpurablá af klaufsku. (10)
34. Endið með urg með gömlu ensku sem er borgað. (11)
35. Dennis heldur það kósí við flækjast með erlendri. (10)
36. Skeljar sem við höfum tvær af. (8)
LÓÐRÉTT
1. Ekki er gott fyrir köku að vera mjög nákvæm. (8)
2. Austantjaldsmaður drepur í skemmtitækjum. (10)
3. Mætt þeim sem er hrifinn af kynlífi. (9)
5. Dóp á þann sem getur orðið af goðaættum. (9)
6. Binding kinda byggir á hreyfingu peninga. (11)
7. Í suðaustri lýsi vera dauft. (6)
8. Sorg af óhreinkun í tilraun. (6)
10. Borgaði gamall fréttamaður fyrir auðar. (8)
14. Afi frá Ólafsfirði sér fjarlægð frá sólu. (7)
16. Nafn á internetinu fæði á málmi. (6)
19. Eltum skartgrip á netinu að hitara. (7)
20. Yrt einhvern veginn á tengilið með gamanmálum. (11)
21. Hefur dagblað um ættfræði. (7)
22. Guð klárast mikið í fyrstu á vinnustað. (11)
25. Önnur útfylling á krossgátu leiðir til björgunar. (10)
26. Þýdd fær einfaldlega aðrar í lýsingu á söng. (9)
27. Falið hross með staf sem er galdratákn. (9)
29. Staður á höfuðkúpu sem oft er gott lesa yfir. (8)
30. Kært tré getur orðið hjá brottrekinni. (7)
Afrek Magnúsar Carlsens íáskorendamótinu, nýslegiðstigamet og aldeilis stór-
kostleg framganga á skáksviðinu
undanfarin misseri kallar á sam-
anburð við annan risa skáksög-
unnar, Garrí Kasparov, sem í dag,
13. apríl, fagnar 50 ára afmæli sínu.
Kasparov komst hæst í 2.851 elo-stig
en met Magnúsar stendur í 2.872
elo. Lengra nær samanburðurinn
ekki í huga margra. Þegar Kasparov
hætti opinberlega að tefla eftir sigur
á Linares-mótinu árið 2005 hafði
hann verið stigahæsti maður heims í
20 ár, teflt átta heimsmeistara-
einvígi, átti að baki óslitna sigur-
göngu á alþjóðlegum mótum og
skildi eftir sig frábært verk á sviði
skákbókmennta. Afskipti af fram-
kvæmdahlið skákarinnar eru hins
vegar umdeild; á pólitíska sviðinu
rússneska hefur fullvissa hans um
eigið ágæti ekki náð yfir til hátt-
virtra kjósenda og tveir hjónaskiln-
aðir gætu bent til þess að hann sé
ekki mjög auðveldur í sambúð;
fyrsta eiginkonan var „sett út á
stétt“ í miðju heimsmeistaraeinvígi í
London haustið 1993. Hvað varðar
snilldarverk hans við skákborðið þá
blikna bestu skákir Magnúsar Carl-
sens í samburði við snilldarverk
Kasparovs. Núverandi heimsmeist-
ari, Anand, var Kasparov aldrei mik-
il hindrun, staðan í viðureignum
þeirra er 29:16. Norðmaðurinn á þó
vinninginn á einu sviði; líkt og Fisch-
er teflir hann allar skákir í botn og
hann er líka heiðarlegri við skák-
borðið. Á vettvangi einvígja er hann
auðvitað óskrifað blað og hann verð-
ur ekki „gerður upp“ með sama
hætti og hinn fimmtugi Kasparov,
sem greinarhöfundur telur þrátt
fyrir allt mesta skákmann allra tíma.
Ef bera á fram mögnuðustu skák
Kasparovs stendur valið á milli
skáka nr. 16 í HM-einvígjum nr. 2 og
3. árin 1985 og ’86 og skákar sem
hann tefldi undir lok aldarinnar.
Kannski kvaddi „klassíska skákin“
20. öldina með þessari viðureign:
Wijk aan Zee 1999:
Garrí Kasparov – Veselin Topa-
lov
Pirc-vörn
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. Be3
Bg7 5. Dd2 c6 6. f3 b5 7. Rge2 Rbd7
8. Bh6 Bxh6 9. Dxh6 Bb7 10. a3 e5
11. 0-0-0 De7 12. Kb1 a6 13. Rc1 0-
0-0 14. Rb3 exd4 15. Hxd4 c5 16.
Hd1 Rb6 17. g3 Kb8 18. Ra5 Ba8 19.
Bh3 d5 20. Df4+ Ka7 21. Hhe1
Ólíkt því sem menn áttu að venjast
hafði Kasparov í raun ekki margt
fram að færa í byrjun þessarar skák-
ar. Staðan má heita í jafnvægi.
21. … d4 22. Rd5 Rbxd5 23. exd5
Dd6 24. Hxd4!
Fyrsta sprengjan fellur. Topalov
sá atburðarásina fyrir, gat valið
24. … Kb6! sem heldur öllu í horfinu
og sennilega gott betur en vildi láta
reyna á réttmæti fórnarinnar.
24. …cxd4
25. He7+!
Byggir á hugmyndinni 25. …
Dxe7 26. Db6+ Bb7 27. Rc6+ Ka8
28. Da7 mát.
25. … Kb6 26. Dxd4 Kxa5 27. b4+
Ka4 28. Dc3! Dxd5 29. Ha7! Bb7
Þvingað þar sem 29. … Hd6 er
svarað með 30. Kb1 sem hótar 31.
Db3+ og mátar.
30. Hxb7 Dc4 31. Dxf6 Kxa3 32.
Dxa6 Kxb4 33. c3+! Kxc3 34. Da1+
Kd2 35. Db2+ Kd1 36. Bf1! Hd2
37. Hd7!!
„Hann er skrímsli með þúsund
augu og þau sjá öll.“ – Tony Miles.
Kasparov mun að eigin sögn hafa
séð þessa stöðu og þennan leik fyrir
er hann lék 24. Hxd4.
37. … Hxd7 38. Bxc4 bxc4 39.
Dxh8 Hd3 40. Da8 c3 41. Da4 Ke1
42. f4 f5 43. Kc1 Hd2 44. Da7
– og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
SKÁK
Besti skákmaður allra tíma
Verðlaun eru veitt fyrir
krossgátu vikunnar.
Senda skal þátttökuseðil
í umslagi merktu:
Krossgáta Morg-
unblaðsins, Hádeg-
ismóum 2, 110 Reykja-
vík. Frestur til að skila
úrlausn krossgátu 14.
apríl rennur út á hádegi
19. apríl. Vinningshafi
krossgátunnar 7. apríl
er Brynjólfur Magn-
ússon, Lynghaga 2,
Reykjavík. Hann hlýtur í
verðlaun bókina Skýrsla 64 eftir Jussi Adler Olsen.
Forlagið gefur bókina út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang