Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Blaðsíða 34
*Græjur og tækniAllir ættu að geta búið til eigin heimasíðu Einföld umsjónarkerfi fyrir vefsíður víða »37
Það er kannski til marks um nýja tíma á fjarskiptamarkaði á Íslandiað annað fyrirtæki en Síminn sé fyrst með nýja tækni – Nova varðfyrst fyrirtækja til að kynna tilraunaþjónustu fyrir fjórðu kynslóð
farsímakerfa, þá sem kallast jafnan 4G, og 4.4. síðastliðinn, kl. 4.04,
nema hvað, opnaði Nova 4G net sitt fyrir viðskiptavinum.
„Fjórða kynslóðin er framtíðin,“ segir í fyr-
irsögn sem birtist í Morgunblaðinu á síðasta
ári, en það hefur þó tekið tímana tvo að koma
4G þjónustu á hér
á landi. Fréttin
a tarna birtist
einmitt í til-
efni af því að
Póst- og fjar-
skiptastofnun
kynnti loks
útboð á tíðni-
heimildum fyrir 4G-þjónustu, en þess
má geta að eitt símafyrirtækjanna ís-
lensku, Nova byrjaði með 4G tilraunir
haustið 2011 og margir orðnir langeygir
eftir þjónustunni.
Ég hafði nasasjón af tilraunum þeirra
Nova-manna á 4G á sínum tíma, fékk kynningu hjá Nova og síðan lán-
aðan netpung. Framan af var sambandið aðeins á tilteknum svæðum í
Reykjavík, en er nú komið út um allt höfuðborgarsvæðið og ég get borið
vitni um það að 4G náðist býsna vel á heimaslóðum mínum í Hafnarfirði,
framúrskarandi vel í 101 í Reykjavík og mjög vel í Árbænum. Græjurnar
sem ég prófaði voru það sem Nova menn kalla Box, þráðlaus beinir með
WiFi nettengingu og einnig LAN- og símatengi, og svokallaða Hnetu,
lítinn ferðabeini sem allt að fimm tæki geta notað í einu (sjá mynd).
Gagnaflutningar um 4G eru umtalsvert hrað-
virkari en um 3G kerfi enda er það hannað til
að flytja gögn fyrst og fremst, símaþjón-
ustan er nánast aukageta (sem rímar við
það að ekki nema um 20% af daglegri
notkun farsíma er símtöl). 4G-kerfi bjóða
upp á allt að 100 Mb á sek. á sek gagna-
flutning í dag (deilið með 8 til að fá út
MB), sem er nokkuð meira en boðið er
upp á í dag í ADSL-kerfum svo dæmi
sé tekið, en báðum tilfellum, bæði með
4G og ADSL, er miðað við bestu skil-
yrði og aðstæður. Þess bera að geta að
þegar 4G græja nær ekki 4G-sambandi
skiptir hún sjálfkrafa yfir í 3G.
NÝIR TÍMAR Á FJARSKIPTAMARKAÐI
NOVA BRAUT BLAÐ Í ÍSLENSKRI SÍMASÖGU UM DAGINN ÞEGAR FYRIRTÆKIÐ KYNNTI 4G ÞJÓNUSTU SÍNA FYRST
SÍMAFYRIRTÆKJA. 4G, EÐA FJÓRÐA KYNSLÓÐ SÍMKERFA, BÝÐUR MARGFALDAN HRAÐA SAMANBORIÐ VIÐ 3G.
* Aftan á boxinu er tengingfyrir netsnúru, Ethernet-tengi
(LAN), en því miður aðeins eitt.
Til þess að ná hámarkshraða alla
leið þarf maður eiginlega að vera
með netsnúru frá beini í tölvu,
annars verður þráðlausa netið
flöskuháls. (WiFi 802.11g er með
að hámarki 54 Mb á sek, en í
raun um 22 Mb á sek.) Ég hefði
viljað hafa fleiri Ethernet-tengi.
* Vissulega er hvert megabætidýrara í 4G-kerfi en í ADSL við
fyrstu sýn, en ekki má gleyma að
taka með í reikninginn línugjald
vegna ADSL-þjónustu, leigu á
beini og oftar en ekki gjald fyrir
heimasíma. Sá sem er með 4G
farsíma eða spjaldtölvu, nú eða
fartölvu, þarf ekki að borga nema
fyrir gögnin og getur verið hag-
stætt þegar upp er staðið.
* Ég rakst á þá samlíkinguað líkja megi 4G við þyrlu, en
ADSL við vegi; 4G sé ekki bundið
af línum og beinum, en flutningur
um ADSL öruggari. Þeir sem eru
orðnir leiðir á að bíða eftir ljós-
leiðara ættu að skoða 4G.
ÁRNI
MATTHÍASSON
Græja
vikunnar
V
ið vildum kvikmynda sem mest án þess að nota
tölvutæknina þannig að okkur fannst rökrétt að
smíða geimskipið í fullri stærð,“ segir Joseph Kos-
inski leikstjóri kvikmyndarinnar Oblivion sem beðið
er með mikilli eftirvæntingu hér á landi.
Tæknin á bak við eina Hollywood-risamynd er gríðarleg
en meðal annars hannaði fólkið á bak við myndina nýtt hljóð-
kerfi. Skiptu út Dolby digital yfir í Dolby Atmos sem á að
skila sér í betri hljómgæðum. Nýverið kom út kynning-
armyndband þar sem farið er yfir tæknina á bak við mynd-
ina.
Téð geimskip hefur fengið mesta hrósið. Enda átti aðal-
leikarinn, Tom Cruise, vart orð þegar hann sá skipið í fyrsta
sinn. Sjálfur hafði hann sitt hvað að segja með hönnun skips-
ins enda vanur flugmaður. „Hann kom nálægt því hvar takk-
arnir væru, hvar fótstigið væri og stýrið líka. Hann vildi að
þetta liti sem best út í myndinni,“ bætti Kosincy við. „Þarna
er hugsað út fyrir kassann. Allt er glæsilegt við þetta skip.
Hönnunin er frábær og manni fannst þetta vera skip úr
framtíðinni,“ sagði Cruise.
Smíðað var eitt stórt skip og flugstjórnarklefi sem var á
tjökkum sem gátu snúið skipinu í allar áttir hratt og örugg-
lega.
Olga Kurylenko sem leikur í myndinni var hrædd þegar
hún prófaði þetta í fyrsta sinn. „Hún segir ábyggilega núna
að hún hafi ekki verið hrædd en ég get alveg staðfest að hún
var mjög hrædd,“ sagði Cruise í myndbandinu.
„Þetta er mjög fallegt skip þegar það stendur á jörðinni
og er kyrrt en það var ekkert sérstakt að vera þarna inni í
klefanum þegar það snérist í allar áttir,“ sagði Olga.
Geimskipið og mótorhjólið sem voru sérhönnuð fyrir myndina. Bláskjár og flugstjórnarklefi. Toppblanda.
Geimskipið naut sín í íslenskri náttúru.
TÆKNIN Á BAK VIÐ OBLIVION
Smíðuðu geimskip
í fullri stærð
ÞEGAR HOLLYWOOD ER ANNARSVEGAR ER ALMENNT EKKI FARIÐ HÁLFA LEIÐ. FÓLKIÐ Í HOLLY-
WOOD FER ALLA LEIÐ. Í MYNDINNI OBLIVION, SEM TEKIN VAR UPP AÐ MIKLU LEYTI HÉR Á LANDI,
VAR ÁKVEÐIÐ AÐ SMÍÐA HEILT GEIMSKIP. ALLT FYRIR MYNDEFNIÐ.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Tom Cruise og leikstjórinn Joseph Kosinski á góðri stundu.