Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Síða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Síða 38
*Föt og fylgihlutir Kate Middleton hertogaynja hefur klæðst kápum undanfarið enda lætur vorið bíða eftir sér »40 Ein klassísk – hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Held að bestu fatakaupin sem ég man eftir í augnablikinu sé Armani Exchange-úlpa sem ég keypti mér í London í vetur. Elska hana. En þau verstu? Verstu eru sennilega grænn Ever- last-jogginggalli sem ég keypti mér þegar ég var svona 13 ára. Guð minn góður hvað hann var ljótur. Hvar kaupir þú helst föt? Hérna heima versla ég aðallega í Vero Moda, Gallerí 17, Kiss Kringl- unni og Júník Smáralind. Úti versla ég mikið í Forever 21 og þannig búðum. Armani Exhange er líka í mjög miklu uppáhaldi. Hver er flottasta búð sem þú hef- ur komið í? Flottasta búð sem ég hef komið inn í er sennilega Louis Vuitton-búð í Kína. Hún var á mörgum hæðum og algjörlega geðveik. Manstu eftir einhverjum tískuslys- um sem þú tókst þátt í? Þau hafa nú verið nokkur en ætli ég nefni ekki bara fjólubláu Buffalo- skóna mína sem ég gekk mikið í þegar ég var unglingur. Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Ég hef helst í huga þegar ég vel föt að ég fíli mig í þeim. Ætli það sé ekki svona það sem ég spái oftast í. Litadýrð eða svart/hvítt? Svart og hvítt. Ég er ekki mikið í litum en bleikt er samt í mjög miklu uppáhaldi, annars geng ég ekki mikið í litum. Hefurðu augastað á einhverju fal- legu fyrir sumarið? Já, langar í nýja fallega bleika arm- bandið fra Sif Jakobs. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Nicole Scherzinger. Hún er svo flott og með mjög góðan stíl. Áttu þér einhvern uppáhalds- fatahönnuð? Ég á mér engan sérstaka fatahönn- uð, en ég á mér nokkra uppáhalds þegar kemur að fylgihlutum, tösk- um, úrum og skarti, og þá aðallega Sif Jakobs, Bulgari, Louis Vuitton og Michael Kors. Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgi- hlut myndirðu kaupa? Úff, það er svo margt sem ég myndi kaupa. Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til árs að eigin vali og þú fengir dag til að versla, hvaða ár myndirðu velja og hvert færirðu? Ætli ég myndi ekki bara velja árið 2012 þegar ég fór í verslunarmið- stöð í San Francisco, væri til í það aftur. Sigurlaug Dröfn Bjarnadóttir. Ein sú færasta í sínu fagi. Morgunblaðið/Rósa Braga Hver getur gleymt Buffalo-skónum? Ekki nokkur maður. Sif Jakobs hönnuður. Nicole Scherzinger er töffari. Louis Vuitton-búðin í Kína er flottasta búð sem Sigurlaug hefur komið í. SIGURLAUG DRÖFN FÖRÐUNARFRÆÐINGUR Átti eitt sinn fjólubláa Buffalo-skó SIGURLAUG DRÖFN BJARNADÓTTIR, HÁRGREIÐSLUNEMI OG FÖRÐUNARFRÆÐINGUR, ER NÝKOMIN FRÁ LOS ANG- ELES ÞAR SEM HÚN FARÐAÐI SJÁLFA INGRID ROMERO FITNESS-DROTTNINGU. SILLA ER SMEKKKONA SEM HEFUR ÞÓ GENGIÐ UM Í BUFFALO-SKÓM. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.