Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Side 42
*Fjármál heimilannaNeytandi vikunnar segist frekar kaupa slátur fyrir hundinn en hundamat því það sé ódýrara
Björk Jakobsdóttir, leikkona og höf-
undur leikverka, er hætt að nenna að
reikna út hvað hún eyðir miklu í mat.
Hún reynir bara að spara eins og hún
getur.
Til heimilismanna og gæludýra teljast
4 manneskjur, ein tík, fjórir hestar og
sá fimmti er á leiðinni.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, ost og skinku.
Hvað fer fjölskyldan með í mat
og hreinlætisvörur á viku? Alltof
mikið, er hætt að nenna að reikna það
út. Reyni bara að spara eins og ég get.
Hvar er helst keypt inn? Bónus,
Fjarðarkaup og Krónan. Myndi versla
meira í Krónunni og Fjarðarkaup ef
þeir væru ekki með svona rándýran
hundamat. Það er ódýrara að kaupa
slátur fyrir hundinn en hundamat í
Krónunni og Fjarðarkaup. Bónus klár-
lega malar verðlagningu í hundamat,
þess vegna fer ég oftast þangað af því
að ég nenni ekki að fara í margar versl-
anir til að kaupa í matinn.
Hvað freistar helst í mat-
vörubúðinni? Allt gúrmei-dótið sem
þeir bjóða upp á í Fjarðarkaup. Elska
heilsu- og lífrænu vörurnar. Vildi bara
óska að verðið væri þannig að al-
menningur hefði efni á að kaupa það
oftar
Hvernig sparar þú í heim-
ilishaldinu? Með því að hafa allt
heimilisfólk í stanslausri megrun!! Nei
djók. Aldrei fara svangur í búðina, ekki
gera magninnkaup af því það skemmist
bara. Kaupa bara það sem maður þarf
hverju sinni . Læra svo að búa til góðar
eggjakökur úr afgöngum.
Hvað vantar helst á heimilið?
Heimilisþrif! … en ég bara tími ekki að
borga fyrir það og eyði því töluverðum
tíma í að röfla og hafa áhyggjur af því að
það sé ekki nógu vel þrifið heima hjá
mér
Eyðir þú í sparnað? Já, ég eyði í
sparnað. Ég nenni ekki að vinna eins og
geðsjúklingur níræð í göngugrind. Upp-
hæðin sem gæti farið í heimilisþrif fer í
sparnað. Ég vil frekar hafa ryk í glugga-
kistum en að þurfa að hafa áhyggjur af
því hvaða leikrit ég set upp næst 95
ára. Þó ég sé hress, sexý og svaka ung-
leg þá veit ég ekki hverjir nenna að
koma að horfa á mig leika tíræðisaldri.
Skothelt sparnaðarráð: Skella
sér á Blakkát í Gaflaraleikhúsinu. Ódýr
leikhúsmiði með fullt af hlátri og sparar
rándýra sálfræði- og áfengismeðferð.
NEYTANDI VIKUNNAR BJÖRK JAKOBSDÓTTIR
Eyðir of miklu
Björk eyðir frekar í röfl en peningum í heimilisþrif.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Matvöruverslunin Kostur hefur
verið til fyrirmyndar í matvöru-
tilboðum. Alla virka daga er til-
boð á matvörum. Á mánudögum
er tilboð á nautahakki, 697 krón-
ur kílóið, á þriðjudögum er tilboð
á mjólk, öllum sortum og er
verðið 80 krónur á lítrann.
Á miðvikudögum er heill kjúk-
lingur á tilboðsverði eða 589
krónur kílóið. Fimmtudagar eru
ávaxta- og grænmetisdagar en þá
býðst valið grænmeti og ávextir
með 50% afslætti. Á föstudögum
er boðið upp á 4 hamborgara, 4
brauð og 2 lítra flösku af Pepsí á
699 kr.
Kosturinn við þessi tilboð er að
þau eru alltaf í gangi og neytendur
ganga að þeim vísum.
Sparað með fatalit
Ef fólk á uppáhaldsgallabuxur,
þessar einu réttu sem draga fram
allar bestu hliðar eigandans er
hægt að hressa upp á útlit þeirra
með því að fjárfesta í fatalit sem
var besti vinur þeirra fatasjúku
hér á árum áður. Þetta sparnaðar-
ráð og fleiri má finna í bókinni Þú
ert snillingur. Þó er tekið fram
að hafa skal í huga að ef buxurnar
eru orðnar slitnar þá er ekki víst
að aðgerð þessi sé ráðleg heldur
sé eina ráðið að kaupa nýjar.
Fatalit er oft að finna í efnalaug-
um.
púkinn
Aura-
Fín tilboð
hjá Kosti
S
íðustu ár hafa æ fleiri bíl-
eigendur nælt sér í svo-
kallaðan bensínlykil, vild-
arkerfi olíufélaganna sem
veitir afslátt af lítraverði elds-
neytis. Kosturinn við að hafa slík-
an lykil undir höndum er sá að
afslátturinn kemur fram strax við
dæluna. Þá eru kaupin skuldfærð
beint af reikningi viðkomandi og
því engin ástæða til að þvælast
með veskið á bensínstöðina og í
sumum tilfellum fást vildarpunktar
fyrir viðskiptin sem hægt er að
nota til kaupa á vöru og þjónustu
hjá viðkomandi félagi.
En er allt sem sýnist í þessum
málum? Ef olíufélögin hafa efni á
að veita afslátt allt upp í 12 krón-
ur af lítranum, hvers vegna er
verðið ekki einfaldlega lækkað til
allra sem þessu nemur því svo
virðist að svigrúm sé til verðlækk-
unar?
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, var inntur
álits á þessum málum.
„Samkeppnin í dag milli félag-
anna kemur fyrst og fremst fram
í afsláttarlyklunum. Ég merki það
með því að þegar lyklarnir fóru
að vera áberandi hækkaði með-
alálagning olíufélaganna. Flestir
eru með 3 krónur í afslátt en svo
er það allur gangur á því hvaða
kjör fólk er með og við hvaða
verð er miðað. Sumir miða við
lægsta verð eins og atvinnubíl-
stjórar sem eru kannski með 10
krónur í afslátt frá því verði og
svo eru aðrir sem miða afsláttinn
við verð á heimasíðu viðkomandi
félags svo dæmi sé tekið. Ég
myndi segja að kerfi sem þetta
dragi úr gagnsæi við verðmyndun
eldsneytis.“
Alltaf einhverjir sem
greiða fullt verð
„Það eru alltaf einhverjir sem
borga fullt verð alveg eins og var
með byggingarvöruverslanirnar
hér áður fyrr. Iðnaðarmenn fengu
ríflegan afslátt af vörum en svo
komu Jón og Gunna úti í bæ inn í
verslunina og greiddu fullt verð
fyrir sömu vöru. Þetta breyttist
svo allt þegar nýr aðili kom inn á
markaðinn og hinir lækkuðu þá
afsláttinn og líka verðið almennt.
Allir högnuðust á því.“ Segir Run-
ólfur.
„Annað sem hefur breyst er að
verðmunurinn milli stöðva og
þeirra sem bjóða fulla þjónustu og
sjálfsafgreiðslustöðva er mjög lítill.
Hann er ekki nema 20-30 aurar á
milli stöðva. Í október 2007 mun-
aði 2 krónum á lítranum eftir því
hvort menn völdu þjónustu- eða
sjálfsafgreiðslustöð,“ segir Run-
ólfur Ólafsson að lokum.
SAMKEPPNI Á ELDSNEYTISMARKAÐI
Bensínlyklar,
böl eða blessun?
SAMKEPPNI MILLI OLÍUFÉLAGA FER FRAM Í FORMI AFSLÁTTARLYKLA. FRAMKVÆMDASTJÓRI FÍB SEGIR LÍTINN MUN ORÐ-
INN Á ÞVÍ AÐ TAKA ELDSNEYTI Á STÖÐVUM MEÐ ÞJÓNUSTU OG SJÁLFSAFGREIÐSLUSTÖÐVUM.
Hólmfríður Þórisdóttir holmfridur.thoris@gmail.com
Margir eru ósáttir við bensínverð og litla samkeppni olíufélaganna.
Morgunblaðið/Kristinn