Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Side 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2013 Menning Þ etta eru nýjar hugmyndir, ný stef og tilraunir, út frá tengingum tónlistarinnar við upplifanir mínar og hughrif,“ segir Stefán S. Stefánsson, saxófónleikari og tónskáld. Stórsveit Reykjavík- ur leikur á sunnudag klukkan 16 í Kaldalónssal Hörpu heila efnisskrá nýrra verka hans undir yfirskriftinni „Íslendingur í Alhambrahöll“. Stefán segir nálgun sína við að semja og útsetja verkin ólíka því sem hann hefur áður gert, en titillinn er sóttur í þá upplifun hans að vera staddur í þrúgandi hita í hópi ferðamanna sem eru að skoða merkar menningarminjar í Granada á Spáni. „Stundum er eins og tilveran sé lagskipt; eitt lagið er ferðamennirnir gólandi og takandi myndir, svo er það hit- inn og aðstæðurnar og undir þeim lögum eru fornminj- arnar og sagan. Mig langaði að setja þessa skynjun á veruleikanum inn í tónlistina. Slík upplifun stýrði tónrænni framvindu verkanna frekar en hefðbundinn tónlist- ardrifkraftur. Ég gaf mér mikið frelsi innan þessarar nálgunar.“ Stefán segir að vissulega sé þó ýmislegt í útfærslu verkanna samkvæmt hefðinni. „Ég var ekki vísvitandi að reyna að gera eitthvað alveg nýtt tónlistarlega heldur langaði mig að vera með nýjungar við að nálgast músík- ina. Við það spratt ýmislegt fram sem mig grunaði ekki að væri til staðar – það var skemmtileg vegferð.“ Stærsti hluti efnisskrárinnar varð til á undanförnum mánuðum, sérstaklega fyrir þetta verkefni. Stórmerkileg saga Stefán segir stórsveit vera gríðaröflugt og spennandi hljóð- færi og að innan ólíkra stíla stórsveitartónlistar sé fjöl- breytileg flóra. „Þegar minnst er á stórsveitartónlist koma stórmeistarar eins og Count Basie og Duke Ellington fyrst upp í hug- ann, en þetta er gríðarlega mikil saga, eins og kom vel fram á síðustu tónleikum Stórsveitarinnar sem Sigurður Flosason stjórnaði, um sögu stórsveita,“ segir hann. „Þeg- ar maður hefur spilað þessa tónlist lengi, hefur hlustað á hana og reynt að tileinka sér stílana, þá skynjar maður sífellt betur hvað þetta er stórmerkileg saga.“ Sem dæmi um fjölbreytileikann nefnir Stefán að fyrir utan að leika gamla sem nýja stórsveitartónlist, hefur Stórsveit Reykjavíkur leikið efnisskrár með tónlist Bjarkar Guðmundsdóttur, Bubba Morthens, Eivarar Pálsdóttur og Sálarinnar – það sé rými fyrir þetta allt. Snillingurinn Gunnar Ormslev Stefán byrjaði ungur að læra á þverflautu, svo tók við saxófónnám hjá Gunnari Ormslev og nám við Berklee Col- lege of Music í Boston. Hann hefur leikið með ýmsum dans- og djasshljómsveitum, hefur samið fjölbreytilega tón- list og útsett, auk þess að starfa sem kennari; hann er skólastjóri Tónlistarskóla Árbæjar. „Ég hef haft ánægju af þessu öllu saman, að svo miklu leyti sem þetta er í jafnvægi,“ svarar hann þegar spurt er hvað sé skemmtilegast, að spila, semja eða kenna. „Ef ég spila mjög mikið, eða kenni mjög mikið, þá er eins og ég fari yfir kvótann. Þetta er jafnvægislist. Ég vil heldur ekki sitja einn alla daga við að semja og gera ekkert ann- að.“ Hann segir það hafa verið mikla upplifun að læra hjá saxófóngoðsögninni Gunnari Ormslev. „Hann var ekkert nema hógværðin. Þá var ég farinn að spila svolítið og fannst hann hafa einstaklega gott viðhorf til tónlistar. Við spjölluðum mikið um Stan Getz og sam- eiginlegar hetjur. Svo kenndi hann mér nokkur trikk sem ég nota ennþá, eins og við fingrasetningar á saxinn. Ég held að menn hafi almennt ekki enn áttað sig á því hvílíkur snillingur Ormslev var. Hann var stórkostlegur spilari en menn áttuðu sig ekki á því hvað þeir höfðu í höndunum á þeim tíma. Það voru margir frábærir tónlist- armenn af kynslóð Gunnars Ormslev, og þeir bjuggu því miður við annan veruleika en við í dag.“ Kynni Stefáns af djassi hófust þegar Bjarni bróðir hans, núverandi sýslumaður á Blönduósi, fór að bera heim plöt- ur á unglingsárum. „Þar á meðal voru plötur með Buddy Rich-bandinu og Jimmy Smith orgelleikara með George Benson á gítar. Ég komst í þessar plötur ellefu og tólf ára gamall og varð hugfanginn af tónlistinni. Ég eignaðist líka vini sem ánetjuðust þessari dellu líka; maður var svo- lítið út úr kú sem unglingur, hlustandi á Coltrane,“ segir hann og brosir. Mikilvæg viðurkenning Stefán byrjaði ungur að elta FÍH-bigbandið eins og „trygglynd grúppía! Sjálfur spilaði ég fyrst í áhugamanna- stórsveit og þegar ég fór að læra í Bandaríkjunum spilaði ég í stórsveitum, meðal annars hjá mönnum sem höfðu verið einleikarar í frægum hljómsveitum.“ Eftir að Stefán lauk námi hélt hann tónleika í Norræna húsinu með „litlu bigbandi“ með frumsömdu efni, og þar hófst sú vegferð. Í kjölfarið samdi hann og útsetti fyrir Léttsveit Ríkisútvarpsins og síðar fyrir Stórsveit danska útvarpsins. En nú semur hann fyrir „hina húshljómsveitina í Hörpu“. Voru það ekki tímamót þegar Stórsveit Reykja- víkur fékk þar inni? „Það var mikilvæg viðurkenning á starfi hljómsveit- arinnar og ekki síður viðurkenning á þessari tónlist, sem er gríðarlega margbreytileg og krefjandi. Stórsveitin hefur styrkst gríðarlega og er alveg hörkusveit, skipuð þrælgóð- um músíköntum.“ Tónskáldið með hornið. „Það var mikilvæg viðurkenning á starfi hljómsveitarinnar og ekki síður viðurkenning á þessari tónlist, sem er gríð- arlega margbreytileg og krefj- andi,“ segir Stefán S. Stef- ánsson um þau tímamót þegar Stórsveit Reykjavíkur fékk inni í Hörpu. Morgunblaðið/Einar Falur STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR FLYTUR EFNISSKRÁ MEÐ NÝJUM VERKUM EFTIR STEFÁN S. STEFÁNSSON Stórsveit er öflugt hljóðfæri STEFÁN S. STEFÁNSSON BYGGÐI NÝ TÓNVERK Á SKYNJUN SINNI Á VERULEIKANUM OG FLYTUR STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR ÞAU UNDIR HANS STJÓRN. HANN FÉLL UNGUR FYRIR DJASSINUM. „MAÐUR VAR SVOLÍTIÐ ÚT ÚR KÚ SEM UNGLINGUR, HLUSTANDI Á COLTRANE,“ SEGIR STEFÁN. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is * Ég komst í þessar plöturellefu og tólf ára gamall ogvarð hugfanginn af tónlistinni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.