Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 2

Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þökulagnir - Sólpallasmíði - Hellulagnir ofl. Haraldur Hjálmarsson, ljósmyndari um borð í Áskeli EA, tók þessa mynd af ísjökum á Hala- miðum í gær. Halamið eru fiskimið við enda Djúpáls sem liggur út frá Ísafjarðardjúpi norð- vestur af Vestfjörðum. Áætlaður ísjaðar er 39 sjómílur út af Gelti, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Búist er við norðan- og norð- austanáttum næstu daga þannig að ísinn ætti heldur að fjarlægjast landið. Hafís vekur athygli sjómanna á Halamiðum Ljósmynd/Haraldur Hjálmarsson Hafís við enda Djúpáls sem liggur út frá Ísafjarðardjúpi norðvestur af Vestfjörðum BAKSVIÐ Lára Halla Sigurðardóttir larahalla@mbl.is Innanríkisráðuneytið leggur til að tímabundin stöðugildi fjögurra lög- fræðinga vegna sérstaks átaks í stjórnsýslu- og búsetumálum hælis- leitenda verði framlengd. Þetta kemur fram í minnisblaði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innan- ríkisráðherra til ríkisstjórnarinnar um stöðu hælismála hér á landi sem kynnt var á Alþingi í gær. Átak til úrbóta Í upphafi árs 2013 varð mikil fjölg- un umsókna um hæli á Íslandi. Í kjöl- farið samþykkti ríkisstjórnin þá tillögu Ögmundar Jónassonar, þá- verandi innanrík- isráðherra, að efna til sérstaks átaks í stjórn- sýslu- og búsetu- málum hælisleit- enda. Markmiðið var tvíþætt, ann- ars vegar að stytta málsmeðferðar- tíma og ná niður fjölda mála sem voru til meðferðar hjá stjórnvöldum og hins vegar að setja fram tillögur um skilvirkara fyrirkomulag til framtíð- ar. Ráðinn var verkefnisstjóri, skipuð verkefnisstjórn og stöðugildum fjölg- að tímabundið um fjögur til fjögurra mánaða, tvö hjá Útlendingastofnun og tvö hjá innanríkisráðuneyti. Kostnaður lækkar Verkefnisstjórn átaksverkefnisins leggur nú lokahönd á greiningu á nú- verandi stöðu og verða tillögur til úr- bóta kynntar fljótlega. Lagt er til að tímabundin stöðugildi lögfræðinganna fjögurra verði fram- lengd til næstu áramóta. Kostnaður vegna þessarar fram- lengingar er áætlaður 13,8 milljónir króna og jafnframt er reiknað með 5 milljónum vegna verkefnastjórnunar og áframhaldandi vinnu við að koma á umbótum í málefnum hælisleitenda. Lagt er til að fjárveitingin, samtals 18,8 milljónir, komi af fjárlagalið hæl- isleitenda. „Við erum að hraða málsmeðferð, tryggja að hælisleitendur þurfi að bíða skemur og þá lækkar kostnaður- inn,“ segir Hanna Birna Kristjáns- dóttir innanríkisráðherra um tillögur sem koma fram í minnisblaðinu. Í minnisblaðinu segir að með sam- þykkt þessara tillagna verði unnt að halda átakinu áfram, stytta málsmeð- ferðartíma og draga þannig úr kostn- aði sem af langri málsmeðferð hlýst. Á móti komi umtalsverður sparnaður sem felst í styttri málsmeðferð. Ráðu- neytið mun í haust móta stefnu til framtíðar um fyrirkomulag hælis- mála á grundvelli tillagna verkefnis- stjórnar átaksverkefnisins. Lengja átak í hælismálum  Fjórir lögfræðingar starfa áfram vegna hælismála  Verkefnisstjórn skilar fljótlega tillögum  Auka fjármagn til að stytta tíma málsmeðferðar hælisleitenda Hanna Birna Kristjánsdóttir „Það er eins og ekkert hafi verið slegið, ef maður keyrir um borgina,“ segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir, skrifstofustjóri á umhverfissviði hjá Reykjavíkurborg, en hún segir or- sakavaldinn vera mikla vætutíð. „Við höfum verið heppin síðustu ár þar sem lítið hefur rignt en nú hefur bara rignt og rignt og það flækir hlutina.“ Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa nú þegar slegið grasið í stórum hluta borgarinnar einu sinni en á minni svæðum er ennþá verið að vinna í fyrstu umferð. Guðjóna segir grasið vaxa hratt í slíku árferði og að sláttudeildin komist hægar yfir en ella þegar blautt gras er slegið. „Nú er allt okkar fólk og öll okkar tæki algjörlega á fullu að reyna að koma þessu í rétt horf. Við biðjum fólk um að sýna þolinmæði í ljósi stöðunnar en hingað til hefur fólk verið mjög umburðarlynt.“ jonheidar@mbl.is „Eins og ekkert hafi verið slegið“ Morgunblaðið/Golli Órækt í Reykjavík Hátt gras getur valdið vegfarendum vandræðum.  Mikil vætutíð veldur vandræð- um  Allt á fullu Annarri umræðu um frumvarp um lækkun veiðigjalda lauk um klukk- an tíu í gærkvöldi. Umræður um frumvarpið hafa staðið í rúmlega 21 klukkustund, þ.e. fyrsta og önn- ur umræða. Fluttar hafa verið 54 þingræður og 145 athugasemdir. Ræðutími við þriðju og síðustu umræðu verður mun styttri vegna ákvæða í þingskapalögum. Sá sem talað hefur lengst er Steingrímur J. Sigfússon, fyrrver- andi atvinnuvegaráðherra, sem tal- aði samtals í 106 mínútur. Næstur honum kom Jón Gunnarsson, for- maður atvinnuveganefndar, sem talaði í 79 mínútur. Annarri umræðu lauk í gærkvöldi Píratar stinga saman nefjum. Á fyrri helmingi þessa árs hefur ákvörðunum og úr- skurðum stjórnvalda fjölgað umtalsvert frá síðasta ári. Á fyrstu fimm mánuðum þessa árs tók Útlendingastofnun 92 ákvarðanir á móti 70 ákvörð- unum allt árið 2012. Þá voru úrskurðir ráðuneytisins 57 hinn 1. júní síðastliðinn á móti 30 úrskurðum allt árið í fyrra. Á sama tíma hefur náðst árangur í að stytta meðalmálsmeðferðartímann. Á fyrstu fimm mánuðum árs- ins hefur hann styst um 155 daga, miðað við árið 2012, og farið úr 548 dögum í 393 daga. Stytta máls- meðferðina BIÐIN ÚR 548 Í 393 DAGA Drengurinn sem féll fram af þaki skólabyggingar í Hafnarfirði síð- astliðinn miðvikudag liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans. Samkvæmt upplýsingum frá lækni á gjörgæslu er líðan hans stöðug en honum er haldið sofandi í önd- unarvél. Drengurinn sem er átta ára gam- all var fluttur alvarlega slasaður á Landspítalann eftir að hafa fallið átta metra. Líðan stöðug en haldið sofandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.