Morgunblaðið - 03.07.2013, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.07.2013, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur LEGUR Í BÍLA OG TÆKI www.falkinn.is Það borgar sig að nota það besta! th or ri@ 12 og 3. is /3 1. 31 3 TRAUSTAR VÖRUR ...sem þola álagiðKúlu- ogrúllulegur Einar Birnir ritar mér bréf sem birtist í Morgunblaðinu í gær, mánudag 1. júlí, undir fyrirsögninni „Á flótta – lítið bréf til Guðjóns Brjánssonar“. Bréfið er hlaðið talsvert heit- um tilfinningum og væntumþykju eins og eðlilegt er í þessu samhengi en í ein- hverjum atriðum sést bréfritari ekki alveg fyrir hvað varðar stað- reyndir. Rétt er og satt að ég var í tveggja vikna sumarleyfi í júní. Það var e.t.v. djarfur leikur og ábyrgð- arleysi í ljósi ummæla Einars Birn- is. En ég naut reyndar stundanna með ágætum og ég vona sannarlega að allt mitt samstarfsfólk muni einnig eiga þess kost í sumar. Það er vel að því komið. Það er erfitt þegar veikindi steðja að og einstaklingar verða fyrir heilsubresti. Það þekkjum við sem störfum í heilbrigðisþjónustu. Við leggjum okkur fram um að leysa vanda þeirra sem í hlut eiga eins vel og í mannlegu valdi stend- ur. En það er ekki á allt kosið og undanfarin misseri hafa verið afar krefjandi fyrir starfsmenn í heil- brigðisþjónustu, skipuleggjendur og ábyrgðaraðila. Allt heilbrigð- iskerfið hefur verið undir miklu álagi. Grípa hefur þurft til áður óþekktra aðgerða og huga að nýj- um leiðum í þeirri viðleitni að tryggja íbúum örugga og nauðsyn- lega þjónustu. Því er ekki að neita að þetta hefur leitt til þess að í stöku tilvikum hefur þetta orðið nokkuð á kostnað þæginda í nán- asta umhverfi þjónustuþega. Það er miður en öryggi, góð þjónusta og viðmót eru hins vegar markmið sem hvergi er hvikað frá. Undanfarin sumur hefur sjúkra- deild HVE í Stykkishólmi verið lok- uð um nokkurra vikna skeið yfir sumarmánuðina. Í ár eru þetta fimm vikur. Þjónusta heilsugæslu er þó með óbreyttum hætti um allt Vesturland. Gripið er til þessara úrræða með hliðsjón af bæði faglegum og rekstrarlegum for- sendum. Ella hefði þurft að draga úr starfseminni á staðn- um með varanlegum og alvarlegri hætti, m.a. með fækkun starfsmanna enn frek- ar en þó hefur verið gert. Eitt vel búið sjúkrahús með fullan viðbúnað er starfrækt þetta tímabil í heil- brigðisumdæmi Vesturlands, þ.e. á Akranesi. Ég trúi því að þinn góði mágur muni fyrr en síðar hljóta vist á hinu nýja og glæsilega heimili aldraðra í Ólafsvík, Jaðri („Elliheimilið í Ólafsvík“). Þar er ekki leyfi fyrir rekstri fleiri rýma sem stendur og ekki í mínu valdi að hnika því til eða frá. Það kom ekki skýrt fram í bréfi þínu að ég sjálfur og mitt samstarfsfólk var mjög vel upplýst um málið. Ég beitti mér sér- staklega fyrir því að leita lausna þannig að þessi umræddi ein- staklingur gæti dvalið í Ólafsvík á meðan hlé væri á starfseminni í Stykkishólmi. Af hálfu ráðuneytis var mikill velvilji í þessu máli. Eng- ir peningar eru hins vegar til að fjölga varanlega rýmum í Ólafsvík á þessu stigi enda byggjast rekstr- arheimildir Jaðars á eðlilegri og út- reiknaðri þörf á hjúkrunarrýmum í sveitarfélaginu miðað við mann- fjölda í þessum aldurshópi. Um mat á þessu fjalla aðrir en ég. Viðleitni okkar til óhefðbund- innar lausnar á beiðni aðstandenda þessa einstaklings bar árangur en um það hirðir þú ekki að nefna í bréfi þínu og það er leitt. Boðin var nokkur fjárupphæð til þess að hægt væri að brúa umrætt lokunartíma- bil í Stykkishólmi með tímabund- inni vist í Ólafsvík. Þá var HVE reiðubúið til þess að veita annan þann stuðning sem með þyrfti, t.d. útvegun lyfja, hjúkrunarvara og hjálpartækja ef með þyrfti. Þetta var kynnt bæjarstjóra Snæfells- bæjar en þessu boði var strax hafn- að. Meira höfðum við ekki aðstöðu til að bjóða. Málið var því afgreitt af hálfu HVE og það er fjarri sanni að það hafi legið óleyst. Umræddur einstaklingur nýtur um sinn svo- kallaðrar hvíldarinnlagnar og ágæts atlætis á Silfurtúni í Búðardal. Sú lausn var fundin í samráði við hann sjálfan og nánustu aðstandendur. Ég kann ekki við að ýjað sé að því að ég hafi flúið undan ábyrgð. Það er ekki minn háttur og ég væri ekki í þessu starfi ef það væri ríkur þáttur í fari mínu. Þú áttir hér samtöl við mig, samstarfsfólk, bæði framkvæmdastjóra hjúkrunar og einnig staðgengil minn þar sem málin voru skýrð skv. framansögðu. Ég skil vel að niðurstaða sú sem fékkst í þessu máli sé þér ekki fylli- lega að skapi. Eflaust eru fleiri í svipuðum sporum víða um land. Við sem mæðumst í þessum verkefnum dag hvern gerum hvað við getum til þess að leita úrlausna og nú hin síð- ustu misseri hafa þau stundum ver- ið með afbrigðum við erfiðar að- stæður. Í ljósi alls þessa erum við starfs- fólkið stöðugt reiðubúið til skyn- samlegra og yfirvegaðra viðræðna um lausnir á snúnum málum en getum lítið gert við tilfinningalegu uppnámi nema sýnt því skilning. Aðstæður í samfélaginu eru að mörgu leyti ekki ákjósanlegar en alls ekki ómögulegar og það eigum við að hafa hugfast. Um önnur ómálefnaleg atriði og upphrópanir í bréfi þínu mun ég ekki fjasa og vísa þeim til föðurhúsanna. Með einlægri ósk um að mági þínum farnist vel og ég sendi þér góðar kveðjur með von um að þú eigir þess kost að njóta sumarleyfis í ár eins og ég hef gert. Flóttamaður gefur sig fram – lítið svar til Einars Birnis Eftir Guðjón S. Brjánsson »Undanfarin sumur hefur sjúkradeild HVE í Stykkishólmi verið lokuð um nokk- urra vikna skeið yfir sumarmánuðina. Guðjón Brjánsson Höfundur er forstjóri Heilbrigð- isstofnunar Vesturlands. Heyrst hefur að nýja ríkisstjórnin ætli sér að taka á mál- efnum fátækra, eldri borgara og fatlaðra. Það er afar vel ef rétt reynist og fátt eitt virðingarverðara en slík forgangsröðun. Fátækt og lág- markslaun Það er staðreynd að margir eiga vart til hnífs og skeiðar þrátt fyrir eða þá vegna valdaferils heilagrar norrænnar velferð- arstjórnar vinstri manna sem þeir eru þó svo drýldnir af. Það er ým- islegt sem er hægt og þarf að gera til þess að vinna bug á örbirgðinni og langar mig að telja hér upp nokkur atriði í stuttu máli, sem þurfa að gerast fljótt og vel: 1) Leiðrétting verðtryggðra hús- næðislána með aðferð magnbund- innar íhlutunar. 2) Fjármálastöð- ugleiki og yfirtaka stórs hluta eigna þrotabúa bankanna og jökla- fjárfesta með innleiðingu ríkisdals og auka þannig mjög getu ríkisins til ýmissa aðgerða og framkvæmda. 3) Fjárfestingar og aukin atvinna. 4) Lögleiðing lágmarkslauna sem taki mið af framfærsluviðmiðum. 5) Lækkun vsk. og tekjuskatta í skref- um á næstu fjórum árum að lokum niður í flata 20%. 6) Trygging- argjald verði lækkað niður í 3% til að auka möguleika fyrirtækja á mannaráðningum. 7) Stórhækkun skattleysismarka. 8) Að auðlegðar- eða ekknaskatturinn og erfða- fjárskattar verði afnumdir. 9) Að at- vinnuleysisbætur verði veittar öllu fólki, þ.m.t. atvinnulausum atvinnu- rekendum, þeim sem ekki hafa verið í verkalýðsfélögum o.s.frv. 10) Að verklag Vinnumálastofnunar verði endurskipulagt og að fyrirtækjum verði gefnir skatta- og/eða trygg- ingargjaldsafslættir eða að borga þeim tryggingabæturnar um tíma með því að þau ráði viðkomandi til vinnu, ellegar að fólki verði hjálpað til alvarlegs og praktísks náms í praktískum greinum, sem vinnu- markaðurinn þarfnast, þá sér- staklega til iðn- og hvers kyns tæknináms. 11) Að afnema tolla og vörugjöld á öllum lyfjum, skóm og fatnaði og hætta þannig verðlags- hækkandi gjaldtöku ríkisins á þess- um nauðþurftum. Það er á sama tíma gjald- eyrissparandi og at- vinnu- og verðmæta- skapandi að koma versluninni sem mest inn í landið. Fatlaðir og eldri borgarar Ég ætla hér að nefna fáein atriði til viðbótar, sem snúa sérstaklega að kjörum og betra lífi öryrkja og aldraðra: 1) Leiðrétta allar skerðingar Samfylkingar og VG frá 2009. 2) Greiða allar skerðingar frá sama tíma með eingreiðslu. 3) Að þessir hópar fái notið lágmarkslaunanna og hækkunar skattleysismarka hið minnsta. 4) Að tekjutengingar verði lækkaðar að einhverju marki strax og lækkaðar smám saman enn frek- ar, en sem fyrst eða eftir því sem ráðrúm ríkissjóðs leyfir. 5) Að tollar og vörugjöld á stoðtækjum verði af- numin og viðeigandi stoðtæki verði miklum sjúklingum að kostn- aðarlausu svo þeir geti betur bjarg- að sér. 6) Að lífeyrissjóðum verði gert skylt að verja 1% iðgjalda hvers árs til endurnýjunar og upp- byggingar búsetuskilyrða fyrir þessa hópa. Velferðarstjórn í raun Taka þarf jafnframt sérstaklega á málefnum heilbrigðisþjónustunnar, en með þeim aðgerðum í fjármálum þjóðarinnar, sem ég hef skrifað um, á að gefast ráðrúm til þessara mannréttinda og mannkærleiks- aðgerða, enda er það fólkið sem stjórnmál eiga að fjalla um en t.d. ekki óarðbær ríkisrekin gælufyr- irbrigði sem hægt er að vera án. Ef hinni efnilegu nýju ríkisstjórn Ís- lands tekst með áræði að koma þessari skipan á fljótt og vel mun hennar væntanlega verða minnst með þakklæti og virðingu sem al- vöru velferðarstjórnar. Það standa allar vonir til þess að svo verði. Nýja ríkisstjórnin taki á málefnum fátæktar, aldraðra og öryrkja Eftir Kjartan Örn Kjartansson Kjartan Örn Kjartansson » Það er ýmislegt hægt að gera til þess að vinna bug á örbirgð- inni. Höfudur er varaformaður Hægri grænna, flokks fólksins. Bréf til blaðsins Nú fyrir nokkru skrifaði hr. Atli Harðarson skólameistari grein hér í blaðið um brottfall úr framhalds- skólum. Nem- endur falla líka frá, fyrir eigin hendi. Nokkrir af mínum gömlu nemendum hafa farið þann veg, en ég starfaði í framhaldsskóla um tólf ára skeið. Það var einu sinni sagt, að mannshugurinn þroskist í beinu hlutfalli við fjölbreytileika þess umhverfis sem maðurinn vex upp í. Nú skal á það bent, að menntun og lengd skólagöngu er ekki það sama. Til eru Íslendingar sem náðu langt, en höfðu aðeins gengið í kvöldskóla KFUM eða Náms- flokkana. Reykjavík, frá Vegamót- um og upp að Vatnsendahæð, er byggð af iðnaðarmönnum úr Iðn- skólanum sem voru þar 32 vikur (átta vikur á ári í fjögur ár). Við 14 ára aldur fann ég hjá mér mikla þörf til að fara að vinna, komst ég að sem aðstoðarpiltur á verkstæði og fór svo í Iðnskólann tveimur árum seinna. Verkstæðinu stýrði gamall Þjóðverji og lærði ég margt af honum. Á aldrinum 14-21 árs samhæfast hugur og hönd hjá manninum. Það er þess vegna sem unglingar voru látnir hefja iðn- og verslunarnám 14 ára í Evrópu. Fyrir nokkrum árum heimsótti ég verkmenntaskólann í Simmern, Rínarlöndum, Þýskalandi, þar voru allir iðnnemar í vinnu hjá meisturum og í skólanum ýmist einn eða tvo daga í viku, eftir fög- Brottfall Frá Gesti Gunnarssyni Gestur Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.