Morgunblaðið - 03.07.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.07.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS - Hnappur semgetur bjargað þínu lífi og þinna nánustu. BAKSVIÐ Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Veruleg vanhæfni stjórnenda Íbúða- lánasjóðs (ÍLS) og ótrúlegt sinnu- leysi af hálfu eftirlits- og valdastofn- ana þjóðfélagsins varðandi gríðarleg hagsmunamál almennings eru efst í huga fulltrúa rannsóknarnefndar Al- þingis um sjóðinn að rannsókninni lokinni. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar sem kynnt var í gær. Íbúðalánasjóður hefur tapað 270 milljörðum króna frá stofnun árið 1999, þar af 86 milljörðum vegna út- lána, samkvæmt rannsókn nefndar- innar. Tveir þriðju hlutar útlánataps- ins, vel á sjötta tug milljarða króna, voru vegna lána sem veitt voru á ár- unum 2005 til 2008, í kjölfar breyt- inga á útlánum og fjármögnun þeirra. Þar á meðal var sú breyting að hækka veðhlutfall lána sjóðsins í 90% og hækka lánaupphæðir. Rannsóknarnefndin segir að enn sjái ekki fyrir endann á þeim kostnaði sem falli á almenning vegna mistaka sem varða sjóðinn. Hún gagnrýnir vanþekkingu innan sjóðsins og fé- lagsmálaráðuneytisins. Þá hafi póli- tísk áhrif og hagsmunatengsl ekki bætt úr skák. Uppgreiðsluáhættan aukin Það var hinn 1. júlí árið 2004 sem nýtt íbúðabréfakerfi með beinum peningalánum var tekið upp í stað húsbréfakerfis Íbúðalánasjóðs. Þá var hámarkslánsfjárhæð sem sjóðn- um var heimilt að lána hækkuð veru- lega og veðhlutfall almennra lána hækkað úr 65% í 90%. Það megi rekja til kosningaloforða Framsóknar- flokksins fyrir alþingiskosningarnar 2003. Í skýrslunni segir að ekki sé hægt að túlka breytingarnar á sjóðnum öðruvísi en sem markaðssókn, þrátt fyrir að ekki mætti sjá nein rök fyrir aðkomu hins opinbera að almennum lánveitingum á húsnæðismarkaði eft- ir að vaxtafrelsi var komið á, nútíma- væðingu fjármagnsmarkaða lauk og ríkisbankarnir voru einkavæddir. Ríkisábyrgð var notuð til þess að laða að m.a. erlent áhættufé til þess að lækka vexti. Uppgreiðsluáhætta sjóðsins var stóraukin og var þar far- ið gegn ráðleggingum sérfræðinga. Afdrifaríkustu mistökin Skuldabréfaskipti sem fóru fram í kjölfar breytinganna þar sem eigend- um gömlu húsbréfanna var boðið að skipta yfir í nýju íbúðabréfin eru að mati rannsóknarnefndarinnar ein verstu og afdrifaríkustu mistökin sem Íbúðalánasjóður hefur gert. Hann tapaði að lágmarki 21 milljarði króna að núvirði vegna þeirra. Þar fyrir utan tapaði hann 3,5 milljörðum að núvirði vegna reiknivillu sem gerð var í skiptunum. Eftir að einkabankarnir hófu að bjóða húsnæðislán á lægri vöxtum í ágúst 2004 hófust miklar upp- greiðslur á lánum Íbúðalánasjóðs. Frá september 2004 til apríl 2006 hafi uppgreiðslur umfram útlán til að mynda numið 112 milljörðum króna. Engu að síður sótti sjóðurinn sér meira fé með sölu íbúðabréfa. Til að ávaxta þetta mikla umframfé ákvað sjóðurinn að lána bönkum og sparisjóðum tæplega 100 milljarða króna frá desember 2004 til desem- ber 2005. Það leiddi til frekari getu þeirra til að veita húsnæðislán sem aftur jók uppgreiðslur á lánum ÍLS auk þess að bæta enn á þenslu í sam- félaginu. Þá segir í skýrslunni að allt bendi til þess að lánasamningarnir við fjármálastofnanirnar hafi verið ólöglegir. Slakaði á kröfum Íbúðalánasjóður tapaði miklum fjármunum við efnahagshrunið árið 2008 vegna þess að starfsmenn hans höfðu fært lausafé hans í auknum mæli í áhættusamari fjárfestingar. Rannsóknarnefndin segir að stjórn og stjórnendur ÍLS hafi talið að eft- irlit hans með útlánaáhættu tak- markaðist við reglur um lánshlutföll og hámarkslán og honum væri skylt að lána öllum sem uppfylltu þau skil- yrði. Sjóðurinn hafi slakað á lánaskil- yrðum vegna samkeppni frá öðrum lánastofnunum síðsumars 2004 og þannig aukið útlánaáhættu sína. Þannig hafi verið gerðar minni kröfur í greiðslumati á sama tíma og veð- hlutfallið var hækkað upp í 90% af kaupverði. Stór hluti lánanna hafi að auki verið veittur þegar húsnæðis- verð var sem hæst. Því voru meiri lík- ur á að þessi lán lentu í vanskilum en önnur eins og raunin varð við lækkun fasteignaverðs í byrjun árs 2008 og hrunið. Gagnrýna pólitískar ráðningar Niðurstaða rannsóknarnefndar- innar er að eftirlit með ÍLS og áhættustýring hafi verið ófullnægj- andi. Starfsmenn sjóðsins skorti þekkingu til að nýta eftirlitskerfi og áhættustýringaraðferðir sem komið var á fót. Þeir hafi túlkað niðurstöður ranglega og reiknað rangt. Þessu hafi Fjármálaeftirlitið ekki tekið eftir eða að minnsta kosti ekki gert athuga- semd við. Ríkisendurskoðun skrifaði skýrslur um ÍLS árin 2005-2006 en rannsóknarnefndin segir að stofnun- in hafi verið vanhæf til þess vegna þess að hún sá um innra eftirlit sjóðs- ins. Nefndin gagnrýnir einnig eftirlits- leysi af hálfu Alþingis og pólitískar ráðningar í stöður framkvæmda- stjóra sjóðsins, forstjóra FME og bankastjóra Seðlabanka Íslands. Hún segir ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks sam- ábyrga fyrir breytingunum sem gerðar voru 2004 en pólitískur ágreiningur þeirra á milli um þær hafi veikt umgjörð og festu innleið- ingar þeirra og veikt eftirlit með Íbúðalánasjóði. Milljarðatap vegna vanhæfis  Ekki sér fyrir endann á milljarðatapi almennings vegna mistaka í kringum Íbúðalánasjóð  Verstu mistökin voru skuldabréfaskipti eftir breytingarnar 2004  Eftirlit og áhættustýring var ófullnægjandi Morgunblaðið/Styrmir Kári Mistök gagnrýnd Rannsóknarnefnd Alþingis um Íbúðalánasjóð kynnti niðurstöður skýrslu sinnar á blaðamanna- fundi í gær. Nefndina skipa þau Sigurður Hallur Stefánsson, Jón Þorvaldur Heiðarsson og Kirstín Þ. Flygenring. 64 milljarða króna tap vegna virðisrýrnunar 27 milljarðar eru vegna vaxtataps vegna uppgreiðslna útlána 3 milljarðar vegna vaxtataps lausafjárstýringar TAP ÍBÚÐALÁNASJÓÐS » Skannaðu kóðann til að lesa nánar um ÍLS-skýrsluna. María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Hallur Magnússon, fyrrverandi sviðsstjóri þróunarsviðs Íbúðalána- sjóðs, sendi í gær frá sér yfirlýs- ingu þar sem fram kemur að hann hyggist höfða meiðyrðamál gegn rannsóknarnefndinni. Hann segir skýrsluna fulla af rangfærslum. Þá gagnrýnir hann einna helst að því sé haldið fram að ráðning hans til Íbúðalánasjóðs hafi verið pólitísk og gefið í skyn að starf hans hjá sjóðnum hafi ekki verið auglýst. Í yfirlýsingu hans segir meðal ann- ars: „Í ljósi þessara alvarlegu ásak- ana nefndarinnar og þá sérstaklega eins fulltrúa hennar sem mér skilst að hafi lagt sig eftir því að koma framangreindum rangfærslum á framfæri á blaðamannafundi þá hef ég hafið und- irbúning að meiðyrðamáli gagnvart nefnd- inni í heild og viðkomandi nefndarmanni sérstaklega.“ Varaði við hættunni Grétar Júníus Guðmundsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, benti á það í desember 2004 að sjóðurinn væri í miklum vanda vegna þeirra breytinga sem hefðu orðið á fast- eignalánamarkaði og hann gæti stefnt í þrot. „Líkurnar á því aukast með auknum uppgreiðslum á útlán- um sjóðsins og einnig ef vextir á markaði haldast eins og þeir eru nú eða ef þeir lækka. Ástæðan fyrir þessu er einkum sú hvernig staðið var að skuldabréfaskiptum í tengslum við breytinguna úr hús- bréfakerfinu yfir í hið nýja pen- ingalánakerfi sjóðsins, sem tók gildi hinn 1. júlí síðastliðinn. Mögu- leikinn á því að þessi staða komi upp hefði ekki komið til ef ekki hefði verið ráðist í þau miklu skuldabréfaskipti sem ákveðin voru samfara lánakerfisbreytingunni með þeim hætti sem gert var,“ skrifaði Grétar í fréttaskýringu. Skrif Grétars vöktu hörð við- brögð hjá Halli sem sagði nið- urstöður hans rangar. „Við gerum ráð fyrir verulegum uppgreiðslum og í því skyni héldum við eftir á annað hundrað milljarða í hús- bréfum til þess að geta dregið út á móti uppgreiðslum,“ sagði Hallur við RÚV daginn sem fréttin birtist. Fyrrverandi sviðsstjóri hyggst höfða meiðyrðamál gegn nefnd Hallur Magnússon Útboð á innheimtu og tengdri þjón- ustu fyrir Íbúðalánasjóð sem fór fram árið 1999 er gagnrýnt í skýrslunni og sagt illa ígrundað. Boðin voru út aðskilin verkefni sem kröfðust ólíkrar þekkingar, þarfir ÍLS voru ekki nægilega vel skil- greindar og starfsfólk hans hafði litla sem enga aðkoma að gerð þeirra. Lægstbjóðandi, Fjárvaki, dótt- urfélag Kaupfélags Skagfirðinga, gat ekki staðið við gerða samninga og var samningum rift árið 2002. Fyrirtækinu var þá greidd fjárhæð sem var sambærileg þeirri sem það hefði fengið hefði það staðið við gerða samninga. Sama dag var skrifað undir tvo samninga við Sparisjóð Hóla- hrepps, samstarfsaðila Fjárvaka. Þetta segir rannsóknarnefndin að hafi verið óeðlilegt þar sem þjón- ustan hefði átt að fara í útboð. Þá hafi samningur um vistun 300 millj- óna króna öryggissjóðs ÍLS hjá sparisjóðnum verið óforsvaran- legur út frá sjónarmiðum um lausa- fjárstýringar og hann hafi ekki ver- ið gerður með hagsmuni ÍLS í huga. Ekki með hagsmuni sjóðsins í huga Guðmundur Bjarnason gegndi starfi framkvæmda- stjóra Íbúðalána- sjóðs í rétt rúm- an áratug eða frá 1999 til 2010. „Mér sýnist að í skýrslunni sé að finna ýmislegt nytsamlegt fyrir framtíðaruppbyggingu húsnæðis- mála, sem er einmitt mikið í deigl- unni þessa dagana. Skýrslan mun eflaust nýtast vel í það,“ sagði Guð- mundur Bjarnason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, í gær en hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um innihald skýrsl- unnar. Guðmundur segist hafa ver- ið kallaður í skýrslutöku nokkrum sinnum en hafi ekki fengið and- mælarétt við skýrslunni enda séu niðurstöðurnar ekki þess eðlis að þörf hafi verið á því. „Það er ekki um að ræða neinar ákærur eða neitt ólögmætt, þannig að það var ekki þörf á því.“ Skýrslan nytsamleg fyrir húsnæðismál Guðmundur Bjarnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.