Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
Opið: mán.-fös. 12:30 - 18:00, opið laugardaga 12:00-16:00 Dalvegi 16a - Rauðu múrsteinshúsunum, 201 Kópavogi - S. 517 7727 - nora.is
Matardiskur Tilly, verð nú kr. 1.672
Sumarútsalan hefst í dag
Húsgögn -30% Smávara -20%
Púðar m. fiðurfyllingu, verð nú frá kr. 7.200
Pottar, verð nú frá kr. 1.192
Ávaxtaskálar kr. 3.590, nú kr. 2.872 Traktorskönnur kr. 3.900, nú kr. 3.120 Matardiskur Gharmille, verð nú kr. 1.432
„Þetta er mjög sérstakt. Ég hef
bara einu sinni á ævinni séð æðar-
blika skjótast á hreiður, og það var
í nokkrar sekúndur á meðan kollan
fór af,“ segir Sigurður Ægisson
fuglaáhugamaður, sem náði afar
sjaldgæfum myndum af æðarblika
á hreiðri í æðarvarpi á Siglufirði.
Örlygur Kristinsson, eigandi æðar-
varpsins, segir fuglinn hafa legið á
hreiðrinu í nokkra daga, en hann
hefur aldrei séð neitt þessu líkt áð-
ur.
Blikinn lá á hreiðri með þremur
eggjum sem líklega komu undan
kollu af sömu tegund, en þrjú egg
telst fremur lítið. „Það er alveg
furðulegt að hann skuli hafa gert
þetta. Annaðhvort hefur kollan
hans verpt og farið af og síðar
verpt annars staðar eða þá að hann
hefur tekið hreiður kollu sem var
byrjuð að verpa,“ bætir Sigurður
við.
Fuglarnir verpa einu sinni á ári
og það í maí, og segir Sigurður að
ennþá séu æðarkollur í varpinu.
„Mig grunar að flestar hafi verpt
síðustu vikuna í maí. Það telst frem-
ur seint á landsvísu, enda var ekk-
ert vor hérna fyrir norðan,“ segir
Sigurður að lokum. agf@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Æðarbliki á hreiðri Mjög sjaldgæft er að þetta gerist og ef til vill einsdæmi.
Æðarbliki lá sem
fastast á hreiðri sínu
Afar sjaldgæft
að þetta gerist
Þrjú Æðareggin í hreiðrinu.
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
Grunnnemum í kennarafræðum við
Háskólann á Akureyri fækkar um
tæplega 54% á milli ára, en 60 um-
sóknir hafa borist í ár samanborið við
129 umsóknir í fyrra. Miklar sveiflur
hafa verið í fjölda umsókna um námið
en árið 2011 sóttust 92 nemendur eft-
ir skólavist og 116 árið áður. Alls er
því fækkun um tæplega 50% frá árinu
2010.
Bragi Guðmundsson, formaður
kennaradeildarinnar, segir umsókna-
fjöldann segja takmarkaða sögu.
Hann segir að umsækjendur sæki oft
einnig um í öðrum skólum og því liggi
nemendafjöldi ekki fyrir fyrr en stað-
festingargreiðslur hafi allar skilað
sér. Þá segir hann jafnframt að ekki
standist allir umsækjendur inntöku-
skilyrði skólans. „Margir sækja um
án prófs úr framhaldsskóla og ná
ekki neinum lágmörkum, en svo er
hitt að fólk stenst oft lágmörk en þá
er ekki nein trygging fyrir því að það
hefji nám.“
Fjölgun á meistarastigi
Þróun á nemendafjölda á meistara-
stigi við HA er þó andstæð því sem
sést á grunnnáminu. Í ár hafa 134
nemendur sótt um, en 168 nemendur
sóttu um í fyrrahaust. Þetta er mikil
aukning frá árunum þar áður, en árið
2011 sóttu 78 nemendur um og 77 ár-
ið áður. Alls er aukningin frá árinu
2010 því 42,5%. Bragi segir ástæðuna
fyrir þessu líklega þá að árið 2012 var
innritað í fyrsta skipti í svokallað
M.Ed.-nám, en það er skyldunám til
kennararéttinda í dag. Nemendum
hafi fjölgað mikið sem vilja öðlast slík
réttindi. Þá segir hann einnig að stór
hluti umsækjenda sé einstaklingar
með háskólapróf sem vilja bæta við
sig þessari meistaragráðu til þess að
öðlast kennsluréttindi á framhalds-
skólastigi.
Enn er opið fyrir umsóknir í kenn-
aranám Háskólans á Akureyri.
Sveiflur í kennara-
náminu á Akureyri
Grunnnemum fækkar en meistaranemum hefur fjölgað
Umsóknir í kennaradeild Háskólans
á Akureyri
180
160
140
120
100
80
60
40
20
0
2010 2011 2012 2013
Umsækjendur um grunnnám Umsækjendur um nám ámeistarastigi
116
92
129
60
77 78
168
134
Umsóknir í tölum
» Alls hafa 60 nemendur sótt
um grunnnám í kennara-
fræðum við HA í haust, en
það er 54% fækkun frá því í
fyrra.
» Í ár hafa 134 umsóknir bor-
ist í meistaranám, en það er
rúmlega 42% fjölgun frá árinu
2010 þegar 77 sóttu um.