Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 21

Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 ALLT FYRIR SKRIFSTOFUNA V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is Múlalundur - fyrir betri framtíð Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum (Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum. Er á Facebook Gigt, vöðvabólga eða fótaóeirð? www.annarosa.is Eftir þrjú brjósklos og uppskurði vilja vöðvarnir á því svæði stífna þegar mér verður kalt. Vöðva- og gigtarolían hefur alveg bjargað mér undanfarna mánuði, hún er svo vöðvaslakandi og hitar svo vel! Eftir að ég kynntist henni get ég ekki hugsað mér að vera án hennar og mæli eindregið með henni! Fótakremið er silkimjúkt, fer fljótt inn í húðina og mér finnst það alveg æðislegt. – Magna Huld Sigurbjörnsdóttir Vöðva- og gigtarolían þykir afar góð til að draga úr liðverkjum og vöðvabólgum ásamt því að gagnast við fótaóeirð. Fótakremið er kælandi og kláðastillandi, mýkir þurra húð, græðir sprungur og ver gegn sveppasýkingum. AFP Leiðtogar og fulltrúar strangtrúaðra gyðinga efndu til mótmæla við höfuðstöðvar Evrópusambandsins í Brussel á mánudag og biðluðu til framkvæmdastjórn- arinnar um alþjóðlega vernd til handa þeim strang- trúuðu gyðingum sem flýja Ísrael. Fara þeir fram á að framkvæmdastjórnin tryggi að aðildarríki sam- bandsins viðurkenni stöðu þeirra sem pólitískir flótta- menn. Vilja fá stöðu pólitískra flóttamanna AFP Kardinálaráð Vatíkansins, sem rannsakar þá einstaklinga sem kem- ur til greina að taka í dýrlingatölu, hefur staðfest annað kraftaverk Jó- hannesar Páls páfa II og þarf þá ekki annað en undirskrift núverandi páfa til að hann verði gerður að dýrlingi. Jóhannes Páll II, sem lést árið 2005, var tekinn í tölu blessaðra í maí 2011, eftir að fyrsta kraftaverk hans var staðfest, en þá var hann sagður hafa verið valdur að lækningu franskrar nunnu sem þjáðist af Parkinsonsjúkdómnum. Annað kraftaverkið er sagt hafa átt sér stað þegar Jóhannes Páll II var tekinn í tölu blessaðra, en þá hafi kona frá Costa Rica fengið bót meina sinna. Til þess að lækning geti talist til kraftaverka þarf hún að vera taf- arlaus, varanleg og óútskýranleg frá sjónarhóli vísindanna. Jóhannes Páll II naut mikilla vin- sælda á þeim 27 árum sem hann sat á páfastóli og kölluðu margir eftir því að hann yrði umsvifalaust tekinn í dýrlingatölu þegar hann lést. Ítalska fréttastofan ANSA sagði frá því í gær að athöfnin, þar sem Jó- hannes Páll II yrði gerður að dýr- lingi, myndi mögulega fara fram ein- hvern tímann í árslok. Staðfesta annað kraftaverk páfa  Jóhannes Páll II uppfyllir skilyrði til að verða dýrlingur AFP Trú Frans páfi þarf að heimila að forveri hans verði að dýrlingi. Einn listamannanna í fjöllista- hópnum Cirque du Soleil lést á sýn- ingu hópsins á MGM Grand hót- elinu og spilavíti í Las Vegas á laugardag, þegar hann féll úr lofti niður á sviðið. Slysið átti sér stað í lokasenu sýningarinnar „Ka“, þar sem listamennirnir hanga í um 15 metra hæð yfir sviðinu, í vírum sem stjórnað er með þráðlausum fjar- stýringum. Samkvæmt frétt CNN héldu margir gestanna á sýningunni að fall hinnar 31 árs gömlu Söruh Guil- lot-Guyard væri hluti af loftfimleik- unum, þar til öskur og grátstafir bárust frá sviðinu. „Við erum minnug þess, full auð- mýktar og virðingar, hversu stór- fenglegir listamennirnir okkar eru hvert einasta kvöld. Athygli okkar beinist nú að því að styðja hvert annað eins og fjölskylda,“ sagði Guy Laliberté, stofnandi Cirque du So- leil, í tilkynningu á sunnudag. Guillot-Guyard hafði starfað sem fjöllistamaður í yfir 20 ár og tekið þátt í „Ka“-sýningunni frá upphafi. AFP Sirkus Sýningar Cirque du Soleil hafa farið víða en eru einnig fastur liður í afþreyingarframboði Las Vegas-borgar í Bandaríkjunum. Lést á sýningu Cirque du Soleil

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.