Morgunblaðið - 03.07.2013, Page 35

Morgunblaðið - 03.07.2013, Page 35
þremur smáhýsum, Dalvík Hostel- Gimli og „gamla bænum“ sem er 99 ára gamalt hús við Vegamót á Dalvík. Að auki leigja þau út Brekkusel, skíðaskála Skíðafélags Dalvíkur, á sumrin en hann er vinsæll meðal gönguhópa og fyrir lítil ættarmót. Gistingin er hluti af Farfuglum á Ís- landi, Hostelling International og hefur meðal gesta hlotið lof fyrir að- búnað, skreytingar og gott andrúms- loft á gististöðum sínum. Fyrirtækið var sl. sumar lengi vel með hæstu ein- kunn innan Hi Hostels-keðjunnar í heiminum þegar teknar eru saman einkunnagjafir gesta. Sögusetur um Bakkabræður Helstu áhugamál Bjarna eru ljós- myndun, að gera upp gömul hús og gamla hluti en því áhugamáli deilir hann af ástríðu með Kristínu, sam- býliskonu sinni til 27 ára. Bjarni hefur unnið lengi með börnum og unglingum og í tengslum við íþrótta- hreyfinguna meðan hann vann sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvík- urbyggðar. Meðal annars stóð hann fyrir þátttöku ungmenna frá Dalvík- urbyggð á æskulýðsmótum víða um Evrópu og á Dalvík árlega í 17 ár. Bjarni kom á fót Ungmenna- og tóm- stundabúðum á vegum UMFÍ og sá um reksturinn í byrjun. Bjarni er að aðstoða konu sína við að koma upp sögusetri um Bakkabræður á Dalvík og stefnt er á að fyrsta áfanga ljúki næsta vor. Útivist og ferðalög eru ofarlega á vinsældalistanum, fótbolti og skíði með fjölskyldunni en yngsta dóttirin heldur föður sínum enn upp- teknum við að fylgjast með henni á skíðamótum og við fótboltaiðkun. Bjarni er með þolinmóðari Liverpool- aðdáendum í heiminum og er ekkert að gefast upp á sínum mönnum. Hann lék knattspyrnu með Magna frá Greni- vík og einnig knattspyrnuliði UMFS á Dalvík á árum áður og þykir enn lið- tækur á þessu sviði með félögum sín- um í bumbubolta. Bjarni mun verja afmælisdeginum í faðmi fjölskyldunnar á Vegamótum á Dalvík og við að búa um rúm fyrir fjölmarga ferðamenn sem leggja leið sína til hans á Dalvík á leið sinni um landið. Fjölskylda Kona Bjarna, Kristín Aðalheiður Símonardóttir, 19.9. 1964, rekur ferðaþjónustu á Dalvík. Foreldrar hennar eru Símon Ellertsson, f. 25.7.1939, altmuligmaður á Dalvík, og María Snorradóttir, f. 8.5. 1943, hús- móðir á Dalvík. Börn Bjarna og Kristínar eru Anna Margrét Bjarnadóttir, f. 19.2. 1991, nemi í tannlækningum við HÍ. Maki hennar er Daníel Alexandersson nemi í læknisfræði við HÍ; María Bjarnadóttir, f. 7.9. 1993, er að hefja nám í félagsfræði við HÍ. Maki henn- ar er Árni Jóhannesson, nemi í hug- búnaðarverkfræði við HÍ; Bríet Brá Bjarnadóttir, f. 2.10. 2000. Systkini Bjarna eru Gunnar Gunn- arsson, f. 21.7. 1964, sjómaður á Ak- ureyri; Ingibjörg Gunnarsdóttir, f. 27.4. 1969, kennari á Akureyri; Stefán Haukur Gunnarsson, f. 6.7. 1973, starfsmaður við harðfiskverkunina Darra á Grenivík. Foreldrar Bjarna eru Gunnar Stef- ánsson, f. 18.12. 1938, fyrrv. sjómaður á Grenivík, og Anna Margrét Bjarna- dóttir, f. 14.7. 1941, fiskverkakona og starfsmaður í íþróttamiðstöð á Greni- vík. Úr frændgarði Bjarna Gunnarssonar Bjarni Gunnarsson Anna Margrét Vigfúsdóttir húsfreyja frá Selárbakka á Árskógsströnd Friðrik Kristinsson verkamaður og sjómaður frá Hjalla á Látraströnd Guðrún Friðriksdóttir húsfr. á Jarlsstöðum í Höfðahv. Bjarni Benediktsson b. og múrari á Jarlsst. í Höfðahv. Anna Margrét Bjarnadóttir fiskvinnslukona á Grenivík Steinlaug Guðmundsdóttir húsfr. á Jarlsstöðum í Höfðahv. Benedikt Sigurbjörnsson bóndi á Jarlsstöðum í Höfðahverfi Valgerður Jóhannesdóttir húsfreyja á Hóli í Höfðahverfi Jón Sveinsson bóndi frá Hóli í Höfðahverfi Ingibjörg Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Grenivík Stefán Stefánsson sjómaður á Grenivík Gunnar Stefánsson sjómaður á Grenivík Friðrikka Kristjánsdóttir húsfreyja á Grenivík Stefán Stefánsson útgerðarmaður frá Miðgörðum á Grenivík Hjónaleysin Í gönguferð í Fjörðum. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Þorsteinn, prestur á Görðum áAkranesi, alþingismaður ográðherra, fæddist á Frosta- stöðum í Blönduhlíð 3.7. 1885. For- eldrar hans voru Ólafur Briem al- þingismaður. og k. h. Halldóra Pétursdóttir Briem húsmóðir, mág- kona Hálfdanar Guðjónssonar al- þingismanns og föðursystir Pálma alþingismanns Hannessonar. Fyrri kona Þorsteins var Val- gerður Lárusdóttir Briem, f. 12.10. 1885, d. 26.4. 1924, húsmóðir, systir Guðrúnar Lárusdóttur alþingis- manns. Foreldrar Valgerðar voru Lárus Halldórsson alþingismaður og k. h. Kirstín Katrín Pétursdóttir Guðjohnsen húsmóðir, dóttir Péturs Guðjohnsens alþingismanns. Seinni kona Þorsteins var Oktavía Emilía Pétursdóttir Guðjohnsen, f. 25.4. 1886, d. 21.5. 1967, húsmóðir. For- eldrar hennar voru Pétur, útvegs- maður og sveitarstjóri á Vopnafirði, Hafstein Guðjohnsen, sonur fyrr- nefnds Péturs Guðjohnsens, og k. h. Þórunn Halldórsdóttir Guðjohnsen. Ólafur, faðir Þorsteins, var sonur Eggerts Briem, sýslumanns í Eyja- fjarðarsýslu og síðan Skagafjarð- arsýslu. Faðir hans var Gunnlaugur Briem, ættfaðir Briemsættar, sýslu- maður í Eyjafjarðarsýslu og kammerráð. Halldóra, móðir Þorsteins, var dóttir Péturs, bónda í Valadal á Skörðum, síðar á Álfgeirsvöllum í Efribyggð í Skagafirði, Pálmasonar. Þorsteinn tók stúdentspróf frá MR 1905 og guðfræðipróf frá Prestaskólanum 1908 og fór í fram- haldsnám til Kaupmannahafnar. Var prestur í Grundarþingum í Eyjafirði 1911-1918, á Mosfelli í Grímsnesi 1918-1921 og Akranesi 1921-1946. Var prófastur í Borgarfjarðar- prófastsdæmi 1931-1946. Þorsteinn var formaður Bændaflokksins 1935- 1942, alþingismaður 1934-1942 og atvinnu- og samgöngumálaráðherra og jafnframt kirkju- og kennslu- málaráðherra 1932-1934. Tók hann þá aftur við prests- og prófasts- störfum. Þorsteinn átti heima í Reykjavík síðustu ár ævi sinnar og lést þar 16.8. 1949. Merkir Íslendingar Þorsteinn Briem 95 ára Baldur E. Jensson 90 ára Guðmundur Finnbogason Sigríður Skarphéðinsdóttir 85 ára Hjalti Þórðarson 80 ára Ársæll Þorsteinsson Bryndís S. Guðmundsdóttir Erlingur Pálsson Gústaf Óskarsson 75 ára Erna Sörladóttir Guðbjörn Charlesson Jórunn Magnúsdóttir Kristrún Ólafsdóttir 70 ára Ingibjörg Guðnadóttir Ragnheiður S. Karlsdóttir 60 ára Aðalbjörg Lúthersdóttir Árni Þorvaldur Jónsson Ástríður H. Sigurðardóttir Berglind H. Hallgrímsdóttir Fetije Zogaj Fjóla B. Guðmundsdóttir Fjóla Höskuldsdóttir Gísli Hólm Geirsson Guðrún Jónsdóttir Ívar Eysteinsson Kristborg Hákonardóttir Kristján B. Gíslason Sigríður Þ. Þorvarðardóttir Sigurður Hermannsson Valdimar R. Gunnarsson 50 ára Aðalbjörg Jensdóttir Arna Guðný Valsdóttir Bjarni Gunnarsson Erna Martinsdóttir Friðgeir Sigurðsson Guðjón Júlíus Halldórsson Guðrún Jónsdóttir Harpa Guðmundsdóttir Helga Aðalheiður Aradóttir Hildur Loftsdóttir Höskuldur Ástmundsson Jóhann Rafn Heiðarsson Jónas Lúðvíksson Jón Páll Baldvinsson Jón Þórólfur Guðmundsson 40 ára Ari Elíasson Birgir Þór Birgisson Finnur Þór Birgisson Friðfinnur Örn Hagalín Friðgeir Sveinsson Geir Walter Kinchin Hafdís Einarsdóttir Hjördís Helga Ágústsdóttir Ingvar Björgvin Hilmarsson Ingvi Örn Ingvason Kristinn Freyr Reynisson Kristín Bjarnadóttir Sigurbjörg S. Sveinsdóttir Unnur Arna Jónsdóttir Unnur E. Sveinbjörnsdóttir Valgerður Hafliðadóttir Þröstur Jón Sigurðsson Örvar Már Michelsen 30 ára Arnar Þór Ásgrímsson Ásta S. Tryggvadóttir Friðrik Benediktsson Gottskálk Helgi Jósepsson Hermann Ingi Ragnarsson Hrafn Guðbrandsson Oddný Sófusdóttir Ragnar Snorri Pétursson Rakel E. Guðmundsdóttir Stella Björk Helgadóttir Stella Guðrún Stefánsdóttir Þorbjörg H. Þorgilsdóttir Þorsteinn Björnsson Til hamingju með daginn 30 ára Hrafn er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann er rafvirki og starfar sem verkefnastjóri hjá Rafvirkni ehf. Maki: Rakel Sigurjóns- dóttir, f. 1985, tanntæknir. Börn: Natalía, f. 2003, og Hrafnkell, f. 2010. Foreldrar: Guðbrandur Hansson, f. 1962, lög- reglumaður í Reykjavík, og Sigrún Hrafnsdóttir, f. 1965, deildarstjóri á leik- skólanum Árborg. Hrafn Guð- brandsson 30 ára Stella fæddist í Öxnadal en fluttist korn- ung til Akureyrar og er skrifstofumaður hjá Capacent. Maki: Njáll Ómar Pálsson, f. 1978, húsvörður hjá Landsbankanum. Dóttir: Tinna Líf, f. 2010. Foreldrar: Stefán Gísla- son, f. 1958, vinnur hjá Landflutningum á Akur- eyri, og Sigríður Jenný Hrafnsdóttir, f. 1958, ör- yrki, bús. á Akureyri. Stella Guðrún Stefánsdóttir 40 ára Sigurbjörg er hús- móðir í Hveragerði og stundar fjarnám í MK. Maki: Þorsteinn Karls- son, f. 1971, sölumaður hjá Kjörís. Börn: Ásdís Erla, f. 1992, Katrín Ósk, f. 2000, og Bjarkar Sveinn, f. 2005. Foreldrar: Sveinn Stein- dór Gíslason, f. 1947, d. 2007, húsasmiður í Hveragerði, og Magnea Ásdís Árnadóttir, f. 1950, vinnur við garðyrkju. Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir Alklæddur nautsleðri! Verð áður 139.000 Þú sparar 20.000 Þú sparar 40.000 Tilboðsverð 99.000 RISAÚTSALA! Okkar besti hægindastóll á verði sem hefur ekki sést á Íslandi í mörg ár! Rubelli 9332 H með svifruggu, snúning, gormasæti og frábærum bakstuðningi 3 leðurlitir 6 taulitir FÁÐU STÓLINN SENDAN HEIM HVERT Á LAND SEM ER FYRIR AÐEINS 5.000 KR. Ármúla 5 • 108 Reykjavík • Sími 544 8181www.innlit.is Þekking • ÞjónustaÍ slitsterku áklæði! Verð áður 89.000 Tilboðsverð 69.000 Innlit Húsgögn í sumarskapi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.