Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 36

Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú er lag að eiga góða stund með vinum og vandamönnum. Samt verður þú að muna eftir að hlúa að þér líka. Farðu á stefnumót við sjálfa/n þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur smekk heimsborgarans og vilt njóta fagurra hluta með öðrum. Leggðu mál- in vel niður fyrir þér áður en þú ákveður þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Mann langar í margt, en reyndu að langa í það sem þú átt. Sýndu þolinmæði og aftur þolinmæði og láttu aðra ekki slá þig út af laginu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þig skortir sjálfstraust til að standa í orðaskaki. Aðrir mega telja sig lánsama fyrir það að þú skulir standa með þeim. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Dagurinn í dag gæti orðið sérstaklega skemmtilegur í vinnunni. Góður vinur þarfn- ast aðstoðar þinnar og þú skalt hjálpa hon- um án þess að gera hans vandamál að þín- um. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Lífið færir þér eitthvað nýtt að horfa á – og þú gleypir það allt. Fáðu vini þína til liðs við þig. Sú staðreynd að aðrir sjái ekki vanda- málið, þýðir ekki að það sé ekkert vandamál. 23. sept. - 22. okt.  Vog Eftir þér verður tekið á almennum vett- vangi í dag, á einhvern hátt. Leitaðu til ein- hvers sem getur hjálpað þér með því að miðla af reynslu sinni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gættu þess að láta fólk ekki hafa of mikil áhrif á þig því það hefur þú reynt áður. Allir virðast taka þér eins og þú ert og kunna að meta að þú lætur hendur standa fram úr ermum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Fyrir suma snýst jafnvægi í fjár- málum um að vilja minna og afla meiri tekna. Gefðu þér góðan tíma til þess að velta mál- unum fyrir þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert fullur af krafti og iðar í skinninu eftir að koma öllu því í verk sem hef- ur verið á biðlistanum. Himintunglin draga fram kosti endurtekningarinnar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vertu opin/n fyrir fleiri en einni lausn á viðkvæmu deilumáli, sem þú stendur í. Sjáðu til þess að ósýnilegir kraftar hugsi um þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hamingjan og óhamingjan eiga það sameiginlegt að koma og fara. Láttu í þér heyra, einhver með svipaðar þarfir skríður úr híði sínu. Kerlingin á Skólavörðuholtinufékk skuggalegar fréttir af kunningja sínum: Snöggt brá víst Snæólfi Heði snarleg‘ann hverfðist á geði í friðsælum bæ þann fjórtánda maí fyrst þá er kenndi hann greði. Hreinn Guðvarðarson sá óðar hvað vakti fyrir kerlu: Kerlingin beið inn á beði brosand’ af hamingj’ og gleði í friðsælum bæ þann fjórtánda maí er karlinn loks gneistað’ af „greði“. Þegar Ólafur Ragnar Grímsson sagði óábyrgt að fara í viðræður við ESB varð Steini Kristjánssyni að orði: Íslenzk þjóð með allt þitt fé! ábyrg meður góðan séff. Ekki ganga í Eessbjé eins og Dorritt Mússajeff! Sagt er að trúin flytji fjöll. Davíð Hjálmar Haraldsson leggur út af því: Það er sagt að trúin flytji fjöll og firnindi ef bæta þarf og laga, því er best að ganga á þau öll áður en hún færir Tröllaskaga. Magnús Ólafsson byggði sér sum- arhús á Sveinsstöðum með miklu útsýni norður yfir sveitina og allt norður á Spákonufell. „Þangað fæ ég oft góða gesti í heimsókn og á laugardagskvöldið sagði ég við góða gesti: Allt er núna oss í hag eftir þessu takið. Sitjum hér við sólarlag og sötrum koníakið.“ Að lokum „örlítið ljóð fyrir svefn- inn“ eftir skáldið Sigrúnu Haralds- dóttur: nú lægir vind og fislétt alda fellur þýtt um fjörusteina máða eitt stundarbil er stafalogn og stilla og þögnin ráða svo grafarkyrrð því grænklædd jörðin gengin er til náða Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af kerlingunni, Snæólfi Heði og fjórtánda maí Í klípu PABBI REYNDI, EN AFMÆLIN VORU ALLTAF BETRI HJÁ MÖMMU. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „PÍTSAN ER KOMIN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fara út í vonda veðrið til að ná í lyfin hennar. ÓKEI, ÓSKAÐU ÞÉR OG BLÁSTU SVO Á LJÓSAPERUNA. PASSIÐ YKKUR Á RÚLLANDI STEINUM FRAMUNDAN! ÉG KOMST ALDREI Á STEFNUMÓTIÐ MEÐ LÍSU. VINDURINN VAR Á MÓTI MÉR. LÍSA ER HEPPIN KONA.Mikið hefur verið látið meðframmistöðu Brasilíu í hinum svokölluðu álfuleikum í knattspyrnu. Vissulega spiluðu Brasilíumenn eins og sá sem valdið hefur, létu boltann ganga leifturhratt og sprengdu upp varnir andstæðinganna. Hinn umtal- aði Neymar sýndi að honum er ekki alls varnað og tilhugsunin um að næsta vetur spili hann og Messi hlið við hlið í FC Barcelona fær Víkverja til að velta fyrir sér hvort það sé sanngjarnt, frekar en þegar bestu strákarnir í fótbolta hrúguðu sér all- ir í sama lið á leikvellinum í gamla daga þannig að andstæðingarnir áttu ekki séns. Þó er vissulega frekar til- hlökkunarefni að eiga von á því að þessir tveir snillingar eigi eftir að spila hlið við hlið. Nái þeir að stilla saman strengi sína og forðast egó- bólgur má búast við sannkallaðri veislu. x x x Víkverji áttar sig ekki á hvort sigurBrasilíu á Spáni ber því vitni að valdaskeið Spánverja í knattspyrnu sé á enda. Spánverjar hafa leikið af miklum móð undanfarin ár, en á síð- asta stórmóti mátti þó greina að broddurinn í sóknarleik þeirra var ekki jafn hvass og áður. Hrakfarir spænskra félagsliða gegn þýskum liðum í meistaradeild Evrópu í vetur hafa síðan verið notaðar til að smíða rök í kringum kenningar um að spænski boltinn sé að þrotum kom- inn. Víkverja finnst hæpið að afskrifa Spánverjana. Þótt vissulega séu þeir ekki jafn sannfærandi og áður eru þeir engir aukvisar. Þess utan hafa Brasilíumenn verið svo gott sem ósigrandi á heimavelli í hálfan mannsaldur. Brasilískir áhorfendur kunna greinilega að láta í sér heyra og spara sig hvergi við að hvetja sína menn til dáða. Það hlýtur að vera frekar þrúgandi að spila fótbolta þegar tugþúsundir áhorfenda baula í hvert skipti sem maður snertir bolt- ann, þótt auðvitað verði að ætla að ríkjandi heims- og Evrópumeistarar ættu að vera ýmsu vanir. Bras- ilíumenn hljóta hins vegar að teljast æði sigurstranglegir á næsta heims- meistaramóti, sem haldið verður í Brasilíu, og verður sennilega lítið að græða á því hjá veðbönkum að veðja á að þeir verði næstu heimsmeist- arar. víkverji@mbl.is Víkverji Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð. (Rómverjabréfið 3:23) - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.