Morgunblaðið - 03.07.2013, Síða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Á fáeinum dögum hefur risið sirk-
usþorp við Norræna húsið í Vatns-
mýrinni, sjö sirkustjöld, stór og
smá. Á morgun hefst þar mikil
sirkushátíð, sú fyrsta sem haldin
hefur verið hér á landi, með sýn-
ingum frá hádegi alla daga og
fram á kvöld. Á hátíðinni verður
boðið upp á sirkus í ýmsum mynd-
um, allt frá barna- og fjöl-
skyldusýningum yfir í sýningar að-
eins ætlaðar fullorðnum og auk
þess sirkusnámskeið fyrir börn og
fullorðna, sirkusljósmyndasýningu,
óvæntar uppákomur, sirkuskaffi-
hús og götuleikhús.
Skuggaleikir, tálsýnir og jafn-
vægislistir á eldspýtum
Þekktasti sirkushópurinn á há-
tíðinni er Cirkus Cirkör en hann
flytur sýninguna Wear it Like a
Crown í Borgarleikhúsinu. Í henni
„hreyfa sirkuslistamennirnir sig í
heimi tálsýna, skuggaleiks, hnífa-
kasts, loftfimleika, juggls og leiks.
Sex ólíkir persónuleikar, einmana
og einir í heiminum að þeim finnst,
glíma við krísur sínar“, eins og því
er lýst á vef Norræna hússins. Af
öðrum má nefna Cirkus Xanti sem
sýnir Bastard, sýningu fyrir unga
áhorfendur sem snýst um það hvað
hendurnar gera og geta gert og
fer hún fram í sirkustjaldinu
Öskju. Tjöldin bera öll nöfn ís-
lenskra eldfjalla, í takt við titil há-
tíðarinnar, Volcano eða Eldfjall.
Íslendingar eiga líka sína fulltrúa
meðal listamanna því Sirkus Ís-
lands sýnir Heima er best og af
öðrum forvitnilegum má nefna
sýningu sem ekki er ætluð við-
kvæmum, Fakírakabarettinn með
norskum sirkusmönnum sem kalla
sig Pain Solution. Sú sýning er
sögð gamansöm og innihalda m.a.
jafnvægislistir á eldspýtum, flótta
úr spennitreyju og eldát.
Norðmaðurinn Sverre Waage er
í forsvari fyrir Circus Xanti og
jafnframt sá sem flutti sirk-
usþorpið og hátíðina hingað til
lands. Hann rekur fyrirtækið Cir-
cus Xanti sem rekur sirkusþorp í
Noregi sem nú er komið hingað til
lands. Þorpið er styrkt af norska
ríkinu og er fyrsta sirkusverkefnið
sem hlotið hefur ríkisstyrk þar í
landi, að sögn Waage. Þorpið hefur
farið milli þriggja borga í Noregi á
sumrin; Sarpsborg, Óslóar og
Sandvíkur. „Ég hef unnið við sirk-
us, leikhús og sviðslistir frá árinu
1980. Ég dýrkaði sirkus þegar ég
var ungur drengur og óskaði þess
að ég yrði numinn á brott af sirk-
ushópi,“ segir Waage og hlær.
Honum varð ekki að ósk sinni en
hins vegar þróuðust málin þannig
að nú starfar hann við þetta æsku-
áhugamál sitt, allan ársins hring.
Hirðfífl, Chaplin og dada
Waage virðist alfróður um hina
aldagömlu list kennda við fjölleika
og segir áhrif hennar mikil í lista-
sögunni, þau megi m.a. greina hjá
dada-listamönnum og í þöglum
kvikmyndum meistara á borð við
Chaplin og Buster Keaton sem
hafi í raun verið sirkuslistamenn
þótt þeir hafi ekki verið titlaðir
sem slíkir. Þá hafi skemmtikraftar
konunga til forna, hirðfífl t.d., ver-
ið hálfgerðir frum-sirkuslistamenn.
Waage ítrekar að um sérstakt
sviðslistarform sé að ræða, tengt
leiklistinni, sem eigi sér margar og
afar fjölbreyttar birtingarmyndir.
Og það besta við sirkuslistina sé
að hún krefjist engrar sérþekk-
ingar af áhorfendum, allir geti not-
ið góðrar sirkussýningar.
Þessar sýningar sem boðið er
upp á eru afar fjölbreytilegar, allt
frá hreinum og klárum fjölskyldu-
og barnasýningum yfir í sýningar
eingöngu ætlaðar fullorðnum …
„Já, fólkið í Norræna húsinu
lagði áherslu á að sýningarnar
væru skemmtilegar af því þetta er
haldið hér í fyrsta sinn. Íslend-
ingar eru líka alla vega eins og
annars staðar í heiminum þannig
að sumir vilja sjá tilraunakennda
list, aðrir vilja sjá skrípaleik eða
eitthvað nautnafullt. Svo eru
barna- og fjölskyldusýningar þann-
ig að fjölskyldur fá eitthvað við
sitt hæfi,“ segir Waage. Þótt engir
dansandi fílar eða ljón verði á
ferðinni byggi sirkushóparnir sýn-
ingar sínar á hinni aldagömlu sirk-
ushefð, með göldrum og hnífakasti
m.a. og sýningarnar haldnar í
hefðbundnum hringlaga sirkus-
tjöldum og leikhússal með sama
formi.
„Allar þessar sýningar eru
áhugaverðar á sinn hátt og það
góða er að þú þarft ekki að hafa
lesið Shakespeare eða Ibsen til að
njóta þeirra,“ segir Waage um há-
tíðina. „Þetta er fyrir skynfærin.“
Óskaði þess að vera numinn á brott af sirkus
Sirkushátíðin Volcano hefst í Vatnsmýrinni og Borgarleikhúsinu á morgun og stendur í 11 daga
Norðmaðurinn Sverre Waage hefur flutt heilt sirkusþorp frá Noregi til Vatnsmýrarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Æfing Þessir sirkuslistamenn voru að æfa sig í liðinni viku þegar ljósmyndara
Morgunblaðsins bar að garði og að sjálfsögðu smellti hann af þeim mynd.
Ein af mörgum forvitnilegum sýningum hátíðarinnar er The Stockholm
Syndrome eða Stokkhólmsheilkennið, sýning sænsks pönksirkushóps,
Burnt out Punks. Um sýninguna segir í bæklingi hátíðarinnar: „Stokk-
hólmsheilkennið er eldfim, bensíndrifin, anarkista pönk-sirkussýning.
Sýningin stendur yfir í 70 mínútur og mun kynda vel undir áhorf-
endum.“ Aðgangur að sýningum, sem fram fara í sirkusþorpinu 6. og 7.
júlí kl. 23, er ókeypis, að því er fram kemur í bæklingnum.
Kynt undir áhorfendum
STJÓRNLAUSIR PÖNKARAR
Upplýsingar um sýningarnar á há-
tíðinni, dagskrá og miðasölu má
finna á vef Norræna hússins,
nordice.is, og á miðasöluvefnum
midi.is.
Eldgleypir Listamaður úr Burnt out Punks á sýningu.
Töfraheimur Sverre Waage, forsvarsmaður Circus Xanti, með sirkusþorpið í Vatnsmýrinni í bakgrunni. Boðið verður upp á sýningar og viðburði í tjöldunum frá hádegi og fram á kvöld í ellefu daga.
Morgunblaðið/Eggert
Sirkushátíðin Volcano í Vatnsmýrinni