Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013 Nýtt prjónablað komið út! 24 nýjar og fjölbreyttar uppskriftir á alla fjölskylduna Sjá sölustaði á istex.is Útsala Útsala Útsala Hverfisgötu 105 • www.storarstelpur.isMunið bílastæði á bak við hús Opið mán.-fös. frá kl. 11-18, langur lau. 11-16, lau. 11-15. STÓRAR STELPUR tískuvöruverslun Laugavegi 178 - S. 555 1516 Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-16. Str: 36-56 Verð 13.900 kr. - 7/8 sídd - svartar - Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Núna erum við á leið á Hveravelli þar sem að við gistum í nótt. Við sjáum pottinn í hillingum, við höfum ekki talað um annað í allan dag,“ sagði Anna Sigríður Sigurjónsdóttir þegar blaðamaður náði af henni tali síðdegis í gær. Hún hleypur nú með þeim Christine Bucholz og Maríu Jóhannesdóttur um Kjöl og Sprengisand til styrktar MS- félaginu. Það er óhætt að segja að þær stöllur hafi ekki fengið gott veður en þær lögðu af stað á sunnudag frá Gullfossi. Þær hafa hlaupið tæplega maraþon á dag en alls munu þær hlaupa 374 kílómetra. „Það er búið að vera rigning og kalt. Við vorum svo heppin að í gær- kvöldi var okkur boðin gisting við Árbúðir hjá Önnu Láru Pálsdóttur staðarhaldara. Það var þvílíkur lúx- us að þurfa ekki að taka fram tjöldin og tjalda í þessar rigningu, við alveg rennandi blautar og ískaldar. Við vorum afskaplega þakklátar fyrir það,“ segir Anna Sigríður. Margir gefa í baukinn Með þremenningunum í för eru þau Sólveig Magnea Jónsdóttir, Kristín Reynisdóttir, Þröstur Brynjarsson og Tristan Carlsen. Þau aka með hlaupurunum, sjá um matseld og að flytja hafurtask í sendibíl. Anna Sigríður segir að þau hafi mætt fjölda fólks á leið sinni og veif- að. Sólveig hafi tekið upp á því að veifa söfnunarbauk út um glugga bílsins og margir hafi lagt fé í hann. „Ég ætla bara að vona að þeir haldi ekki að þetta sé vegtollur,“ segir hún og hlær. Þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ekki verið þeim hliðhollir segir Anna Sigríður að þær voni það besta. „Þegar á móti blæs og við erum ískaldar og þreyttar hugsum við alltaf um þetta góða málefni og af hverju við erum að gera þetta.“ Á hlaupum Anna Sigríður er vanur hlaupari enda ekki fyrir hvern sem er að hlaupa 374 kílómetra. Kaldar hlaupakonur sjá pottinn í hillingum  Hlaupa maraþon á dag um hálendið fyrir MS-félagið „Fjármálaeftirlitið vinnur nú að sér- stakri athugun sem snýr m.a. að við- skiptaháttum Dróma hf. Í tengslum við þá athugun hefur Fjármálaeftir- litið óskað eftir frekari upplýsingum frá stærstu lánastofnunum til að unnt sé að leggja mat á þá almennu framkvæmd við endurútreikning lána samkvæmt lögum nr. 151/2010 sem tíðkast hjá fjármálafyrirtækjum með gilt starfsleyfi.“ Þetta segir í bréfi Fjármálaeftir- litsins til efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis en nefndin sendi stofnuninni bréf 28. júní síðastliðinn þar sem óskað var eftir því að kann- að yrði hvort Drómi gengi lengra í innheimtu gagnvart lántakendum sínum en aðrar lánastofnanir. Undirbýr svar til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður efnahags- og viðskiptanefndar, birti bréf Fjármálaeftirlitsins á heima- síðu sinni í gær. „Af bréfinu að dæma er Fjármála- eftirlitið að afla upplýsinga um málið og hefur ekki nægar upplýsingar á þessu stigi til að svara spurningu efnahags- og viðskipanefndar um það hvort Drómi hf. hafi hugsanlega brotið lög,“ segir Frosti á síðunni. FME skoðar við- skiptahætti Dróma  Aflar upplýsinga hjá lánastofnunum Fjórði hver starfsmaður Landspít- alans hefur orðið fyrir niðurlægj- andi framkomu, hótunum eða of- beldi af hálfu sjúklings eða aðstandanda. Þetta kemur fram í niðurstöðum starfsumhverfiskönn- unar sem gerð var 4. til 18. mars sl. Í fyrra var þetta sama hlutfall 24% en árið 2010 var það 21%. Þá kemur einnig fram í könn- uninni að 18% af starfsmönnum Landspítalans hafi orðið fyrir nið- urlægjandi framkomu, hótunum eða ofbeldi af hálfu yfirmanns eða samstarfsmanns. Til samanburðar var þetta hlutfall 16% á síðasta ári og 15% árið 2010. Jafnframt höfðu 8% starfsmanna spítalans orðið fyr- ir einelti af hálfu yfirmanns eða samstarfsmanns samanborið við 7% í fyrra og 6% árið 2010. Loks kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar að 6% starfsmanna spítalans hafi orðið fyrir kynferð- islegri áreitni af hálfu sjúklings eða aðstandanda samanborið við 5% í fyrra og 4% árið 2010. Jafnframt hafa 2% orðið fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu yfirmanns eða sam- starfsmanns en bæði í fyrra og árið 2010 var hlutfallið 1%. Kynferðisleg áreitni og einelti hafa aukist milli ára á Landspítalanum Morgunblaðið/Júlíus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.