Morgunblaðið - 09.07.2013, Page 14

Morgunblaðið - 09.07.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013 Við sérhæfum okkur í vatnskössum og bensíntönkum. Gerum við og eigum nýja til á lager. Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is „Skýrsla Rannsóknarnefndar Al- þingis um Íbúðalánasjóð er ekki haf- in yfir gagnrýni frekar en önnur mannanna verk og því miður hafa nefndarmenn fallið í þá gryfju að fylla hana af slúðri, Gróusögum, og hálfsannleik sem, ásamt á köflum stórfurðulegum útleggingum, gera skýrsluna því miður í heild ótrúverð- uga,“ segir Guðmundur Bjarnason, fyrrum framkvæmdastjóri ÍLS, um rannsóknarskýrslu Alþingis um sjóð- inn í yfirlýsingu sem að hann sendi frá sér í gær. Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni á mbl.is Ósannindi í skýrslunni Í yfirlýsingunni segir Guðmundur að skýrsluhöfundar hafi mjög ein- kennilega nálgun á mörgum veiga- miklum atriðum og þeir setji fram órökstuddar og ósannar dylgjur líkt og niðurstað- an hafi verið gefin fyrirfram. Í því samhengi nefnir hann sem dæmi ráðningu fram- kvæmdastjóra, „hreinar vangaveltur um ráðningar án auglýsinga og langt er seilst í að tengja menn saman með flóknum hætti að því er virðist í ann- arlegum tilgangi og jafnvel er dylgj- að á auvirðilegan hátt um samband manna sem koma ÍLS ekkert við. Og síðast en ekki síst eru látnir einstak- lingar bornir sökum sem nú er sann- að að ekkert var hæft í.“ Þá segir einnig í yfirlýsingunni að athugasemdir hans við skýrsluna séu hvergi nærri tæmandi, en hann ákvað því að tiltaka fjóra þætti sérstaklega; meint tap ÍLS, innkomu bankanna á íbúðalánamarkað, breytingar á verð- brétaútgáfu ÍLS og lausafjárstýr- ingu með lánasamningum. Meint tap metið ónákvæmlega Guðmundur segir að nefndin full- yrði að áætlað tap ÍLS frá 1999-2012 sé 270 milljarðar króna og „lætur liggja að því að þessir fjármunir séu nú þegar tapaðir. ÍLS hefur birt upp- lýsingar varðandi þetta meinta tap og telur það nema 64 milljörðum, fyrst og fremst vegna afleiðinga hrunsins. Sú fjárhæð er 7,3% af efna- hagsreikningi ÍLS, sem var 876 millj- aðar í árslok 2012,“ skrifar Guð- mundur. Hann segir þetta í alla staði ónákvæmt og að allar áætlanir um 270 milljarða tap séu út í hött. „Því er nauðsynlegt að hlutlaus og trúverð- ugur einstaklingur fari yfir þessa meintu útreikninga og kynni hina réttu tölu fyrir Alþingi og alþjóð, en það átti reyndar að vera hlutverk rannsóknarnefndarinnar.“ Segir skýrslu ÍLS fulla af ósannindum  „Nauðsynlegt að hlutlaus og trúverðugur einstaklingur kynni réttar tölur fyrir Alþingi og alþjóð,“ segir í yfirlýsingu  Telur tap sjóðsins rangt reiknað  Segir skýrsluhöfunda skauta framhjá hruninu Morgunblaðið/Golli Íbúðalánasjóður Í rannsóknarskýrslunni er tap ÍLS sagt um 270 ma. króna. Guðmundur Bjarnason Sigurður Hallur Stefánsson, formað- ur rannsóknarnefndar Alþingis um stöðu Íbúðarlánasjóðs, hefur fengið sent bréf frá lögmanni Halls Magn- ússonar, fyrrverandi sviðsstjóra sjóðsins, en í bréfinu er farið fram á afsökunarbeiðni vegna umfjöllunar um Hall í skýrslu nefndarinnar, en Hallur telur hana „bæði ósanna og meiðandi“. Segir starfið hafa verið auglýst Ummælin sem vísað er til í bréf- inu lúta að því að starf Halls, sem yf- irmaður gæða- og markaðsmála hjá Íbúðalánasjóði, hafi ekki verið aug- lýst, en ummælin eru þessi: „Einnig vekur athygli að Hallur Magnússon, sem á þeim tíma hafði lengi verið starfandi í Framsóknarflokknum, var ráðinn til stofnunarinnar, fyrst sem yfirmaður gæða- og markaðs- mála en síðar sem yfirmaður þróun- ar- og almannatengslasviðs og að lokum sem sviðsstjóri þróunarsviðs. Ekki fæst séð að umrædd staða hafi verið auglýst er Hallur var fyrst ráð- inn árið 1999.“ Í bréfinu er fullyrt að þetta sé rangt og því til stuðnings er birt af- rit af auglýsingu sem birt var í Morgunblaðinu í júní árið 1999 þar sem að starfið er auglýst. Þá er því einnig haldið fram að Hallur hafi á fundum sínum með rann- sóknarnefndinni upplýst nefndina um ráðningar- ferlið, en á það hafi ekki verið hlustað og nefnd- in hafi gegn betri vitund kosið að halda áfram „algerum rangfærslum“ sem séu til þess fallnar „að kasta rýrð á starfsferil og æru“ Halls. Þá er í bréfinu birt ítarleg ferilskrá Halls og greint frá því að hann hafi farið í gegnum ráðningarferli hjá Gallup og verið metinn hæfastur umsækjenda. Vill frá afsökunarbeiðni Sveinn Andri Sveinsson, lögmað- ur Halls, segir í bréfinu að þess sé farið á leit „við virðulega rannsókn- arnefndina að hún leiðrétti þessa rangfærslu hið snarasta með til- kynningu til fjölmiðla auk þess að biðja umbj. [minn] afsökunar á þess- um meiðandi rangfærslum, svo ekki þurfi að koma til frekari eftirmála“. Hallur krefst afsökunarbeiðni  Segir skýrsluna ósanna og meiðandi Hallur Magnússon Carl Bauden- bacher, forseti EFTA-dóm- stólsins hefur verið endur- skipaður dóm- ari við dóm- stólinn til næstu sex ára. Ríkisstjórnir þeirra EFTA- ríkja sem jafn- framt eiga aðild að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES), þ.e. Noregs, Íslands og Liechtenstein, tóku ákvörðun þess efnis hinn 5. júlí síðastlið- inn. Í fréttatilkynningu frá dóm- stólnum segir að um sé að ræða fjórða sex ára tímabil Bauden- bachers við dómstólinn en hann tók fyrst sæti sem dómari þar ár- ið 1995. Hið nýja skipunartímabil hefst hinn 6. september næst- komandi og lýkur því hinn 5. september árið 2019. Heldur áfram sem dómari hjá EFTA Carl Baudenbacher

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.