Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 16
BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Umsóknum í MBA-nám hjá Háskól- anum í Reykjavík fjölgaði um 80- 90% milli ára, að sögn Telmu Sæ- mundsdóttur verkefnastjóra. Hún getur ekki gefið upp hve margir sóttu um en nefnir að um 50 verði teknir inn. Magnús Pálsson, forstöðumaður MBA-námsins í Háskóla Íslands, segir að umsóknum hafi einnig fjölg- að mikið í sama nám hjá HÍ eða um 30-40%. Hann segir að hóparnir í náminu megi ekki verða of stórir, því þá missi nemendur nánd í hópastarfi og fleira. Fjöldi umsókna í ár er þó ekki jafn mikill og á árunum fyrir hrun en for- svarsmenn námsins segja að það fari að nálgast það. Eftir hrun dróst að- sókn í námið mikið saman hjá skól- unum, árið 2010 var samdrátturinn um 60-70% hjá HR. Kostar þrjár milljónir Námið hér á landi kostar nemend- ur um þrjár milljónir króna. Nokkuð strangt inntökuferli er í námið, um- sækjendur þurfa að skila inn grein- argerð hvers vegna þeir hafi hug á náminu, meðmælum og eru teknir í viðtal. Meðalaldur umsækjenda beggja skóla er um 38-39 ára. „Við veltum því fyrir okkur hvort þessa aukningu megi þakka góðri markaðssetningu eða breyttum tíð- aranda,“ segir Telma í samtali við Morgunblaðið og nefnir að útskrif- aðir nemendur hafi fengið góð störf að námi loknu. „Við vinnum mark- visst að því að fá til okkar góða nem- endur með fjölbreyttan bakgrunn,“ segir hún. Magnús segir að það sé ótrúlega gaman að sjá að námið sé aftur að sækja í sig veðrið. Ástæðan kunni að liggja í aukinni áherslu hjá fólki að vera sífellt að bæta við sig námi. Hafi einhver útskrifast sem viðskipta- fræðingur fyrir um áratug hafi margt breyst og því sé skynsamlegt að setjast aftur á skólabekk auk þess sem mörg fög, t.d. verkfræði eða lög- fræði, kenni litla stjórnun og því geti verið æskilegt fyrir fólk að bæta við sig MBA-gráðu. „Margir stinga sér í MBA-nám þar sem það er prakt- ískara en hefðbundið meistaranám,“ segir hann í samtali við Morgunblað- ið. Margir standi á tímamótum Telma segir að margir sinna um- sækjanda standi á tímamótum. Nemendur vilji vera betur í stakk búnir til að takast á við breytta tíma hjá fyrirtækinu sem þeir vinna hjá, t.d. sé stefnt að því að fyrirtækið vaxi umtalsvert eða það hafi áhuga á að breyta um starfsvettvang og þá komi þessi menntum að góðum notum. Svo séu margir sem gangi með hug- mynd að fyrirtæki í maganum en skorti tæki og tól til að framkvæma hana og fari því í námið. Mun fleiri konur en erlendis Síðustu ár hafa ávallt verið um fimm erlendir nemendur í MBA- námi HR sem kennt er á ensku. Sumir þeirra eigi maka hér á landi en aðrir hafi mikinn hug á að læra á Íslandi. Námið er alþjóðlega vottað og um 70% kennaranna eru erlendir, að sögn Telmu. Helmingur nemenda í MBA-náminu í HR eru konur og helmingur karlar. „Kynjahlutföllin erlendis eru yfir- leitt 70% karlmenn og 30% konur,“ segir hún Umsóknum í MBA-nám HR fjölgar um 90% milli ára  Umsóknum í MBA nám HÍ fjölgar einnig mikið eða um 30-40% milli ára Háskólanám Áhugi á MBA-námi hér á landi hefur glæðst mikið milli ára. Námið kostar nemendur talsvert eða um þrjár milljónir króna. Ástæðan fyrir auknum áhuga kann að liggja í því að fólk vill sífellt bæta við sig námi. Magnús Pálsson Telma Sæmundsdóttir Morgunblaðið/Ómar 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013 Silkimjúkir fætur fyrir sumarið Þökkum frábærar viðtökur Fæst í apótekum STUTTAR FRÉTTIR ● Mat Reitunar á lánshæfi Arion banka er B+ með jákvæðum horfum. Láns- hæfismatið hefur því breyst úr stöð- ugum horfum í jákvæðar, segir í frétt frá Arion banka. Í greiningu Reitunar kemur fram að fjárhagslegur styrkleiki bankans sé mikill og kjarnastarfsemi og samkeppn- isstaða sterk. Gæði lánasafnsins fari batnandi og lok fjárhagslegar end- urskipulagningar nokkurra stórra aðila sem unnið hafi verið að muni styrkja kennitölur. Nánar á mbl.is Arion banki með B+ með jákvæðum horfum ● Landsbankinn og Klak Innovit hafa staðið fyrir 11 svokölluðum Atvinnu- og nýsköpunarhelgum (ANH) á jafn mörg- um stöðum á landinu síðan haustið 2011. Átakinu er nú lokið og sóttu yfir 500 manns þessar nýsköpunarhelgar, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Tæplega 200 viðskiptahugmyndir af ýmsum toga litu dagsins ljós. Í til- kynningu kemur jafnframt fram að veitt voru verðlaun fyrir bestu viðskipta- hugmyndina í hvert sinn. Landsbankinn og Klak Innovit munu halda áfram sam- starfi á þessu sviði næsta vetur. Yfir 500 manns á ný- sköpunarhelgum Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Hlutafé Eikar fasteignafélags, sem er í hópi stærri fasteignafélaga landsins, var aukið um 750 milljónir kr. í hlutafjárút- boði sl. föstudag. Að teknu tilliti til útboðsins nemur verðmæti fyrir- tækisins hátt í sjö milljörðum króna, skv. upp- lýsingum frá for- stjóra fyrirtækis- ins. Garðar Hannes Friðjónsson, for- stjóri Eikar, segir í samtali við Morgunblaðið að nýta eigi hlutafjár- aukninguna til að kaupa fasteignir. „Frá því að við endurfjármögnuðum fyrirtækið fyrir rúmlega hálfu ári höfum við keypt fasteignir fyrir um einn og hálfan milljarð. Með hluta- fjáraukningunni gefst tækifæri til að halda áfram fyrirhugaðri stækkun félagsins.“ segir hann. Ekki fæst uppgefið hvaða eignir voru keyptar á tímabilinu en þær eru miðsvæðis, í póstnúmerum 101 og 108. Mikil umframeftirspurn var eftir hlutabréfum í útboðinu sem klárað- ist allt til forgangsréttahafa. Alls tóku 99,4% núverandi hlutahafa þátt. Garðar segir að fjárfestar sem eigi ekki í félaginu hafi haft áhuga á að kaupa bréf en það hafi ekki staðið til boða. Hins vegar hafi að undan- förnu verið nokkuð um að hlutabréf í félaginu hafi skipt um hendur. Hann segist bundinn trúnaði um hver hafi keypt og selt. „Stefna félagsins er að skrá hlutafé þess á markað en við höfum ekki viljað lýsa því yfir hvenær það verður. Við viljum vanda vel til verka, en stefnan hefur verið mörk- uð,“ segir hann. Eik var endurskipulagt árið 2011 og eignuðust þá eigendur óverð- tryggðra skulda þess 90% hlut í fyr- irtækinu. Lífeyrissjóðir eiga um helmings hlut. Þar síðasta sumar var hlutafé félagsins aukið um 1,9 milljarða króna og síðasta haust voru lán endurfjármögnuð þegar gefið var út og skráð í kauphöll skuldabréf fyrir 11,6 milljarða króna. Samkvæmt skilmálum skuldabréfsins má eiginfjárhlutfall skuldabréfsins ekki fara undir 18%. Eftir hlutafjáraukninguna nemur það 32,8%, sé miðað við þriggja mán- aða uppgjörið. Eik metið á hátt í sjö milljarða  750 milljóna króna hlutafjáraukning Garðar Hannes Friðjónsson                                         !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 +1/.- ++0.23 ,+.331 ,2.,+0 +1.40 +42.5- +.,5,1 +1/.+1 +3+.3- +,3.20 +1/.03 ++0.5+ ,+./4+ ,2.,/0 +1.555 +42.1+ +.,535 +1/./5 +3,.+ ,+1.543+ +,3.40 +11.5, ++0./3 ,+./05 ,2.440 +1.501 +4+.+/ +.,- +11.4 +3,.-- Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.