Morgunblaðið - 09.07.2013, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013
✝ AðalheiðurFriðriksdóttir
Jensen fæddist á
Sjúkrahúsinu í
Keflavík 9. júní
1965. Hún lést á
heimili sínu 30.
júní 2013.
Foreldrar henn-
ar eru Sigríður
Ágústa Þórólfs-
dóttir, f. 1944 og
Friðrik Jensen, f.
1936. Aðalheiður átti þrjú
systkini. 1) Gunnar Þór, f.
1964, hann er kvæntur Sig-
urbjörgu Jónsdóttur, f. 1964.
Þau eiga þrjú börn, Guðlaugu
Sigríði, Ásgeir og Kristberg. 2)
Sigrún, f. 1968, gift Rudy C.
van Doorn, f. 1960. Börn þeirra
eru Friðrik Jensen og Sigríður
Ósk. 3) Laeila Jensen, f. 1974,
gift Vilmundi Halldórssyni, f.
1976. Barn hennar er Sylvía
Lind, andvana, f.
14. júlí 1999. Börn
hans eru Sara
Dögg, Einar
Sveinn og Lilja
Guðrún.
Aðalheiður læt-
ur eftir sig fjórar
dætur. 1) Linda
María, f. 1982,
maki hennar er
Gabríel Bragason,
f. 1975. Saman
eiga þau Guðrúnu Kolbrúnu, f.
2006, Aðalheiði Maríu, f. 2008
og Mikael Úlvar, f. 2012. 2)
Lilja Rós, f. 1984. 3) Guðný
Ósk, f. 1987, hún á dótturina
Kristínu Sigrúnu, f. 2009, með
Ólafi Árna Torfasyni. 4) Vic-
toría Rut, f. 2004, faðir hennar
er Stefán Eyjólfsson.
Útför Aðalheiðar fer fram
frá Keflavíkurkirkju í dag, 9.
júlí 2013, kl. 13.
Ástkær móðir mín, klettur
minn og stuðningur í gegnum alla
lífsins erfiðleika.
Þó ég fái ekki að snerta þig
veit ég samt að þú ert hér,
og ég veit að þú munt elska mig
geyma mig og gæta hjá þér.
Og þegar tími minn á jörðu hér,
liðinn er þá er ég burtu fer,
þá ég veit að þú munt vísa veg
og taka á móti mér.
(Ingibjörg Gunnarsdóttir)
Sunnudagurnin 30. júní var og
verður ávallt versti dagur lífs
míns, dagurinn sem þú yfirgafst
þennan heim elsku mamma. Ég
trúði ekki því sem systir mín var
að segja þegar hún hringdi í mig,
ég man að það fyrsta sem ég hugs-
aði var „ég verð að komast til Ís-
lands“, ég var alveg viss um að þú
mundir taka á móti mér í flugstöð-
inni eins og alltaf. Afneitunin var
algjör, ég hafði talað við þig
nokkrum dögum áður og þú varst
að koma í sumarfrí til Noregs eftir
tvo daga, þetta gat ekki verið satt!
Þú hlakkaðir svo til að koma, og
það gefur mér vissa huggun að
vita að þú lést með gleði og til-
hlökkun í hjarta.
Fjölskyldan hefur ávallt verið
það mikilvægasta í þínu lífi, þú
vildir ekki verða neitt annað en
mamma þegar þú varst lítil og
hefur þú verið besta mamma sem
nokkur getur óskað sér. Þú stóðst
sem klettur hjá mér í gegnum allt
mitt líf, sama hvað kom upp á þú
tókst á við það með styrk og
ákveðni, þú bugaðist aldrei og
brást mér aldrei.
Gömul þjóðsaga segir frá barni
sem var við það að fæðast.
Barnið snýr sér að Guði og seg-
ir:
Mér er sagt að ég verði send á
jörðina á morgun, en hvernig get
ég lifað eins lítil og ósjálfbjarga
sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr
hópi engla og hann bíður eftir þér.
Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér, hérna á himn-
inum geri ég ekkert annað en að
syngja og brosa og það er nóg til
þess að vera hamingjusöm.
Engillinn þinn kemur til með að
syngja fyrir þig, hann brosir til
þín alla daga og þú verður umluk-
in ást hans og þannig verðurðu
hamingjusöm.
En hvernig get ég skilið þegar
fólkið talar við mig þar sem ég
þekki ekki tungumálið sem menn-
irnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð
við þig, fallegustu orð sem þú hef-
ur nokkurn tíma heyrt og með
mikilli þolinmæði og kærleik
kennir hann þér að tala.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu
til vondir menn. Hver getur varið
mig?
Engillinn þinn mun verja þig,
þó svo það kosti hann lífið.
Á þessu andartaki færðist ró
yfir himininn og guðdómlegar
raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra, þar sem ég er að
fara segðu mér, hvað heitir engill-
inn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú
kallar hann bara „mömmu“.
Ég mun ávallt elska þig og
sakna, hjartans engillinn minn.
Þín dóttir,
Guðný Ósk Jensen.
Elsku fallega mamma mín.
Þegar ég hugsa um allar stund-
irnar okkar saman þá kemur
margt upp í hugann, öll góðu ráðin
og samræðurnar sem við áttum.
En aldrei tókstu lífið of alvarlega
og ekki langt í hláturinn þegar við
vorum saman. Þú varst svo miklu
meira en bara mamma mín heldur
varstu besta vinkona mín og alltaf
reiðubúin að hjálpa og gefa mér
ráð þegar ég þurfti á að halda, þú
varst alltaf og verður alltaf klett-
urinn minn og hetja.
Loks beygði þreytan þína dáð,
hið þýða fjör og augnaráð;
sú þraut var hörð – en hljóður nú
í hinsta draumi brosir þú.
(Jóhannes úr Kötlum)
Ávallt þín dóttir,
Lilja Rós Jensen.
Elsku Heiða okkar. Þegar þú
fæddist varstu pínuítil. Ekki nema
8 merkur en afskaplega dásamleg
dóttir alla tíð. Gunni bróðir þinn
sem var 15 mánuðum eldri fór
strax í stóra bróður hlutverkið og
passaði upp á litlu systur og það
gerði hann alla tíð. Þið áttuð til að
bralla ýmislegt saman sem
mamma var kannski ekki alltaf
hrifin af en það var alltaf vel
meint. Síðan komu systur þínar
Sigrún og Laeila og þú varst dug-
leg að passa þær, með tímanum
urðuð þið bestu vinkonur. Þú
varst ekki nema 16 ára þegar þú
varðst ófrísk að elstu stelpunni
þinni Lindu, síðan kom Lilja og
Guðný áður en þú náðir 24 ára
aldri. Frá fyrstu tíð varstu dásam-
leg mamma, þú varst kornung
þegar þú varðst einstæð móðir en
það aftraði því ekki að þú gerðir
ekki allt fyrir þær. Á þessum ár-
um varstu heilsuhraust og dugleg
að vinna, þú vannst hin ýmsu störf
og varst alltaf vel liðin, þú unnir
íslenskri náttúru og þér leið aldrei
betur en úti í náttúrunni. Þú mátt-
ir heldur aldrei neitt aumt sjá og
það voru ófá dýrin sem dætur þín-
ar komu með heim og var hjúkrað
af þér. Það var sama hvort þetta
voru hundar, kettir, fuglar, fiskar
eða hamstrar, öll voru þau vel-
komin undir þinn vendarvæng.
En svo kom áfallið, þú misstir
heilsuna og ert búin að stríða við
mjög mikið heilsuleysi í yfir 20 ár.
En aldrei var nein uppgjöf í þér og
alltaf gerðir þú allt sem þú mögu-
lega gast fyrir fjölskyldu þína. Ár-
ið 2004 gerðist kraftaverk, þú
eignaðist hana Victoríu Rut á jóla-
dag. Stóru systurnar kepptust
hver um aðra þvera að dekra hana
og hjálpa þér með hana. Hún var
ljósið þitt þessi litla stelpa og mik-
ill gleðigjafi fyrir alla fjölskyld-
una.
En elsku Heiða mín, alltaf
versnaði heilsan þín og fyrir 3 ár-
um ákvaðst þú að flytja aftur heim
til Keflavíkur þegar þú fannst að
þú þurftir hjálp með Victoríu.Við
vorum svo lánsöm að þú fékkst
íbúð í næsta húsi við okkur pabba
þinn, og þannig gerðist það að þú
fannst það öryggi fyrir þig og
stelpuna þína sem þú hafðir þráð.
Það er stundum sagt að það þurfi
heilt þorp til að ala upp barn, við
fjölskylda þín vorum það þorp.
Elsku Heiða mín, lífið þitt hefur
ekki verið auðvelt en alltaf gastu
fundið gleðina þína í stelpunum
þínum og barnabörnunum sem þið
Victoría voruð að fara að heim-
sækja til Noregs.
En það átti ekki að verða, aðeins
tveim dögum áður en sá dagur
kom varðst þú bráðkvödd á heimili
þínu, elsku hjartans stelpan okkar,
og í staðinn fyrir að þú farir til
þeirra koma þau öll að kveðja þig.
Við pabbi þinn eigum svo erfitt
með að sætta okkur við þetta en á
sama tíma erum við að segja okkur
að nú sért þú komin til Guðs sem
þú elskaðir og treystir og laus við
alla sjúkdóma sem hrjáðu þig.
Við vitum í hjörtum okkar að nú
líður þér vel, laus úr viðjum sárs-
auka, elsku hjartans barnið okkar,
og við lofum þér því að við munum
öll gera okkar besta fyrir Victoríu
og hjálpa okkur öllum að geyma
minninguna um bestu mömmu,
ömmu, systur, mágkonu og ekki síst
dóttur sem nokkur getur óskað sér.
Farðu í friði, hjartans dóttir
okkar, og vertu ávallt Guði falin.
Mamma og pabbi.
Hinsta kveðja. Elsku fallega
systir mín. Ég sit hérna og er að
reyna að hripa einhver fátækleg
orð á blað. Það er svo erfitt því að
ég bjóst ekkert við því að ég væri
að fara að kveðja þig. Alltaf höfum
við verið samrýndar systur og oft
þurftum við ekki að tala saman til
þess að vita hvað hvor okkar var að
hugsa því að við bara vissum það.
Þú skilur eftir þig stórt skarð elsku
Heiða mín og mun enginn geta
fyllt upp í það, við munum gera allt
sem í okkar valdi stendur til að
passa upp á litlu fallegu stelpuna
okkar hana Victoríu. Ég mun
ávallt sakna þín elsku stóra systir,
en við munum hittast aftur og ég
veit að það verður tekið vel á móti
þér þarna uppi af lítilli frænku,
ömmum og öfum.
Ég elska þig elsku Heiða mín og
mun sakna þín og ég kveð þig með
þessum orðum þangað til að við
hittumst á ný.
Kæra vina, ég sakna þín,
ég vildi að þú kæmist aftur til mín.
En þú ert umvafin ljósi þar,
eins og þú varst reyndar alls staðar.
Sárt er að horfa á eftir þér,
en ég veit að þú munt muna eftir mér.
Því þitt hreina hjarta og bjarta sál,
munu þerra okkar trega tár.
(Sigríður Vigdís Þórðardóttir)
Þín litla systir,
Laeila.
Elsku Heiða mín, nú ert þú laus
úr þessum kvölum og þrautum og
átt örugglega betri tíð þar sem þú
ert núna. Ég vildi að ég hefði get-
að gert eitthvað meira fyrir þig en
ég gerði, en þú varðst að stjórna
ferðinni í þeim efnum. Gleðistund-
ir þínar úti í Eyjum voru okkur
Siddý jafn kærar og eftirminni-
legar og þær geta hugsanlega orð-
ið. Guð veri með þér og varðveiti
og styrki stelpurnar þínar og leið-
beini okkur á erfiðum stundum á
þessum erfiða tíma.
Dag í senn, eitt andartak í einu,
eilíf náð þín, faðir gefur mér.
Mun ég þurfa þá að kvíða neinu,
þegar Guð minn fyrir öllu sér?
Hann sem miðlar mér af gæsku sinni
minna daga skammt af sæld og þraut,
sér til þess að færa leið ég finni
fyrir skrefið hvert á lífs míns braut.
Hann, sem er mér allar stundir nærri,
á við hverjum vanda svar og ráð,
máttur hans er allri hugsun hærri,
heilög elska, viska, föðurnáð.
Morgundagsins þörf ég þekki eigi,
það er nóg, að Drottinn segir mér:
Náðin mín skal nægja hverjum degi,
nú í dag ég styð og hjálpa þér.
Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum
frið og styrk, sem ekkert buga má.
Auk mér trú og haltu huga mínum
helgum lífsins vegi þínum á,
svo að ég af hjartaþeli hreinu,
hvað sem mætir, geti átt með þér
daginn hvern, eitt andartak í einu,
uns til þín í ljóssins heim ég fer.
(Sigurbjörn Einarsson)
Gunnar Þór (Gunni)
og Sigurbjörg (Siddý).
Aðalheiður Frið-
riksdóttir Jensen
✝ Hörður Jóns-son fæddist í
Reykjavík 11. októ-
ber 1929. Hann lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Eir 30. júní
2013.
Hörður var son-
ur hjónanna Guð-
rúnar Kristófers-
dóttur frá Vindási í
Landsveit og Jóns
Guðjónssonar húsa-
smíðameistara í Reykjavík, frá
Litlu-Brekku í Geiradal. Hörður
var elstur þriggja bræðra, næst-
ur honum var Guðjón, f. 19.
mars 1932, d. 7. janúar 2010,
yngstur er Gunnar, f. 13. októ-
ber 1935.
Hörður kvæntist hinn 29. des-
ember 1955 Guðríði Júl-
íusdóttur, f. 3. september 1935,
starfskonu á Skattstofu Reykja-
víkur. Þau eiga eina dóttur, Est-
er, f. 18. september 1965, og á
hún eina dóttur,
Ernu Björg Sverr-
isdóttur, f. 26. mars
1990. Fyrir átti
Hörður dótturina
Guðrúnu Ernu, f.
16. nóvember 1952,
móðir hennar er
Guðrún Kristjáns-
dóttir. Guðrún
Erna hefur verið
búsett í Svíþjóð síð-
astliðin fjörutíu ár
og á hún þrjú börn, Jónas, Lindu
og Helenu, og tvö barnabörn,
Axel og Júlíu.
Hörður lærði símvirkjun hjá
Landssíma Íslands og vann hann
hjá Landssímanum til ársins
1965. Þá var hann ráðinn til
Ríkisútvarpsins sem tæknimað-
ur og starfaði hann þar út
starfsævina.
Útför Harðar fer fram frá Ár-
bæjarkirkju í dag, 9. júlí 2013,
og hefst athöfnin kl. 15.
Elsku afi minn, það er með
söknuð í hjarta sem ég kveð þig.
Allar þær góðu minningar sem ég
á um þig eru of margar til að koma
niður á blað, hvað þá í stutta grein.
Alltaf varstu svo góður við mig og
gerðir allt sem í þínu valdi stóð til
að uppfylla óskir mínar, sama
hversu barnalegar þær voru.
Hvort sem það var að hleypa á
harðastökki í gegnum Víðidalinn
eða fara í sleppitúr í ausandi rign-
ingu, þvert á vilja mömmu, þá
stóðst þú alltaf með mér. Ég gat
ávallt leitað til þín ef eitthvað bját-
aði á og varðst þú snemma einn af
mínum bestu vinum. Öll ferðalög-
in sem við fórum saman, hesta-
ferðir og útilegur, eru dýrmætar
minningar sem ég mun halda upp
á um ókomna tíð. Ég þekki engan
mann, og mun eflaust aldrei gera,
sem hafði jafnmikla þekkingu á
náttúru landsins og þú. Í ófá skipti
sat ég í aftursætinu í bílnum þín-
um, blaðaði í Vegahandbókinni og
las fyrir þig áhugaverðar sögur
um þær sveitir og bæi sem við
keyrðum framhjá. Oftar en ekki
bjóst þú þó yfir meiri þekkingu en
bókin og varð ég alltaf jafnupp-
numin yfir visku þinni. Erfitt er að
minnast þín án þess að hugsa um
fiskbúðinginn og bökuðu baunirn-
ar. Það þótti okkur herramanns-
matur og hefðum eflaust getað
borðað í hvert mál. Amma og
mamma gerðu mikið grín að okk-
ur fyrir einhæfa eldamennsku en
við vorum ávallt hæstánægð og
þótti mér fátt betra en fiskbúðing-
ur hjá afa. Elsku afi, þú varst einn
besti maður sem ég hef þekkt og
verð ég ævinlega þakklát fyrir að
hafa átt þig að. Þú munt ávallt
eiga sérstakan stað í hjarta mínu.
Erna Björg Sverrisdóttir.
Hörður, mágur minn, er látinn
eftir baráttu við þungbært heilsu-
leysi hin síðustu ár.
Minningar mínar um Hörð eru
óteljandi enda ná kynni okkar yfir
nær sextíu ár, þar af í nánu sam-
býli í fjörutíu ár. Hörður og Guð-
ríður systir mín, alltaf kölluð
Gúrrý, reistu sér hús í Hvassaleiti
árið 1962, en við Esther kona mín
fluttum inn í litla íbúð á efri hæð
hússins sama ár. Það sambýli stóð
til ársins 1971, er við hjónin ásamt
Herði og systur minni keyptum
saman þriggja hæða hús í Kópa-
vogi sem við fluttum inn í sama ár.
Í íbúð á jarðhæð hússins fluttu
foreldrar okkar systkina og
bjuggu þar til dánardægurs.
Svona langur sambýlistími þarf
ekki að vera einstakur en ég tel
sjaldgæfara að aldrei slettist upp
á vinskapinn né hallaði orði milli
okkar Harðar allan þennan tíma.
Ýmislegt þurftum við þó að gera
vegna sameignarinnar og leystum
við það allt í bróðerni, en ég við-
urkenni að margt af því verklega
lenti á Herði sem var mér miklu
verklagnari svo að þar var ég
fremur hjálparmaður hans en
samverksmaður.
Hörður var í slíku uppáhaldi
móður minnar, sem bjó í íbúð sinni
allmörg ár eftir að pabbi dó, að
hún leit fremur á hann sem son en
tengdason enda reyndist hann
henni stöðugt hjálparhella í öllum
efnum og var samband þeirra
ávallt mjög innilegt.
Við Hörður störfuðum hvor á
sínum vettvangi og mættumst því
lítt á þeim grunni. Hins vegar átti
Hörður sér snemma áhugamál,
sem var rekstur og akstur fjalla-
bifreiða. Eigum við Esther marg-
ar ógleymanlegar minningar frá
ferðum með Herði og systur minni
vítt og breitt um landið. Annað
áhugamál Harðar síðar á ævinni
var hestamennska, sem hann
stundaði meðan kraftar leyfðu.
Systir mín deildi þessum áhuga
með honum í mörg ár og ekki dró
úr áhuganum að Ester einkadóttir
þeirra stundaði hestamennskuna
með þeim frá barnæsku og stund-
ar raunar enn. Fjölskyldan keypti
myndarlegt hesthús í Víðidal sem
Ester á nú og hýsir þar ennþá
hesta sína á vetrum. Hörður átti
löngum ágæta hesta sem hann
naut jafnt sumar sem vetur.
Ljúfar eru minningar okkar
hjóna um áratuga samvist og vin-
áttu við Hörð og Gúrrý systur,
sem ógerlegt er að tína til en þær
ná meðal annars til óteljandi sam-
vistastunda í sumarbústað þeirra
hjóna við Þingvallavatn og síðar
einnig sumarbústað okkar Est-
herar við Álftavatn.
Fjölskyldubönd þessarar litlu
fjölskyldu hafa verið svo náin að
dóttir systur minnar og Harðar,
Ester, og Þorsteinn Freyr, sonur
okkar, voru sem börn líkari systk-
inum en frændsystkinum og ekki
skaðaði að afi og amma bjuggu á
fyrstu hæðinni. Veit ég að Herði
féll afar vel að búa í svona fjöl-
skylduhúsi.
Þegar lífinu lýkur verður ekk-
ert annað eftir en minningarnar
um þann sem kveður. Ég á ekkert
annað en góðar minningar um vin
minn og mág Hörð Jónsson, sem
við Esther kveðjum með söknuði
og virðingu.
Megi allar góðar vættir fylgja
og vernda Gúrrý systur mína,
Ester, Ernu Björgu og Guðrúnu
Ernu.
Þorsteinn Júlíusson.
Látinn er nú Hörður vinur
minn. Fáir, ef nokkur, fyrir utan
foreldra mína hafa haft jafnmikil
áhrif á mig á lífsleið minni og
hann. Leiðir okkar lágu saman
snemma í mínu lífi enda var
hann giftur móðursystur minni
og voru samskiptin þar að lút-
andi mikil. Jafnframt voru sum-
arbústaðir þeirra systra hlið við
hlið en þar eyddi ég yfirleitt
bróðurpartinum af sumrum
bernsku minnar. Ávallt var ég
aufúsugestur hjá þeim hjónum
auk þess sem nokkur sumur
varði ég fáeinum vikum hjá þeim
þegar sumarleyfi foreldra minna
lauk. Þegar fólk á sumarbústað
eru mörg verkin sem þarf að
framkvæma og var ég oft að að-
stoða Hörð við hin ýmsu verk.
Ég hef grun um að hjálpin hafi
nú oft verið minni en engin en
ekki minnist ég þess að styggð-
aryrði hrykki nokkurn tímann af
vörum Harðar, heldur tel ég að
við höfum báðir notið samvist-
anna. Hörður kynnti mig fyrir
hestamennsku og var iðinn við
að bjóða mér með í reiðtúra jafn-
framt sem hann kynnti mig fyrir
hálendisferðum á jeppum. Fátt
þótti merkilegra á þeim tíma en
að fá að sitja í Lada Sport þegar
farið var yfir hin ýmsu vatnsföll.
Í þessum ferðum lærði ég að
meta náttúruna og fegurð lands-
ins og var Hörður duglegur að
fræða mig um það sem fyrir
sjónir bar, eða að segja frá ýms-
um ferðum sem hann hafði farið
áður fyrr enda hafði hann gaman
af að segja frá og hafði frá mörgu
að segja. Það er því með miklum
söknuði sem ég kveð þennan vin
minn en þó er efst í huga mér
þakklæti til hans fyrir allt það
sem hann hefur gefið mér og
mun ég búa að því alla ævi.
Sigurjón Örn Arnarson.
Hörður Jónsson
Blómasmiðjan Grímsbæ
v/Bústaðaveg
S: 588 1230
Samúðarskreytingar
Útfaraskreytingar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn