Morgunblaðið - 09.07.2013, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013
Það er gaman að spila saman,eða það skín í það minnstaí gegn á breiðskífunniFyrstu 45 árin með hljóm-
sveitinni Æfingu sem helguð er sögu
hljómsveitarinnar frá því hún lék
fyrst opinberlega 1968. Hversu gam-
an það er fyrir óinnvígða að hlusta
er svo annað mál, ekki síst í ljósi
þess að á plötunni eru ekki sögu-
legar upptökur, þær eru ekki til,
heldur upptökur miðaldra manna
sem horfa um öxl.
Hljómsveitin Æfing starfaði á
Flateyri á sínum tíma og þá sem
ballsveit sem hefur væntanlega að-
allega verið að spila vinsæl lög eftir
aðra. Hún lagði aldrei upp laupana
þó að lítil starfsemi muni hafi verið á
síðustu áratugum, en þeir félagar
komu svo saman í Vagninum á Flat-
eyri 2009 til að minnast eins stofn-
enda sveitarinnar. Þá varð til lag
sem sagði sögu Æfingar og í fram-
haldi af því fór einn liðsmanna, Sig-
urður Björnsson, Siggi Björns, að
róta í lagasafni sínu eftir einhverju
sem setja mætti á plötu.
Siggi Björns er sá eini þeirra Æf-
ingarfélaga sem fengist hafa við tón-
list og platan
er mjög lituð af
því, hann á
þorra laganna,
hans ráma
rödd setur
sterkan svip á
það sem fram fer og stíllega fellur
þessi plata vel að þeim sólóskífum
sem Siggi hefur sent frá sér. Hann
er þó ekkert að trana sér fram og
þeir Æfingarfélagar syngja flest
laganna saman.
Þetta er aðallega plata fyrir þá
sem þekkja Æfingu og kannski
spurning hvort ekki hefði verið nóg
að framleiða bara nokkrar plötur,
kannski eina á mann, en sjálfsagt
hafa Flateyringar á miðjum aldri,
jafnvel á öllum aldri, gaman af að
hlusta á skífuna, enda er þar sungið
um persónur eins og Guðbjart Jóns-
son sem stofnaði Vagninn á sinni tíð
og Aðalstein Vilbergsson í Allabúð
meðal annars. Upphafslag skíf-
unnar, „Æfingin skapar meist-
arann“, lagið sem kom öllu af stað,
er skemmtilegt lag og margt reynd-
ar vel gert á plötunni, nefni sem
dæmi lagið „Kem eftir rétt strax“,
sem er fínt grípandi lag. Söngurinn
er þó vandamál í mörgum laganna,
hljóðin eru ekki alltaf fögur þó að
fjölraddaður söngur breiði yfir
brestina, en slíkur söngur verður
leiðigjarn til lengdar.
Botninn dettur svo úr plötunni
þegar kemur að B-hlðinni, eins og
þeir félagar kalla það, en þá taka
þeir fyrir gamlar lummur: „Þórs-
merkurljóð“, „Héraðsmót“, „Ó
María“ og „Sestu hérna hjá mér“.
Yfirskrift þessa hluta plötunnar er
Sveitaball en það er ekki mikið fjör á
því sveitaballi, það er mun for-
vitnilegra að heyra þá félaga glíma
við eitthvað sem aðrir hafa ekki gert
betur. (Við það bætist svo að á um-
slagi hafa menn víxlað Maríulög-
unum, en það er nú ekki stórmál.)
Æfing í Vagninum
Æfing – Fyrstu 45 árin
bbnnn
Hljómplata hljómsveitarinnar Æfingar
frá Flateyri. Flest lög eftir Sigurð
Björnsson. Foxhold gefur út.
ÁRNI
MATTHÍASSON
TÓNLIST
Ljósmynd/ Ragnar Th. Sigurdsson
Innvígðir „Þetta er aðallega plata fyrir þá sem þekkja Æfingu.“
Popp
Fornmunir snerta marga oghafa oft orðið uppsrettadeilna og átaka. Þetta eralgengt viðfangsefni í
bókum og kvikmyndum. Sara Blæ-
del hefur skrifað mikið um græðgi
og því kemur ekki á óvart að hún
skuli róa á þessi
mið.
Spennusagan
Dauðaengillinn
segir frá hvarfi
aldagamallar
steinglermyndar,
Dauðaengilsins,
úr fórum danskr-
ar fjölskyldu, sem
átt hefur lista-
verkið lengur en
elstu menn muna. Á sama tíma er lát
húsmóðurinnar til rannsóknar hjá
lögreglunni. Lögreglan er einnig
með hvarf kvenna á sólarströnd á
sínu borði og sem fyrr er það í hönd-
um Louise Rick að leysa málin.
Í raun eru þetta tvær sögur sem
tengjast áður en yfir lýkur. Upp-
byggingin er góð og flétta fyrri sög-
unnar er vel úthugsuð en frásögnin
af hvarfi stúlknanna hefði frekar átt
heima í sjálfstæðri sögu. Þar er ým-
islegt ósagt, þó að viðbjóðurinn kom-
ist ágætlega til skila.
Græðgi er útgangspunkturinn og
Söru Blædel fer það vel úr hendi að
varpa ljósi á andrúmsloftið sem
græðginni fylgir. Þegar peningar
eru annars vegar svífast sumir
einskis og skiptir þá ekki máli hver á
í hlut. Höfundi tekst vel upp við per-
sónusköpunina, sérstaklega þegar
illmenni og gráðugt fólk eiga í hlut,
en inni á milli leynast góðar sálir
sem vilja engum illt. Barátta hins
góða og hins illa getur tekið á sig
ýmsar myndir.
Sara Blædel skrifar aðgengilegan
texta og þýðingin er góð. Glæpasag-
an Dauðaengillinn er spennandi og
þó að snemma komi í ljós hvar helsta
meinið er, er frásögnin ekki búin
fyrr en sagan er öll. Ágæt-
isafþreying.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Vel úthugsuð flétta
Spennusaga
Dauðaengillinn bbbmn
Eftir Söru Blædel. Árni Óskarsson og
Magnús Sigurðsson þýddu. 300 bls.
Kilja. Uppheimar 2013.
Læsileg Græðgin er Söru Blædel
hugleikin í nýrri skáldsögu.
Ljósmynd/Jesper Sunesen
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
THELONERANGER KL.5-6-8-10:10-11
THELONERANGERVIP KL.5-8-11
MANOFSTEEL3D KL.5-8-11
MANOFSTEEL2D KL.9
WHITEHOUSEDOWN KL.8-11
HANGOVER-PART3 KL.5:50-8
SAMMY2 ÍSLTAL2D KL.6 TILBOÐ400KR.
KRINGLUNNI
THE LONE RANGER KL. 5 - 8 - 11
MAN OF STEEL 3D KL. 5 - 10
THE BIG WEDDING KL. 6 - 8 - 10:30
NOW YOU SEE ME KL. 8
THE LONE RANGER KL. 5 - 8 - 10 - 11
MAN OF STEEL 3D KL. 5 - 8 - 11
MAN OF STEEL 2D KL. 10:30
THE BIG WEDDING KL. 6 - 8
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
THELONERANGER KL.5-8-11
THISTHEEND KL.8
MANOFSTEEL2D KL.10:20
EPIC ÍSLTAL2D KL.5:50
AKUREYRI
THE LONE RANGER KL. 5 - 8 - 11
MAN OF STEEL 2D KL. 5 - 10
THE BIG WEDDING KL. 8ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
SPECTACULAR
EMPIRE
GLÆSILEG
OFURHETJUMYND
H.S.S. - MBL
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR PIRATES OF THE CARIBBEAN MYNDIRNAR
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
Missið ekki af þessari
stórkostlegu teiknimynd
frá höfundum Ice Age
16
16
16
EKKERT EYÐILEGGUR GOTT PARTÝ
EINS OG HEIMSENDIR!
FRÁ HÖFUNDUM SUPERBAD
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
BYGGT Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM
UM LEIGUMORÐINGJANN RICHARD KUKLINSKI
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð Þriðjudagst
ilboð
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
12
THIS IS THE END Sýnd kl. 5 - 8 - 10:20
WHITE HOUSE DOWN Sýnd kl. 5 - 10
THE PURGE Sýnd kl. 8
THE ICEMAN Sýnd kl. 8 - 10:20
EPIC 2D Sýnd kl. 5
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is