Morgunblaðið - 10.07.2013, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 0. J Ú L Í 2 0 1 3
Stofnað 1913 159. tölublað 101. árgangur
DIONNE WARWICK
FÆR ALDREI LEIÐA
Á LÖGUNUM
HEFJA LEIK
Á EM Á MORGUN
19 ÁRA VINIR
MEÐ EIGIN
FATALÍNU
KOMNAR TIL KALMAR ÍÞRÓTTIR ÆTLA AÐ NÁ LANGT 10SYNGUR Í HÖRPU 34
Morgunblaðið/Jim Smart
Rússneskir togarar Fimm þeirra
koma til Hafnarfjarðar í vikunni.
Fimm rússneskir togarar koma til
Hafnarfjarðar í þessari viku, ýmist til
að landa frystum sjávarafurðum eða
til að umskipa afla á milli skipa. Þeir
kaupa hér vistir, olíu, vatn, varahluti
og jafnvel veiðarfæri. Auk þess borga
þeir hafnargjöld, tolla og aflagjöld, að
sögn Sigvalda H. Jósafatssonar hjá
skipamiðluninni Gáru ehf. í Hafnar-
firði.
Gára annast umboðsmennsku fyrir
mörg erlend skip sem koma hér í höfn,
bæði skemmtiferðaskip, vöruflutn-
ingaskip og ekki síst útlenda togara.
Rússnesku togararnir stunda karfa-
veiðar í úthafinu á Reykjaneshrygg og
grálúðuveiðar við Austur- og Vestur-
Grænland. »13
Rússar leita til Hafnar-
fjarðar eftir þjónustu
23 milljarðar til vara
» Lánasafn ÍLS er um 800
milljarðar og þar af hafa 23
milljarðar verið settir í var-
úðarsjóð afskrifta.
» Um helmingur er eyrna-
merktur leigufélögum.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íbúðalánasjóður hefur afskrifað
milljarða króna af íbúðalánum heim-
ila í kjölfar efnahagshrunsins.
Ekki fékkst uppgefið hversu mikið
hefði verið afskrifað en þó var stað-
fest að um milljarða væri að tefla.
Sigurður Erlingsson, forstjóri
sjóðsins, vísar til lagaákvæða.
„Heimild til afskrifta er í lögunum
um húsnæðismál en hefur ekki verið
mikið notuð fyrr en eftir 2008. Af-
skriftum umfram markaðsverð er oft
beitt samhliða hinum opinberu úr-
ræðum. Ef þau ganga ekki nógu
langt er afléttingu krafna umfram
söluverð oft beitt til viðbótar. Þá er
um að ræða fólk sem er búið að fara í
110% leiðina, greiðsluaðlögun eða
sértæka skuldaaðlögun.“
Hann segir nokkuð um yfirtökur
nýrra lántaka á lánum einstaklinga
sem hafa fengið úrlausn á skulda-
vanda, auk hefðbundinna yfirtekinna
lána, og að því sé umfang viðskipta
sjóðsins meira en tölur yfir nýjar
lánveitingar kunni að gefa til kynna.
Hann segir umsókn ÍLS um að fá
að veita óverðtryggð lán í farvegi.
Ætlunin var að ÍLS hæfi slíkar
lánveitingar fyrir síðustu áramót en
nú er óvíst hvort það tekst í ár.
M ÍLS afskrifar »4
Afskrifar skuldir heimila
Íbúðalánasjóður nýtir heimildir til afskrifta þegar önnur úrræði þykja fullreynd
Forstjóri sjóðsins segir oft um að ræða fólk sem er búið að fara í 110% leiðina
Morgunblaðið/Eggert
Veiðigjöld Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, staðfesti lögin.
„Það er mikilvægt að forsetinn hafi
samþykkt lögin,“ segir Sigurður Ingi
Jóhannsson sjávarútvegsráðherra
um þá ákvörðun Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands, að stað-
festa breytingar á lögum um veiði-
gjöld. Forsetinn tilkynnti þetta á
Bessastöðum í gær. Þar sagði hann
m.a. að umrædd lög fælu ekki í sér
grundvallarbreytingu á nýtingu auð-
lindarinnar.
Ísak Jónsson, einn aðstandenda
undirskriftasöfnunarinnar Óbreytt
veiðigjöld, segir ákvörðun forsetans
vera ákveðin vonbrigði. Forsetann
hafi skort hugrekki í málinu. »2
Lögin staðfest
„Mikilvægt,“
segir ráðherra
Fjögur skemmtiferðaskip komu til hafnar í Reykjavík í gær
og eitt til Hafnarfjarðar. Að sögn Ágústs Ágústssonar, mark-
aðsstjóra Faxaflóahafna, var þetta stærsti dagur sumarsins
hvað varðar komur skemmtiferðaskipa. Frá vinstri eru Ocean
Princess, Aida Luna, Azamara Quest og Celebrity Eclipse við
hafnarbakkana. „Þetta hittist nú þannig á að það var raun-
verulega stuttur tími sem það voru fjögur skip í höfninni sam-
an,“ segir Ágúst spurður að því hvort mikið hafi verið um að
vera í höfninni í gær. Hann bætir við að Faxaflóahafnir hafi
neyðst til að nota Sundabakka, Kornbakka og Skarfabakka til
að koma öllum þessum skipum fyrir. „Þetta gekk allt mjög vel
og slysalaust fyrir sig,“ segir Ágúst en fjöldi hópferða- og
leigubíla beið farþeganna á hafnarbakkanum og umsvifin því
mikil. Einnig gengu margir í bæinn í blíðviðrinu.
Tæplega 15 þúsund fleiri ferðamenn komu hingað til lands í
gegnum Leifsstöð í júní á þessu ári heldur en í fyrra. Þetta
kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Þannig komu
138.796 ferðamenn til Keflavíkurflugvallar í júní sl. en á sama
tíma í fyrra voru þeir 123.974 talsins. Er þetta aukning um
12%. Enn meiri aukning varð í maímánuði en þá komu 92.235
ferðamenn en þeir voru 77.461 í fyrra. skulih@mbl.is
Annasamasti dagurinn í Reykjavíkurhöfn
Morgunblaðið/Ómar
Fjögur erlend skemmtiferðaskip í Sundahöfn í gær og eitt í Hafnarfirði
Nærri 139 þúsund ferðamenn fóru um Leifsstöð í júnímánuði 12% aukning á milli ára
„Við teljum að
þegar menn
reyna að há-
marka kröfur
sínar með því að
fara á svig við
lögin sé það
auðgunarbrot,“
segir Sævar Þór
Jónsson, lögmað-
ur Ásthildar B.
Guðlaugsdóttur
sem hefur kært fjóra stjórnendur
Dróma til sérstaks saksóknara,
m.a. fyrir auðgunarbrot.
Lögmaður Dróma segist gera ráð
fyrir að Sævar Þór verði kærður
fyrir rangar sakargiftir. »14
Ásakanir ganga á
víxl vegna Dróma
Ásthildur B.
Guðlaugsdóttir
Eigendur bresku veitingastaða-
keðjunnar Fish’n’Chick’n, sem sér-
hæfir sig í breska þjóðarréttinum
„fish and chips“, hafa í hyggju að
opna veitingastað hér á landi. Fyr-
irtækið starfrækir í dag 38 versl-
anir í Suðaustur-Englandi en horf-
ir núna til þess að opna staði á
Íslandi, í Rússlandi og Sviss undir
vörumerkinu Churchill’s.
Fish’n’Chick’n hefur sterk
tengsl við Ísland en fyrirtækið
hefur átt farsælt samstarf við
Hraðfrystihúsið Gunnvöru síðast-
liðinn tuttugu ár. Til marks um
þetta samstarf og sterk tengsl fyr-
irtækisins við Ísland má meðal
annars sjá auglýsingu frá keðjunni
við heimavöll knattspyrnufélagsins
BÍ/Bolungavík á Torfnesi á Ísa-
firði. »17
Fish’n’Chick’n
opnar stað á Íslandi