Morgunblaðið - 10.07.2013, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013
Þetta er alveg skelfilegt,“ segir Páll Egill Winkel, forstjóriFangelsismálastofnunar, glettnislega þegar blaðamaðurspyr hann út í stórafmælið. Páll er fæddur 10. júlí 1973 og er
því fertugur í dag. „Ég hef ekki haldið oft upp á afmæli mín og geri
ekki ráð fyrir að ég breyti út af venju að þessu sinni,“ segir Páll sem
tekur hækkandi aldri með stillingu. „Deginum hyggst ég eyða í
vinnunni ásamt frábærum vinnufélögum en ég verð með mömmu,
eiginkonu minni og dætrum um kvöldið.“
Páll finnur sér ýmislegt til dundurs þegar hann er ekki við
skyldustörf en helstu áhugamál Páls eru skrautfiskarækt, danska
landsliðið í knattspyrnu og fjölskyldan hans.
Páll hefur komið víða við á lífsleiðinni. Hann var skipaður for-
stjóri Fangelsismálastofnunar árið 2007 en gegndi áður embætti að-
stoðarríkislögreglustjóra. Þá skýrist áhugi hans á danska landslið-
inu í knattspyrnu ef til vill af því að hann er alinn upp að hluta í
Danmörku en einnig í Reykjavík, Garðabæ og á Seltjarnarnesi. Nú
býr Páll á Álftanesi og unir sér vel. „Það er
frábært að búa á Álftanesi,“ segir afmælisbarnið af mikilli sann-
færingu og bætir við með eilítilli kímni að þar sé líka glæpatíðni
með því lægsta sem gerist á landsvísu. annamarsy@mbl.is
Páll Egill Winkel er fertugur í dag
Morgunblaðið/Júlíus
Með skófluna á lofti Páll Egill Winkel, afmælisbarn dagsins, fagnar
fyrstu skóflustungunni að fangelsi á Hólmsheiði fyrr á árinu.
Tekur stórafmæl-
inu af stillingu
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Akureyri Árdís Júlía
Traustadóttir fæddist
6. nóvember kl. 3.04.
Hún vó 4.072 g og var
55 cm löng. Foreldrar
hennar eru Þórdís
Hrönn Halldórsdóttir
og Trausti Snær Frið-
riksson.
Nýir borgarar
H
erdís fæddist í
Reykjavík 10.7. 1953.
Hún var alin upp í
Laugarneshverfinu í
Sigtúni 29 innan um
hesta, kindur og hitaveituborholur.
Hún gekk í Laugarnesskóla og lauk
þaðan svokölluðu fullnaðarprófi, fór
síðan í Kvennaskólann í Reykjavík
og útskrifaðist með gagnfræðapróf
1970. Þá lá leiðin í framhaldsdeild
Lindargötuskóla og tók þar tvö ár
til að ná takmarkinu að komast í
Hjúkrunarskóla Íslands. Herdís
lauk þaðan hjúkrunarprófi 1976 og
tók svo nám í Stjórnun og rekstri í
heilbrigðsþjónustu hjá endur-
menntun HÍ 2001-2002. Hún hefur
enn fremur sótt ýmis námskeið
varðandi hjúkrun við speglanir.
Deildarstjóri á speglunardeild
Herdís hóf störf á nýstofnaðri
lýtalækningadeild Landspítala
haustið 1976 og fór þaðan á gjör-
gæsludeild Landspítala frá 1978 til
1984. Frá 1984 hefur hún starfað á
speglunardeild Landpítala, lengst
af sem hjúkrunardeildarstjóri. Her-
dís var stundakennari við Þroska-
þjálfaskóla Íslands frá 1976-1978,
Herdís Ástráðsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á LSH – 60 ára
Í Rínardalnum Fjölskyldan á ferðalagi árið 2011 í tilefni af sextugsafmæli eiginmannsins.
Vann lengi að barna-
starfi hjá KFUK
Útreiðartúr Herdís er hér á góðri stundu með Blakki.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Vertu ferðafær í fríinu!
JÚLÍ
SKOÐUN
ARMÁN
7 Höfum áreiðanleikann að leiðarljósi í sumarog látum skoða bílinn á réttum tíma.
Veist þú hvar myndin er tekin?
Myndin hér að ofan er samsett og tekin á tvemur stöðum.
Veist þú hvaða staðir það eru? Reyndu á kunnáttu þína og berðu
saman við rétt svar sem þú finnur á www. frumherji.is