Morgunblaðið - 10.07.2013, Page 11

Morgunblaðið - 10.07.2013, Page 11
Hönnun Hlýrabol- irnir og ísaumuðu húfurnar frá Inklaw Clothing. Guðjón gerði um 200 skissur af merk- inu áður en þeir Róbert urðu sáttir. Morgunblaðið/Rósa Braga Athafnamennirnir Þeir Róbert Ómar Elmarsson og Guðjón Geir Geirsson segja kröfurnar um að klæðast viðeig- andi tískufatnaði vera miklar hjá sinni kynslóð. Þeir ákváðu því að hanna föt sem þeir sjálfir vilja klæðast. armönnum, þeir vinna báðir í tísku- fataverslunum og eru mjög meðvitaðir um hvað er vinsælast hverju sinni. „Það eru svo margir tónlistarmenn í dag að búa til sín eigin föt eins og Soulja boy og Lil Wayne og við sækjum einhverjar hugmyndir til þeirra og kaupum líka fötin þeirra. Við búum líka eiginlega í þannig hverfi að það eru nánast gerðar kröfur um að allir séu í glæ- nýjum fötum og séu töff. Við erum ekki týpurnar til að vera í upp- hnepptum skyrtum og með bindi alla daga. Við viljum bara vera í fötum sem eru þægileg eða kósý,“ segir Róbert og Guðjón tekur við. „Okkar kynslóð er svolítið þannig að maður þarf að eiga það nýjasta og flottasta. Svo langaði okk- ur að vera með föt sem okkur langaði sjálfa til að vera í. Við vorum til dæmis í útskriftarveislu hjá frænku minni um daginn og þá vorum við einmitt bara í Inklaw- bolnum og jakka. Frændi minn sagði einmitt að hann myndi aldrei púlla þetta 27 ára að vera í hlýrabol undir jakka en við gátum það. Þessi tíska er náttúrlega svolítið týputengd.“ Nafnið á fatalínunni tengist húðflúri og einnig merkið á húfunum og því liggur beinast við að spyrja drengina hvort þeir séu með einhver húðflúr. „Nei, en ef það er einhvern tímann rétti tíminn til að fá sér húð- flúr þá er það núna,“ segir Róbert og hlær. „Ég er með tvö, það er ákveðið lífsmottó á annarri hendinni á mér og svo er ég með nafnið á mömmu á brjóstinu en ég gaf henni það í sum- argjöf. Henni brá reyndar svolítið þegar ég sagði henni frá því,“ segir Guðjón. Framtíðardraumur drengjanna er að reka eigin verslun og segja þeir ekki útilokað að það geti gerst innan tveggja ára. „Við mætum alls staðar svo góðu viðmóti, það segja allir já við okkur og hrósa okkur fyr- ir að vera að gera eitthvað sjálfir,“ segir Guðjón. Hægt er að fylgjast með þeim Guðjóni og Róberti á Facebook og Instagram undir Inklaw Clothing. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013 Fræðsludeild hefur verið opnuð í Borgarleikhúsinu til að opna það enn frekar fyrir ungu fólki, þá sér- staklega krökkum á grunnskólaaldri. Markmiðið með deildinni er að efla fræðslu um leikhús og stuðla að auknum áhuga barna og unglinga á þeirri starfsemi sem þar fer fram. Ástrós Elísdóttir mun stýra verkefn- inu en henni til halds og trausts verður fjöldi annarra starfsmanna leikhússins. Einnig verður boðið upp á fyrirlestra í framhaldsskólum landsins auk þess sem ýmiss konar fræðsluefni verður gefið út. Krakkarnir sem koma í heimsókn í leikhúsið fá meðal annars að sjá leiksýningu, skoða leikhúsið og taka þátt í leiksmiðju. Leiksýningin sem verður boðið upp á er Hamlet litli í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar. Leikhúsið verður einmitt ansi barn- vænt næsta vetur en auk Hamlets litla verða sýnd leikritin Mary Popp- ins auk Jólahátíðar með Skoppu og Skrítlu. Þó verða sýningar fyrir alla aldurshópa á borð við Mýs og menn og Furðulegt háttalag hunds um nótt. Eins og undanfarin ár mun leik- húsið auk þess bjóða upp á alls- konar námskeið fyrir eldra fólk í vet- ur í samstarfi við Endurmenntun HÍ. Næsta vetur verður einnig tekin upp sú nýbreytni að bjóða upp á opnar skoðunarferðir fyrir almenning. Stuðlað að auknum áhuga barna og unglinga á leikhúsi Fræðsla Ástrós með leikskólakrökkum í heimsókn í Borgarleikhúsinu. Borgarleikhúsið fræðir Nú hljóta krakkar að kætast því ný- verið kom út barnaplatan Afríka – Söngur dýranna, en um er að ræða fyrstu plötu Einars Þorgrímssonar sem áður hefur einbeitt sér að því að skrifa barna- og unglingabækur. Einar hefur lengi haft áhuga á tónlist enda kominn af mikilli tónlistarfjölskyldu. Platan er þó ekki það eina sem liggur eftir kappann á tónlistarsviðinu því hann samdi tvo barnasöngleiki sem fluttir voru af krökkunum í barnaskól- anum á Litlu-Laugum í Reykjadal árin 1978 og 1979. Auk þess hefur hann samið texta inn á aðra barnaplötu, sem Rut Reginalds söng meðal ann- ars inn á, áður en hann snéri sér að ritstörfum. Gímaldin sér um upptökur og hljóðfæraleik en margir ungir og efnilegir söngvarar léðu söngv- aranum raddir sínar. Barnabókahöfundur gefur út plötu Einar Maðurinn á bak við plötuna. Dýrin í Afríku syngja söngva Komdu og skoðaðu úrvalið! Laugavegi 174 | Sími 590 5040 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 MM Pajero 3,2 Instyle Árgerð 2012, dísil Ekinn 26.500 km, sjálfsk. Ásett verð: 9.390.000 kr,- VW Passat Highline Ecofuel Árgerð 2013, bensín/metan Ekinn 800 km, sjálfsk. Ásett verð: 4.990.000 kr,- Audi Q7 3,0 TDi Árgerð 2011, dísil Ekinn 49.000 km, sjálfsk. Ásett verð: 10.950.000 kr,- Toyota Land Cruiser 200 Árgerð 2008, dísil Ekinn 112.000 km, sjálfsk. Ásett verð: 9.590.000 kr,- FERÐAFÉLAGAR AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM HJÁ HEKLU NOTUÐUM BÍLUM Audi A4 1,8 T Árgerð 2008, bensín Ekinn 56.000 km, sjálfsk. Ásett verð: 4.950.000 kr,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.