Morgunblaðið - 10.07.2013, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013
Umræða um hugsanlega lausn í
svokölluðu „skógarhöggsmáli“ er í
gangi á milli íbúa Rituhóla og
Reykjavíkurborgar.
Forsaga málsins er sú að borgin
kærði nokkra íbúa Rituhóla til lög-
reglu vegna trjáa sem felld voru í
óleyfi í Breiðholti í vor.
Íbúarnir vilja ná fram sátt í mál-
inu og verið er að skoða það innan
borgarkerfisins.
Íbúarnir reikna með niðurstöðu
úr umræðunum í fyrsta lagi í ágúst.
Samkvæmt heimildum frá lögreglu
hefur kæran ekki verið felld niður
og málið er enn til rannsóknar.
jonheidar@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Skemmdarverk Rúmlega 200 tré voru
felld við Rituhóla í Breiðholti í vor.
Umræða um lausn
í skógarhöggsmáli
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Árið 2012 námu meðlagskröfur rúm-
um 3,9 milljörðum króna en upp í
þær fengust greiddir tæpir 2,9 millj-
arðar eða 73,8%. Þetta er nokkur
lækkun frá árinu á undan, þegar
greiðslur námu 76,5% af kröfum, en
betri heimtur en árin 2011 og 2010,
þegar greiðsluhlutfallið var aðeins
um 71%.
Heildarupphæð krafna hækkaði
töluvert frá fyrra ári, eða um nærri
700 milljónir, en Jón Ingvar Pálsson,
forstjóri Innheimtustofnunnar sveit-
arfélaga, segir tvennt koma þar til;
annars vegar hækkun meðlagsins,
sem stendur nú í 25.175 krónum, og
fjölgun krafna frá Tryggingastofn-
un.
Innheimtustofnun hóf árið 2011 að
skuldajafna meðlagskröfum við inn-
eignir vegna vaxtabóta hjá öllum
meðlagsgreiðendum, einnig þeim
sem samið höfðu um sérúrræði
vegna greiðsluerfiðleika, en þeim
hefur hins vegar ekki verið skulda-
jafnað við barnabætur, vegna sér-
stakra ráðstafana í ríkisfjármálum
frá 2008, að sögn Jóns Ingvars.
„Þær tímabundnu ráðstafanir
virðast ennþá vera í gangi, þannig
að þetta eru orðin fjögur ár þar
sem við höfum ekki fengið að nýta
okkur þessa heimild sem við höf-
um, lögum samkvæmt, til að
skuldajafna við barnabætur,“ segir
hann. Hvort af verði á næsta ári seg-
ir hann pólitíska ákvörðun.
Jón Ingvar segir að þeim hafi
hvorki fjölgað né fækkað að ráði sem
sækja um úrræði vegna greiðsluerf-
iðleika. Á milli 150 og 240 slík mál
berist inn á borð stofnunarinnar í
hverjum mánuði.
„Þetta eru náttúrlega mjög marg-
ir einstaklingar sem eru í viðskiptum
hjá okkur, 12-14 þúsund manns ef
allt er tekið,“ segir Jón Ingvar en í
raun sé um þrjá hópa að ræða.
„Það er sem betur fer þessi stóri
góði hópur sem heyrist aldrei í og
sinnir bara sínum lögbundnu skyld-
um. Síðan eru þeir sem lenda í vand-
ræðum og við leitumst við að hjálpa
með þessum ívilnunarúrræðum sem
við höfum. Það bara getur, því mið-
ur, komið upp atvinnuleysi, tekju-
skerðing eða breyttar fjölskylduað-
stæður og við reynum að hjálpa
þeim. Og síðan, því miður, er það
þriðji hópurinn sem vill ekki og ætlar
aldrei að greiða,“ segir hann.
Meðlagskröfur 3,9 milljarðar
Enn ekki
skuldajafnað við
barnabætur
Morgunblaðið/Sverrir
Greiðslur Meðlagið hefur hækkað úr 19.000 í 25.175 krónur á fimm árum.
Meðlög 2012
» Jón Ingvar segir meðlags-
greiðendur þverskurð af þjóð-
félaginu, utan þess að lang-
flestir þeirra eru karlar.
» Alls greiddi 11.801 karl með-
lag með barni árið 2012 en 674
konur.
» Meðlag var greitt með
20.681 barni.
» Fjöldi móttakenda meðlags-
greiðslna var 15.010.
Vatnsaflsstöðvar nota fallþunga vatns til að knýja hverfla sem vinna
rafmagn. Úrkomu og leysingavatni af jöklum landsins er safnað í uppi-
stöðulón, sem flest eru á hálendinu. Lónin eru vatnsmest síðsumars
og geyma þá um 4.600 gígalítra, eða 4,6 rúmkílómetra af vatni.
Þessi forði gerir okkur kleift að vinna raforku jafnt og þétt allt árið.
Velkomin í heimsókn!
Gestastofur Landsvirkjunar eru opnar frá kl. 10-17 alla daga í allt sumar:
Fljótsdalsstöð
Gestastofa í Végarði og leiðsögn um Kárahnjúka
miðvikudaga og laugardaga frá kl. 14-17.
Búrfell
Gagnvirk orkusýning og vindmyllur á Hafinu. Starfsfólk Landsvirkjunar tekur
á móti gestum við vindmyllurnar kl. 13-17 alla laugardaga í júlí.
Krafla
Jarðvarmasýning í gestastofu.
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
Orkuforðinn okkar
Hálslón 2100 Gl1
Þórisvatn 1400 Gl2
Blöndulón 412 Gl3
Hágöngulón 320 Gl4
Krókslón 140 Gl5
Sultartangalón 109 Gl6
7
8
10
11
9
Kelduárlón 60 Gl
Gilsárlón 20 Gl
Bjarnarlón 5 Gl
Ufsarlón og
Vatnsfellslón 3 Gl
Hrauneyjalón 33 Gl
Miðlunarrými helstu lóna á Íslandi:
8
9
1011
412 Gl
56 km²
3
Miðlunarrými
Flatarmál við
fullt lón
Blöndulón