Morgunblaðið - 10.07.2013, Side 17

Morgunblaðið - 10.07.2013, Side 17
BAKSVIÐ Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Eigendur vinsællar veitingastaða- keðju í Bretlandi, sem selur m.a. hinn víðfræga breska skyndibitarétt „fish and chips“, eða fisk og fransk- ar, hafa í hyggju að opna stað á Ís- landi. Þetta kemur fram á frétta- vefnum Undercurrent News í Bretlandi. Fish’n’Chick’n starfrækir 38 verslanir í Suðaustur-Englandi en nú hyggst fyrirtækið, undir vöru- merkinu Churchill’s, horfa á erlenda markaði og opna staði á Íslandi, í Rússlandi og Sviss. Sterk tengsl við Ísland Chesterford Group, sem rekur Fish’n’Chick’n, er yfir 40 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki, stofnað af Hugh Lipscombe, en í dag er sonur hans, James Lipscombe, framkvæmda- stjóri þess. Fyrirtækið býður við- skiptavinum sínum upp á íslenskan fisk en samstarf þess við Hraðfrysti- húsið Gunnvöru hefur varað í tutt- ugu ár. Kaupir breska keðjan ýsu og þorsk og selur til breskra viðskipta- vina með frönskum, en keðjan er einnig þekkt fyrir ljúffenga kjúk- lingarétti sína. Til marks um hin sterku tengsl milli keðjunnar og samfélagsins á Vestfjörðum, þar sem Hraðfrystihúsið Gunnvör hefur höfuðstöðvar sínar, þá má sjá aug- lýsingu keðjunnar við knattspyrnu- völlinn á Torfnesi, heimavelli BÍ/Bol- ungarvíkur á Ísafirði. Árlegar heimsóknir til Íslands Þeir feðgar, Hugh og James, lögðu leið sína til Íslands í byrjun júnímán- aðar og heimsóttu Hraðfrystihúsið Gunnvöru. Bretarnir fara árlega til Íslands og taka stóran hluta af starfsfólki sínu með í hvert skipti. Heilsa þeir upp á áhöfnina, sjá hvernig fiskurinn er veiddur og fylgjast loks með fiskvinnslunni. Í samtali við vikublaðið Bæjarins besta sagði James fyrirtækið ætla að stækka við sig á næstu árum og því sé mikilvægt að þeir haldi áfram samstarfi sínu við Hraðfrystihúsið Gunnvöru, enda er „íslenski fiskur- inn, sem frystur er beint í frystitog- urum, sá besti sem völ er á. Við stefnum á að opna fyrsta alþjóðlega staðinn í Sviss eftir tvo mánuði [í ágúst] svo það eru spennandi tímar framundan hjá fyrirtækinu okkar,“ sagði James enn fremur. Samkvæmt frétt Undercurrent News munu þeir í kjölfarið opna staði í Reykjavík og Moskvu. Gæti slegið í gegn James segist vera fullviss um að skyndibitaréttur þeirra geti slegið í gegn erlendis og hefur trú á að Churchill’s geti orðið alþjóðlegt vörumerki. „Svo lengi sem gæði vör- unnar séu mikil, staðsetning versl- ananna góð og pökkunin og vöru- merkið til fyrirmyndar, þá er það einlæg trú mín að þetta muni slá í gegn,“ sagði James í samtali við Un- dercurrent News. Þjóðarréttur Breta í útrás Að sögn James verður Fis- h’n’Chick’n, undir vörumerkinu Churchill’s, fyrsta breska fyrirtækið til að opna sérstakar verslanir utan Bretlands sem sérhæfir sig í að selja þennan vinsæla skyndibitarétt. Bendir hann á að á meðan erlendir viðskiptavinir séu enn að venjast fisknum með frönskunum, þá muni þeir einnig bjóða upp á kunnuglega kjúklingarétti, svo sem kjúklinga- borgara og steiktan kjúkling. Aðlög- un að matarmenningu hvers lands fyrir sig sé lykilatriði, en markmiðið sé þó að kynna heiminum þennan þjóðarrétt Breta. Bresk veitingastaðakeðja hyggst opna stað á Íslandi  Keðjan og Hraðfrystihúsið Gunnvör hafa átt í farsælu samstarfi í tuttugu ár Feðgarnir Hugh Lipscombe, einn af stofnendum og stjórnendum Fish ’n’Chick’n, og sonur hans James, framkvæmdastjóri Fish’n’Chick’n. Fiskur og franskar » Veitingastaðakeðjan Fish- ’n’Chick’n hyggst opna stað á Íslandi. » Keðjan og Hraðfrystihúsið Gunnvör hafa átt í farsælu samstarfi síðustu tvo áratugi. » Keðjan býður breskum við- skiptavinum sínum upp á ís- lenskan fisk. » Framkvæmdastjóri Fish- ’n’Chick’n segir íslenska fisk- inn þann besta sem völ er á. » Fyrirtækið hefur einnig í hyggju að opna staði í Rúss- landi og Sviss. FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013 STUTTAR FRÉTTIR ● Agnar Daníels- son hefur verið ráðinn sölustjóri atvinnubíla hjá Bílaumboðinu Öskju. Agnar hefur rúmlega 20 ára starfsreynslu hjá hópferðafyrir- tækjum en hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri Kynnisferða og þar áður fyrir SBA- Norðurleið, segir í tilkynningu. Bílaumboðið Askja er að auka áherslur sínar í sölu og þjónustu við at- vinnubíla og ekki síst við atvinnubíla tengda ferðaþjónustu. Starfsreynsla Agnars er því sögð góð viðbót við sölu- deild atvinnubíla hjá Öskju. Agnar ráðinn til Öskju Agnar Daníelsson ● Fjárfestingar sveitarfélaganna hafa á undanförnum árum dregist umtalsvert saman, segir greiningardeild Arion banka. Ef litið sé 15 ár aftur í tímann hafi fjárfestingar sveitarfélaganna num- ið að meðaltali 16% af rekstrartekjum þeirra. En síðastliðin fjögur ár hafi fjár- festingar einungis numið að meðaltali um 9% af rekstrartekjum og 7% síðast- liðin tvö ár. Fjárfestingar til samgöngu- mála hafa dregist saman um 60% að nafnvirði á milli áranna 2008 og 2009 og um 75% frá hruni, segir deildin. Fjárfesting í samgöngu- málum niður um 75% ● VÍB, Eignarstýringarþjónusta Ís- landsbanka, hefur verið valin fremst meðal aðila í eignarstýringarþjónustu á Íslandi af breska fjármálatímaritinu World Finance, samkvæmt frétta- tilkynningu frá Íslandsbanka. Þar kemur fram að tímaritið hefur metið helstu aðila í eignastýringarþjón- ustu hér á landi og VÍB orðið hlutskarp- ast. Meðal þeirra sem hljóti viðurkenn- ingu World Finance séu Danske Bank, JP Morgan í Lúxemborg og DNB Asset Management í Svíþjóð. VÍB fær viðurkenningu frá World Finance Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? IÐNAÐARRYKSUGUR Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum Ryk/blautsuga Drive ZD10- 50L 1000W, 50 lítrar 28.900,- Ryk/blautsuga Drive ZD98A- 2B 2000W, 70 lítrar 43.900,- Drive Bískúrsryksugan 1200W, 20 lítrar 7.490,- Arges HKV-100GS15 1000W, 15 lítrar 23.900,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.