Morgunblaðið - 10.07.2013, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Grasrótarhreyfingin Tamarod í
Egyptalandi krafðist í gær breyt-
inga á stjórnarskrártilskipun sem
bráðabirgðaforseti landsins gaf út
í fyrrakvöld og sakaði hann um að
taka sér of mikil völd.
Grasrótarhreyfingin stóð fyrir
götumótmælum sem urðu til þess
að herinn ákvað að steypa Moha-
med Morsi af stóli forseta í vik-
unni sem leið. Adley Mansour, sem
herinn skipaði forseta til bráða-
birgða, gaf út tilskipun í fyrra-
kvöld um nýja stjórnarskrá sem á
að gilda þar til nýr forseti verður
kosinn. Í yfirlýsingunni lofar
Mansour forsetakosningum ekki
síðar en í byrjun febrúar á næsta
ári.
Mansour hyggst skipa lög-
spekinga í nefnd sem á að leggja
drög að nýrri stjórnarskrá innan
45 daga. Drögin á síðan að leggja
fyrir 50 manna stjórnlaganefnd
sem fær 60 daga til að semja
stjórnarskrá. Nefndin verður m.a.
skipuð fulltrúum stjórnmálaflokka,
verkalýðssamtaka, bænda, vinnu-
veitenda, æðstu klerka súnníta,
kristinna Egypta, hersins og lög-
reglunnar.
Þegar forsetinn hefur fengið
stjórnarskrártillögur nefndarinnar
boðar hann til þjóðaratkvæða-
greiðslu um þær innan 30 daga.
Þingkosningar eiga að fara fram
ekki síðar en tveimur og hálfum
mánuði eftir atkvæðagreiðsluna.
Forsetinn boðar síðan til forseta-
kosninga innan viku eftir fyrsta
fund þingsins.
ElBaradei verði varaforseti
Samkvæmt tilskipuninni á lög-
gjafarvaldið að vera í höndum
bráðabirgðaforsetans þar til nýtt
þing verður kosið. Mansour á einn-
ig að fara með framkvæmdavaldið
og hann áskilur sér vald til að
setja neyðarlög sem geta gilt í allt
að þrjá mánuði.
Bræðralag múslíma hafnaði
tilskipun bráðabirgðaforsetans.
„Stjórnarskrártilskipun frá manni
sem valdaræningjar skipuðu
breytir engu og færir landið aftur
á upphafsreit,“ sagði talsmaður ísl-
ömsku samtakanna.
Tamarod-hreyfingin kvaðst
ekki geta samþykkt tilskipunina
óbreytta vegna þess að hún legði
„grunn að nýju einræði“ og krafð-
ist breytinga á henni.
Bráðabirgðaforsetinn ákvað í
gær að skipa Hazem al-Beblawi,
fyrrverandi fjármálaráðherra
landsins, í embætti forsætisráð-
herra. Mohamed ElBaradei, fyrr-
verandi yfirmaður Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunarinnar, á að vera
varaforseti og fara með utanríkis-
mál í bráðabirgðastjórninni.
Mansour hafði áður ætlað að
skipa ElBaradei í embætti for-
sætisráðherra en hætti við það
vegna andstöðu salafistaflokksins
al-Nur. Hermt var í gær að
flokkurinn tæki nú þátt í viðræð-
um um myndun bráðabirgðastjórn-
ar eftir að hafa dregið sig út úr
þeim í fyrradag.
Að sögn fréttastofu Reuters
er Nur-flokkurinn hlynntur því að
Beblawi verði forsætisráðherra en
ekki er víst að hann styðji að El-
Baradei verði varaforseti.
AFP
Reiðir Stuðningsmenn Bræðralags múslíma mótmæla valdaráni hersins í
Kaíró og krefjast þess að Mohamed Morsi endurheimti forsetaembættið.
Stjórnarskrártil-
skipun gagnrýnd
Hreyfing mótmælenda í Egyptalandi vill breytingar á til-
skipun bráðabirgðaforsetans Íslamistar hafna henni alveg
Forsætisráðherra valinn
» Hazem al-Beblawi, sem
var tilnefndur í embætti for-
sætisráðherra, er álitinn frjáls-
lyndur og var fjármálaráðherra
árið 2011 eftir að Hosni Mub-
arak var steypt af stóli.
» Beblawi er 76 ára, nam
lögfræði í Kaíró, hagfræði í
Grenoble í Frakklandi og fékk
doktorsgráðu í hagfræði við
Parísarháskóla árið 1964.
Fljúgandi ljósker yfir almennings-
garði í borginni Jiangshan í Zheji-
ang-héraði í Kína þar sem fólk safn-
aðist saman til að minnast tveggja
kínverskra stúlkna sem fórust þeg-
ar suðurkóresk farþegaþota brot-
lenti á flugvelli í San Francisco um
helgina. Stúlkurnar voru vinkonur,
16 og 17 ára að aldri.
Yfir 180 farþegar í þotu af gerð-
inni Boeing 777 slösuðust þegar
hún brotlenti. Slysið er rakið til
mistaka flugmanna og talið er að
þotan hafi flogið alltof hægt í að-
fluginu. Suðurkóreska flugfélagið
Asiana Airlines varði flugmennina í
gær og sagði að þeir væru „mjög
hæfir“.
AFP
Stúlkur syrgðar í Kína
GLERLAUSNIR
idex.is - sími: 412 1700
- merkt framleiðsla
•Einangrunargler
•Orkusparandi gler með sólvörn
•Hert gler og samlímt öryggisgler
•Eldvarnargler E30—EI 120
•Hljóðeinangrunargler
•Sjálfhreinsandi gler
•Glerhandrið
Lyftarar í öll verkefni
Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Brettatjakkar
Háhillulyftarar
Staflarar
Tínslutæki