Morgunblaðið - 10.07.2013, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Erum með allar gerðir
af heyrnartækjum
Fáðu heyrnartæki til reynslu
og stjórnaðu þeim með
ReSound Appinu
Komdu í
greiningu hjá
faglærðum
heyrnarfræðingi
Heyrðu umskiptin og
stilltu heyrnartækin
í Appinu
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Strigar, ótal stærðir
frá kr.295 Olíu/Acrýl/
Vatnslitasett
12/18/24x12 ml
frá kr.570
Acryllitir 75 ml
kr.499
Vatnslitasett
kr.695
Skissubækur
kr.790
Þekjulitir/
Föndurlitir
frá kr.845
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Myndlistavörurí miklu úrvali
Nýjar sendingar!
Gólf- og borðtrönur
frá kr.2.100
Ég sendi Morg-
unblaðinu svar við grein
Guðjóns Brjánssonar
frá 3. júlí og þótt málið
sem þá var rætt sé nú
leyst fyrir tilverknað
annars fólks, veit ég
núna að a.m.k.annað
mál bíður úrlausnar á
sama stað svo að loka-
orð svars míns eiga enn
vel við.
Ég vil þakka bæjarstjórn Snæfell-
bæjar drengileg viðbrögð og bæj-
arstjóranum Kristni Jónassyni nota-
leg samskipti þessar vikur.
Morgunblaðinu þakka ég fyrir að
hjálpa til við lausn brýns vandamáls
með því að ljá því rúm á síðum blaðs-
ins, ekki síst fyrir þá sök að mér býður
í grun að það sé víðar en í Heilsu-
verndarstofnun Vesturlands að illa sé
farið með réttindi varnarlítils fólks.
Guðjón Brjánsson sendi mér langt
efnislaust svar í Morgunblaðinu 3. júlí
sem svarar engu af því sem ég ræddi
við hann í Morgunblaðinu 1. júlí. Allt
svar Guðjóns var samsetningur úr út-
úrsnúningum, undanbrögðum, hálf-
sannleik og beinum rangfærslum.
Í fyrsta lagi hefði verið miklu ein-
faldara að færa einhverja aura milli
stofnana, þ.e. „millifæra“, en þeysast
með sjúkling fram og aftur milli stofn-
ana og þá kemur að atriði um flutning
mágs míns til Búðardals: „Sú lausn
var fundin í samráði við hann sjálfan
og nánustu aðstandendur,“ segir þú.
Þetta er auðvitað hægt að segja við
ókunna lesendur Mbl. en ekki við okk-
ur sem til þekkjum.
Hann mágur minn hefur
þurft að beygja sig fyrir
ofríki fólks oft um ævina,
það eru vond örlög, en að
kalla það samráð við fjöl-
skylduna að fyrirskipa
syni hans, sem er eins og
faðir hans lítilmagni í
þjóðfélaginu, þótt góður
þegn sé, að flytja föður
sinn inn í Búðardal tekur
nú út yfir allan þjófabálk.
Það gátuð þið nú ekki
annast sjálf, ja hérna.
Það er rétt að þú bauðst sem svaraði
1⁄3 af kostnaði við dvöl mágs míns í
fimm vikur færi hann til Ólafsvíkur
þann tíma. Enn og aftur: Málið snýst
ekki um það. Og svo við ræðum aura,
ætli það láti ekki nærri að dvöl í Stykk-
ishólmi, sem þú lætur að liggja að hann
mágur minn „eigi vísa“ þegar opnað
verður þar aftur, kosti um það bil
þrisvar sinnum meira en allur kostn-
aðurinn í Ólafsvík. M.ö.o. þú myndir
spara fyrir þína stofnun með því til
áramóta að greiða fullt fyrir hann í
Ólafsvík og eiga eftir u.þ.b. 2⁄3 pláss á
mánuði í Hólminum. Hvernig væri nú
að spara skattféð svolítið?
Þú segir að af hálfu ráðuneytisins
„sé velvilji fyrir málinu“ – af hverju
segirðu ekki satt? Þú hefur bein fyr-
irmæli frá ráðherra heilbrigðismála
um að leysa málið og það í samráði við
Kristin Jónasson í Ólafsvík. Þú ert að
reyna með orðagjálfri og und-
anbrögðum að hunsa þau fyrirmæli.
Hættu því og snúðu þér að því að leysa
málið og ég ítreka – mér er fullkunn-
ugt um vilja þeirra í Ólafsvík til að létta
undir. Það er rangt að ég hafi talað við
þig um málið, þú varst ekki við og
stökkst svo í frí, það var ekki djarft –
það var ósvífni að fara frá málinu
óleystu án þess að láta staðgengli þín-
um fullt umboð í hendur til að leysa
málið. Samstarfsmenn þínir eru ágætt
fólk og svöruðu eins og þeir höfðu um-
boð til. Síðan lætur þú að því liggja að
erfitt sé að ræða við fólk í „tilfinn-
ingalegu uppnámi“. Þar varstu nú
óheppinn með orðaval, ég býst nú við
að þeir sem mig þekkja hafi hlegið hol-
um hlátri þegar þeir lásu þennan
kjánaskap.
Það er alveg tilgangslaust að setja á
langar ræður um erfiðleika í heilsu-
gæslu og góðan vilja alls þorra starfs-
fólks og slær ekki ryki í augu nokkurs
manns sem til þekkir, en menn sem
hunsa sjálfsögð fyrirmæli og þvælast
fyrir jafnvel einföldustu lausnum
skaða þá sem þjónustunnar eiga að
njóta og gera allt kerfið óskilvirkara en
ella væri.
Með sömu hóflegu kveðju.
„Langhundur“
Guðjóns Brjánssonar
Eftir Einar B.
Birnir
» Það er alveg til-
gangslaust að setja á
langar ræður um erf-
iðleika í heilsugæslu …
Einar Birnir
Höfundur er ellilífeyrisþegi.
Reimar Pétursson
hæstaréttarlögmaður
ritar grein í Morgun-
blaðið laugardaginn 29.
júní sl. undir fyrirsögn-
inni „Að sjást ekki fyr-
ir“. Í greininni víkur
Reimar að Dróma hf. og
telur að félagið „sjáist
ekki fyrir í málafylgju
sinni, sem einkennist af
bíræfni og beinist að
minnimáttar“.
Árna Páls-lögin brutu
gegn stjórnarskrá
Álitaefnið sem slíkt varðar setn-
ingu laga nr. 151/2010 (svonefnd Árna
Páls-lög). Við setningu þeirra laga
vöruðu fjölmargir aðilar við að lögin
brytu líklega gegn stjórnarskránni,
einkum 72. gr. hennar um vernd eign-
arréttar. Auk Dróma hf. og annarra
fulltrúa lánveitenda, má þar nefna
ýmsa fulltrúa lántakenda, Alþýðu-
samband Íslands og fjárlagaskrif-
stofu fjármálaráðu-
neytisins. Engu að
síður voru lögin sam-
þykkt á Alþingi.
Reynslan hefur sýnt að
varnaðarorðin voru
ekki að tilefnislausu en
nú þegar hefur Hæsti-
réttur staðfest í tveim-
ur dómum að lögin
brutu gegn eignarrétt-
arákvæði stjórn-
arskrárinnar, þ.e. dóm-
ar Hæstaréttar nr.
600/2011 og 464/2012.
Drómi fylgdi lögunum
Þrátt fyrir að Drómi hf., líkt og
margir aðrir, væri þeirrar skoðunar
að lögin brytu að líkindum gegn
stjórnarskrá taldi Drómi hf. sér hins
vegar skylt að fara að lögunum og
endurreikna þau lán sem lögin tóku
til, en með skýrum fyrirvara gagn-
vart lántökum ef í ljós kæmi síðar
með niðurstöðu Hæstaréttar að sá
þáttur Árna Páls-laganna, að með-
höndla lögleg lán í erlendri mynt með
sama hætti og lán með ólöglegri
gengistryggingu, bryti gegn stjórn-
arskránni. Þetta telur Reimar hins
vegar bíræfni af hálfu Dróma hf. og
telur eðlilegra að Drómi hf. hefði átt
að virða lögin að vettugi, þrátt fyrir
að ekki lægi þá fyrir niðurstaða
Hæstaréttar um stjórnskipulegt gildi
laganna. Þá telur Reimar skýra fyr-
irvara gagnvart lántakendum um
betri rétt ekkert gildi hafa. Reimar
mætti hugleiða betur merkingu hug-
taksins bíræfni og hvort það eigi ekki
fremur við þá afstöðu hans sjálfs að
réttara sé að hundsa sett lög af Al-
þingi, en að fylgja þeim með fyr-
irvara.
Reimar ekki hlutlaus
Þá hefði einnig verið eðlilegt af
hæstaréttarlögmanninum að geta
þess að hann er ekki í hlutverki hlut-
lauss álitsgjafa í máli þessu heldur
gætir hann hagsmuna viðskiptavinar
Dróma hf. upp á hundruð milljóna, þar
sem reynt gæti á endurútreikning.
Grandsemi við lagasetningu –
óvönduð vinnubrögð
Það er ávísun á vandræði þegar lög
eru sett í andstöðu við stjórnarskrá og
getur orðið til þess að skapa umfangs-
meira og tímafrekara vandamál en
ætlunin var að leysa. Þetta er einmitt
raunin um „Árna Páls-lögin“, sem enn
er verið að vinda ofan af fyrir dóm-
stólum. Það sýnir best grandsemi um
stjórnarskrárbrot að í aðdraganda
laganna freistaði þáverandi ráðherra
þess að láta stjórnendur allra fjár-
málafyrirtækja rita undir skaðleys-
isyfirlýsingu gagnvart ríkinu, þar sem
fyrirtækin myndu afsala sér rétti til
skaðabóta ef lögin reyndust brjóta
gegn stjórnarskránni. Er slík stjórn-
sýsla væntanlega fordæmalaus á Ís-
landi.
Vonandi verður þetta mál til þess að
löggjafinn vandi ávallt til setningar
laga í framtíðinni, þrátt fyrir sam-
félagslegan þrýsting í einstökum mál-
um.
Villandi málflutningur
Vegna villandi fréttaflutnings og
gífuryrða tiltekinna embættis- og
stjórnmálamanna skal að lokum
áréttað að Drómi hf. hefur ekki dreg-
ið endurútreikning sinn til baka
gagnvart lántökum heldur áskilið sér
rétt til þess ef Hæstiréttur kemst að
þeirri niðurstöðu að framangreind
lagasetning hafi verið andstæð
stjórnarskrá hvað varðar endurreikn-
ing löglegra lána í erlendri mynt enda
mun Drómi hf. fara að lögum í starf-
semi sinni hér eftir sem hingað til,
þrátt fyrir ráðleggingar hæstarétt-
arlögmannsins um annað.
F.h. Dróma hf.
Reimari svarað
Eftir Hlyn Jónsson
Hlynur Jónsson
» „ ... mun Drómi hf.
fara að lögum í starf-
semi sinni hér eftir sem
hingað til, þrátt fyrir ráð-
leggingar hæstaréttar-
lögmannsins um annað.“
Höfundur er stjórnarformaður
Dróma hf.