Morgunblaðið - 10.07.2013, Page 31

Morgunblaðið - 10.07.2013, Page 31
hún sat í stjórn sumarbúða KFUK í Vindáshlíð 1976-1987, ásamt því að starfa þar sumrin 1971-1973, og vann í barnastarfi KFUK í 25 ár. Herdís hefur setið í stjórn SIG- NEA (Society of International Gastroenterological Nurses and Endoscopy Associates), sem eru al- þjóðasamtök speglanahjúkrunar- fræðinga, frá 2002 og verið í verk- efnahóp ESGENA (European Society of Gastroenterology and Endoscopy Nurses and Associates), sem eru Evrópusamtök speglunar- hjúkrunarfræðinga, frá 1997. Her- dís er formaður Fagdeildar spegl- unarhjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga frá 1999. Stundar hestamennsku „Ég hef áhuga á mínu starfi sem er hjúkrun við speglanir og að efla fræðslu og menntun til sérhæf- ingar. Svo er það að sjálfsögðu fjölskyldan og barnabörnin, og við hjónin njótum þess mikið að vera í samvistum við þau. Við höfum stundað hestamennsku í 20 ár og njótum þess að ríða góðum hest- um vítt og breitt í Heiðmörkinni og nágrenni á veturna og um sveitir og óbyggðir okkar fallega lands á sumrin. Í undirbúningi er tíu daga hestaferð um hálendið með okkar góða ferðahópi til margra ára. Kristin trú er ofarlega í huga mér. Ég bý að góðri innrætingu úr foreldrahúsum sem ég er ævar- andi þakklát fyrir. Einnig úr barnastarfi og sumarbúðastarfi KFUK ásamt hinum einstaka sunnudagaskóla KFUM sem faðir minn stýrði og sögur hans standa mér ljóslifandi enn í dag. Mann- inum mínum kynntist ég í Vatna- skógi ásamt mörgu öðru góðu fólki. Sú vinátta varir enn og vina- hópur hefur hist í 38 ár og notið góðrar samveru og lesið Biblíuna saman.“ Fjölskylda Maður Herdísar er Þorvaldur Sigurðsson, f. 30.9. 1951, forstjóri. Foreldrar hans eru Elsa Þor- valdsdóttir húsmóðir og Sigurður Þ. Árnason, fyrrverandi skipherra. Stjúpforeldrar hans eru Davíð Guðnason, bóndi og vatnamæl- ingamaður, sem lést 2003, og Edda Jónsdóttir húsmóðir. Börn Herdísar og Þorvalds eru Ástríður Elsa Þorvaldsdóttir, f. 20.11. 1978, framkvæmdastjóri í Reykjavík. Barn hennar er Þor- valdur Ingi Elvarsson, f. 9.9. 1999; Theódóra Þorvaldsdóttir, f. 21.1. 1982, tamningamaður í Reykjavík. Maki hennar erJóhann Kristinn Ragnarsson, f. 27. 2. 1984, tamn- ingamaður og reiðkennari. Börn þeirra eru Herdís Björg Jóhanns- dóttir, f. 6.7. 2006, og Ragnar Dagur Jóhannsson, f. 6.12. 2012; Davíð Ingi Þorvaldsson, f. 19.8. 1986, afgreiðslumaður í Reykjavík. Bræður Herdísar eru Valgeir Ástráðsson, f. 6.7. 1944, sóknar- prestur í Reykjavík, og Sigurður Ástráðsson, f. 11.12. 1945, rekstr- arstjóri Samskipa á Selfossi. Foreldrar Herdísar eru Ástráð- ur Sigursteindórsson, f. 10.6. 1915, d. 20.7. 2003, skólastjóri í Reykja- vík, og Ingibjörg Jóelsdóttir, f. 26.3. 1919, d. 29.maí 2008, hús- móðir í Reykjavík. Úr frændgarði Herdísar Ástráðsdóttur Herdís Ástráðsdóttir Gróa Bjarnadóttir húsfr. á Arnarstöðum í Flóa Erlendur Jónsson b. á Arnarstöðum í Flóa Valgerður Erlendsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Jóel Friðrik Ingvarsson skósm. og kirkjuvörður í Hafnarf.. Ingibjörg Jóelsdóttir húsmóðir í Reykjavík Halldóra Torfadóttir húsfreyja í Hafnarfirði Ingvar Jóelsson skipstjóri í Hafnarfirði Ástríður Pétursdóttir húsfreyja í Káragerði Jón Einarsson b. í Káragerði í Landeyjum Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sigursteindór Eiríksson verkamaður í Reykjavík Ástráður Sigursteindórsson skólastjóri í Reykjavík Geirlaug Jónsdóttir vinnuk. víða, f. í Breiðuhlíð í Mýrdal Eiríkur Ólafsson vinnum. víða í Gullbringu- og Rangárvallasýslu Hjónin Herdís og Þorvaldur. ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013 Sigurður Egill Ingimundarson,alþingismaður og forstjóriTryggingastofnunar ríkisins, fæddist í Reykjavík 10.7. 1913. Fað- ir hans var Ingimundur verkamað- ur í Reykjavík Einarssonar bónda á Egilsstöðum, Króki og Stöðlum í Ölfusi Jónssonar bónda í Gljúf- urholti og Egilsstöðum Björnssonar bónda í Gljúfurholti Jónssonar bónda í Sogni Þórðarsonar. Móðir Sigurðar og kona Ingimundar var Jóhanna Guðlaug Egilsdóttir sem var landskunn fyrir áratugastörf fyrir verkalýðshreyfinguna á Ís- landi. Kona Sigurðar var Karítas Guðmundsdóttir, f. 19.12. 1917, d. 26.8. 1997, húsmóðir. Foreldrar hennar voru Guðmundur kaup- maður í Reykjavík Guðjónssonar og kona hans Anna María Gísladóttir. Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrver- andi forsætisráðherra, er dóttir Sigurðar og Karítasar. Sigurður tók stúdentspróf frá MR 1934. Hann lauk prófi í efna- verkfræði 1939 við Norges Tekn- iske Højskole í Þrándheimi og fór í framhaldsnám í verkstjórn- arfræðum og vinnuhagræðingu við Teknologisk Institut í Ósló sumrin 1962 og 1963. Sigurður var verkfræðingur hjá Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglu- firði 1940-1942 og síldarverksmiðj- unni Rauðku á Siglufirði 1944. Hann var starfsmaður við hráef- naúthlutun til matvælaiðnaðarins hjá Skömmtunarskrifstofu ríkisins 1940-1950, kennari við Gagnfræða- skóla Reykvíkinga, síðar Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar, 1941-1953, stundakennari við Menntaskólann í Reykjavík 1948-1955, kennari við Verslunarskólann 1953-1970, yf- irkennari 1957-1970. Hann var al- þingismaður fyrir Alþýðuflokkinn 1959-1970 og 2. varaforseti Alþingis 1963-1971. Sigurður var forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins frá 1970 til æviloka. Sigurður var formaður Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja 1956-1960. Sigurður Ingimundarson lést 12.10. 1978. Merkir Íslendingar Sigurður Ingi- mundarson 90 ára Andrés Sighvatsson 85 ára Flosi Hrafn Sigurðsson Guðríður Pálsdóttir Guðrún Benediktsdóttir Herdís Helgadóttir Sigurbjörg Sæmundsdóttir 80 ára Ebba Ingibjörg Urbancic Elín Methúsalemsdóttir Níels Jakob Erlingsson Sigrún Lilja Bergþórsdóttir 75 ára Jóhann H. Sigtryggsson Jón Ólafsson Ragna Björgvinsdóttir Þorgerður Sigurðardóttir 70 ára Einar Bragason Guðrún S. Eiríksdóttir Hugrún V. Guðjónsdóttir Ingunn Anna Ingólfsdóttir Ragna Steina Helgadóttir Þorgerður Í. Gissurardóttir 60 ára Auður Snorradóttir Freygerður Friðriksdóttir Guðjón S. Marteinsson Guðmundur M. Karlsson Herdís Ástráðsdóttir Hörður Sigfússon 50 ára Aðalheiður Sævarsdóttir Auður Sigríður Hreinsdóttir Árni Karl Ellertsson Peiser Guðmundur B. Kjartansson Guðmundur Jóhannsson Gunnar Garðar Gunnarsson Gunnar Magnússon Gunnar Þorgeirsson Halla Sigrún Arnardóttir Haraldur Kr. Sigurðsson Ingólfur Kristinn Einarsson Ingunn Ólafsdóttir Ingvar Karlsson Jón Páll Garðarsson Kristbjörn Hauksson Kristín Fr. Hjartardóttir Kristín Laufey Reynisdóttir Unnur Björnsdóttir Þór Sigurðsson 40 ára Aleksejs Sagovs Anna Ingadóttir Arnar Þór Ragnarsson Árni Viðar Kárason Björgvin Magnússon Elísabet Harles Eyjólfur Magnússon Guðrún Þórhallsdóttir Hjalti Jónsson Ingibjörg Ingvadóttir Jóhann Kári Enoksson Matthildur Ósk Emilsdóttir Matthías Þorvaldsson Rebekka Valsdóttir Sólrún Ragnarsdóttir Svanbjörg Halldórsdóttir 30 ára Aðalsteinn Aðalsteinsson Anna Þorsteinsdóttir Ágústína Gunnarsdóttir Birna Björnsdóttir Daði Ólafur Elíasson Emilia Kopczewska Garðar Reynisson Guðmundur B. Ingólfsson Halldór Kristinsson Hanna Ósk Helgadóttir Jóhann Þór Ólafsson Snorri Sigurjónsson Þorkell Þorkelsson Þórunn Eva Guðbj.Thapa Til hamingju með daginn 50 ára Halla Sigrún er hjúkrunarfræðingur í Reykjavík. Maki: Hannes Birgir Hjálmarsson, f. 1963, kennari. Börn: Halla Kristín, f. 1984, Hjálmar Örn, f. 1993, og Anna Guðbjörg, f. 1999. Foreldrar: Örn Ævarr Markússon, f. 1930, fyrrv. lyfsali, og Halla Valdi- marsdóttir, f. 1936, kennari. Halla Sigrún Arnardóttir 30 ára Daði er Seltirn- ingur og er lögmaður og einn eigenda hjá Íslögum, bús. í Reykjavík. Maki: Arney Hrund Viðarsdóttir, f. 1983, nemi við HÍ. Dóttir: Emma, f. 2012. Foreldrar: Elías Leifsson, f. 1953, sviðsstjóri hjá Líf- eyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga, og Margrét Jónsdóttir, f. 1954, fjár- málastjóri hjá Eyri Invest, bús. á Seltjarnarnesi. Daði Ólafur Elíasson 40 ára Eyjólfur býr á Ási í Stafholtstungum, Borg., og starfar sem smiður. Maki: Auður Margrét Ár- mannsdóttir, f. 1972, vinnur á dvalarheimili í Borgarnesi. Börn: Ármann Bjarni, f. 2003, Trausti Leifur, f. 2004, og Inger Elísabet, f. 2005. Foreldrar: Magnús Magnússon, f. 1944, og Inger Oddfríður Trausta- dóttir, f. 1951. Eyjólfur Magnússon AF HVERJU EKKI AÐ FÁ MEIRA FYRIR MINNA? Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is Pípulagnahreinsir Perfect Jet Síuhreinsihaus Stuðningssæti U.V. Áburður fyrir lok Glasabakki Yfirborðshreinsir fyir skel FituhreinsirFroðueyðir Síuhreinsir 3499,- 1249,- 2899,- 2899,-2999,- 3299,- 3499,- 4499,- 1999,- *Öll verð eru m/vsk og birt án ábyrgðar Úrval fylgihluta fyrir heita potta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.