Morgunblaðið - 10.07.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.07.2013, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Stundum getur reynst erfitt að taka ákvörðun þótt mikið magn upplýsinga liggi fyrir. Leggðu áherslu á að fara í stutt ferðalag til að dreifa huganum. 20. apríl - 20. maí  Naut Treystu þinni innri visku betur en al- mennings. Gerðu því aðeins það sem sam- viskan segir þér að sé rétt fyrir þig og láttu álit annarra sem vind um eyru þjóta. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert að gera það sem til þarf til að vera tilbúin/n þegar stóra stundin rennur upp. Líttu raunsætt á hlutina, líka þá sem í sjálfu sér koma þér ekki við. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú freistast til þess að kaupa eitt- hvað án umhugsunar í dag. Kannski langar þig til þess að eyða fjármunum til þess að hjálpa einhverjum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Reiddu þig ekki um of á aðra því þegar til kastanna kemur þá er þetta þitt hlutverk sem þú berð ábyrgð á. Gakktu rösklega til verks og fagnaðu að því loknu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í dag er þér sérstaklega annt um frelsi og velferð annarra. Finndu þér ein- hvern góðan stað þar sem þú finnur frelsi og frið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vertu óhrædd/ur við að segja hug þinn allan við þinn nánasta ástvin. Og ekki kaupa nema þörfin sé brýn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að athuga vel hvern- ig þú setur hlutina fram því það skiptir sköpum að allir skilji hvert þú ert að fara. Talaðu skýrt og þú semur fyrir miðnætti. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú er rétt að snúa sér að al- vöru lífsins og ljúka mikilvægum verk- efnum. Þú færð aðstoð frá einhverjum við þetta. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú siglir nokkuð lygnan sjó í samskiptum við vini og vandamenn og ættir að nota tækifærið til að auka þau. Gleymdu heldur ekki hvaða áhrif og afleið- ingar þínar gjörðir hafa á aðra. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er vandi að velja og því meiri þeim mun fleira sem í boði er. Gættu hagsmuna þinna en sýndu sann- girni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er ákaflega gefandi að eiga sálufélaga sem skilur þig og þekkir allar þínar þarfir. Ekki stressa þig, leyfðu örlög- unum að sjá um sitt. Sigrúnu Haraldsdóttur blöskr-aði alveg er hún vaknaði í fyrradag – enn einn rigning- ardaginn. Illa er ég haldin af þrálátri þreytu, þunglynd og köld og blaut sólbekkurinn er siginn af bleytu og sessan í einum graut. Ekki stendur á ráðleggingu frá Ágústi Marinóssyni: Sól er af Drottni sett í skorður frá Suðurlandinu beint. Þess vegna ættirðu að þvælast norð- ur það gætirðu alveg reynt. Davíð Hjálmar Haraldsson læt- ur fylgja kveðju að norðan að það hafi næstum verið léttir að fá skúrir dagpart en spáð sé blíðu áfram næstu daga: Blikar í garðinum blómanna skart, blakkna í sólinni magi og tær. Sigrúnu óðara sendi ég part af sjóðheitri blíðunni frá því í gær. Ólafur Stefánsson rifjar upp skemmtilega sögu eins og hans er von og vísa: „Páll heitinn Lýðsson komst að því, eftir yfirlegu, að sjöunda hvert sumar á Suðurlandi væri rosasumar að meðaltali. Nú eru búin aðvera mörg sólrík sum- ur og sum svo þurr að til vand- ræða máttu teljast.Verum því glöð yfir hverjum dropa sem fell- ur á okkar ástkæra Suðurland. Traust við bindum tryggðaband, hvar tærust vötnin streyma. Svona er okkar Suðurland sælt og best allt heima.“ Davíð Hjálmar stenst ekki mát- ið: Fyllir regnið fen og þúsund blár, fljótin vaxa ört á Suðurlandi. Ólafur er eins og blautur klár á árbakka í stuttu tjóðurbandi En Sigrún er ekki eins sann- færð og Ólafur. Ég þreytt er á súldarsuði, sífelldum himnaleka, þessa vanhæfu veðurguði vildi ég mega reka. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af sólbekk, sessu og þrálátri bleytu Í klípu „HVAÐ SEM VIRKAR FYRIR YKKUR. ÞETTA HEFUR ALDREI VERIÐ VANDAMÁL Í MINNI FJÖLSKYLDU. HVORUGT OKKAR VILL VERA Í BUXUM.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG HEFÐI SKILIÐ EFTIR HANDA ÞÉR ÞJÓRFÉ, EF ÞÚ HEFÐIR EKKI TALAÐ MIG TIL Í OSTAKÖKUNA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það sem hefur þiðnunina. MAT- SEÐILL HVAÐ, ÁRANS ÓHEPPNI! FASTUR Á EYÐIEYJU, MÖRGUM KÍLÓMETRUM FRÁ LANDI … EN ÉG SEGI ÞÓ AÐ STRÁKAR KVARTA EKKI. ÞAR AÐ AUKI, KANNSKI SKIPTIR ÁHÖFNIN MÍN UM SKOÐUN OG KEMUR OG SÆKIR MIG. VIÐ LÍSA ERUM AÐ FARA, GRETTIR. GRETTIR? ÞETTA ER SKRÍTIÐ. ÉG GET EKKI LYFT NESTIS- FERÐARKÖRFUNNI. Ó, JÓN …Víkverji las á dögunum bókina In-ferno eftir metsöluhöfundinn Dan Brown, sem gerði garðinn frægan með Da Vinci-lyklinum. Enn er söguhetjan táknfræðingurinn Ro- bert Langdon, prófessor við Har- vard-háskóla. Að þessu sinni er Langdon í kapphlaupi við tímann að reyna að stöðva galinn snilling, sem telur að án grisjunar muni mann- kynið tortíma sjálfu sér. Við hlið honum er ung kona, sem ekki er fisj- að saman. Kaflarnir eru stuttir og enda yfirleitt þannig að ekki er ann- að hægt en að byrja á næsta. Að þessu sinni hefur varmennið skilið eftir sig slóð vísbendinga úr Gleði- leiknum guðdómlega eftir Dante, nánar tiltekið fyrsta þætti hans, Víti, eins og heiti bókarinnar gefur til kynna. x x x Í raun er Inferno ekki góð bók. Per-sónurnar eru yfirborðslegar, text- inn flatur og stundum eins og klippt- ur úr alfræðiorðabók auk þess sem margt er fyrirsjáanlegt. Engu að síður er bókin skemmtileg og Vík- verji spændi hana í það minnsta upp. Þótt hann segði við sjálfan sig að hann ætti að vera að lesa eitthvað menningarlegra gat hann ekki hætt. Þá er engin spurning að hún mun kveikja áhuga margra, sem annars hefðu ekki látið hvarfla að sér að pæla í Dante, og það hlýtur að vera af hinu góða. Brátt verður ugglaust farið að bjóða upp á leiðsögn um Flórens með hliðsjón af bók Browns, ef það er ekki gert nú þegar. Les- andinn veltir meira að segja fyrir sér hvers vegna ekki fylgja skýring- armyndir bókinni, til dæmis af mál- verki Botticellis af Víti, byggingum listamannsins, arkitektsins og sagn- fræðingsins Giorgios Vasaris eða helgrímu Dantes. Það hefði getað sparað honum þvæling um netið. x x x Víkverji veltir fyrir sér á hvaðamenningarslóðir Dan Brown muni leita næst. Kannski mætti benda honum á Íslendingasögurnar, hinn glöggi táknfræðingur gæti bjargað heiminum frá tortímingu með því að leysa vísbendingar úr Njálu, Eglu eða Laxdælu og hetjur myndu að nýju ríða um héruð. víkverji@mbl.is Víkverji Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. (Jóhannesarguðspjall 15:12)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.