Morgunblaðið - 10.07.2013, Page 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013
Dionne Warwick fæddist 1940 í
New Jersey inn í mikla tónlistar-
fjölskyldu.
Hún sló fyrst í gegn árið 1962
með laginu „Don’t make me over“.
Hún hefur átt farsælt samstarf
með lagahöfundunum Burt Bach-
arach og Hal David. Hún flutti öll
þekktustu lög þeirra, eins og „I say a
little prayer for you“, „This girl’s in
love with you“ og „Do you know the
way to San Jose“.
Warwick hefur unnið til fimm
Grammy-verðlauna, gefið út 35
breiðskífur og selt þær í yfir 100
milljón eintökum.
Hún hefur átt 85 lög á topp hundrað lista í Bandaríkjunum og er þar í
öðru sæti á eftir Arethu Franklin. Hún er í topp fjörutíu af öllum sem
eiga topplög á árunum 1955-2012.
Önnur vinsæl lög eru „Heartbreaker“, „That’s what friends are for“
og „I’ll never love this way again“.
Warwick fagnar fimmtíu ára söngferli með heimstúr. Hún varð nýlega
gjaldþrota vegna skattaskulda en lætur það ekki á sig fá.
Ein skærasta stjarna poppsins
HEFUR SELT YFIR MILLJÓN BREIÐSKÍFUR
stíga á svið í Hörpu og taka lagið
með ömmu sinni. „Hún er mín gjöf
til Íslands!,“ segir Warwick hlæjandi
og bætir við: „Hún er dásamleg, ég
er mjög stolt af henni, hún tekur við
kyndlinum.“
Hjálpar fólki í þriðja heiminum
Þegar Warwick er ekki að ferðast
og syngja, er hún að vinna fyrir Mat-
vælastofnun Sameinuðu þjóðanna í
vanþróuðum ríkjum og kennir fólki
að bjarga sér. „Það er til málsháttur,
það er hægt að gefa fólki fisk að
borða í dag, eða það er hægt að
kenna fólki að veiða fisk, og þá getur
það fætt sig daglega,“ segir hún.
Velgengni þrátt fyrir gjaldþrot
Hún hefur í gegnum tíðina unnið
með heimsfrægum tónlistarmönnum
á borð við Bee Gees-bræður, Barry
Manilow, Stevie Wonder, Elton
John og mörgum fleirum. „Þetta eru
allt vinir mínir, en svo fékk ég núna
loksins nýlega að vinna með fólki
sem ég hef lengi viljað vinna með,
Earth, Wind and Fire,“ segir hún
spennt, en geisladiskur með lögum
þeirra kemur sennilega út fyrir jól.
„Það er búið að vera ofboðslega
skemmtilegt, við náðum loksins sam-
an, og fórum í upptökur,“ segir War-
wick.
Fjármálin hafa verið í ólestri hjá
henni, þrátt fyrir velgengni, en hún
komst í heimsfréttir nýlega vegna
gjaldþrots. Hún lætur það ekki á sig
fá og segir það ekki hafa áhrif á
söngferilinn. „Mér gengur vel, ég er
bara lítill fiskur í stórri tjörn, það er
ekki eins og ég sé risa fyrirtæki eða
land,“ segir Warwick og brosir.
Warwick hefur fimm sinnum feng-
ið Grammy-verðlaun, selt yfir
hundrað milljón breiðskífa og lent
inn á topp hundrað vinsældalista
Bandaríkjanna næst oftast allra
söngkvenna, á eftir Arethu Frankl-
in. Þegar hún er spurð hverju hún sé
stoltust af er hún fljót til svars. „Það
eru börnin mín tvö, synir mínir, og
barnabörnin sjö,“ segir þessi lífs-
glaða kona.
Mörg þekktustu popplögin
Warwick er á Íslandi í fyrsta
skipti. Hún ætlar að hvíla sig vel fyr-
ir kvöldið en hyggst fara út á
Reykjanesskaga og fara á brúna þar
sem heimsálfurnar mætast. Hún
hlakkar mikið til að syngja fyrir fullu
húsi í Hörpu í kvöld og þar má fólk
búast við að heyra nokkur af þekkt-
ustu popplögum síðustu áratuga,
eins og „That’s what friends are
for“, „I say a little prayer for you“ og
„Do you know the way to San Jose“. Morgunblaðið/Styrmir Kári
mannsins þar sem hann jugglar í
takt við tónlist er einkennandi fyr-
ir sýningar Ron Beeri, en fleiri
tónlistaratriði hefðu gert mikið
fyrir sýningu sem þessa. Þau fáu
atriði sem innihéldu tónlist voru
áhugaverð og gerði tónlistin mikið
fyrir atriðin sem annars innihéldu
fremur einfaldar kúnstir juggl-
arans með tennisbolta.
Sýningin hefði mátt
vera fjölbreyttari og í
ljósi þess að tilfinn-
anlega skorti bæði tal og
meiri tónlist hefðu leik-
rænir tilburðir hans
mátt vera ýktari til þess
að grípa athygli áhorf-
enda sem voru farnir að
líta á klukkuna undir lok
sýningarinnar.
Gamansemi
Jugglaranum tekst
þó vel upp þegar hann
ætlar sér að klára atrið-
ið hverju sinni og hafa
meðlimir yngstu kyn-
slóðarinnar eflaust gam-
an af því að sjá hann
mistakast við kúnst-
irnar, sem hann gerir á
gamansaman hátt. Þar
fyrir utan er Ron Beeri
mjög fimur og skemmti-
legur, en þegar sífellt
erfiðara er að heilla
áhorfendur sem hafa
greiðan aðgang að
glæsilegum atriðum
sirkuslistamanna á ver-
aldarvefnum eða í þátta-
röðum líkt og America‘s
got talent þarf sólósýning að inni-
halda stórkostlegar kúnstir og
sviðsframkomu sirkuslistamanns-
ins til þess að halda athygli áhorf-
enda.
Því miður tókst Ron Beeri
það ekki að þessu sinni og því
saup engin hveljur yfir sýningunni
sem margir vonast eftir að upplifa
þegar þeir sækja sirkussýningu.
Fimur „Þar fyrir utan er Ron Beeri mjög fim-
ur og skemmtilegur,“ að mati pistlahöfundar.