Morgunblaðið - 10.07.2013, Síða 36

Morgunblaðið - 10.07.2013, Síða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013 Jóhann Kristinsson hefur ver-ið lengi að sem trúbadúr,gefið út plötur og leikið átónleikum hér á landi og er- lendis. Tónlistin sem hann spilar getur verið drungaleg og dimm á stundum, en líka hlýleg og innileg og á þeim tónleikum sem ég hef séð hann spila náði hann að draga áheyrendur inn í tón- listina og sjá: í myrkr- inu var líka ljós. Það er þó ekki galli á textunum eða tónlist að vera dapurleg; úr kvöl- inni sprettur oft mikil list. Það verð- ur þó að telja galla ef textar eru tor- ræðir og sérkennilegir, í þeim óljós merking og óskiljanlegar setningar. Sjá til að mynda textann við lagið „Darkness is Peaking“; hvað þýðir þessi lína: „I try phonecalls to expla- in myself about it“? Þó að gera megi þannig at- hugasemd við suma textana hjá Jó- hanni eru lögin mörg hreint afbragð, laglínur ljúfar og leikandi og hefði verið gaman að heyra þau í viðameiri útsetningum. Bestu lögin eru alla jafna þau sem mesta umbúnaðinn hafa fengið, „Darkness is Peaking“ og „Foggy Vision“ til að mynda, og „No Need to Hesitate“ lifnar heldur en ekki um miðbikið þegar aðeins er gefið í. Það þýðir þó ekki að Jóhanni takist ekki vel upp í hægagangi; lokalag plötunnar, rólyndislegt lag og áreynslulaust, er besta lag plöt- unnar. Líkn með þraut Þjóðlagapopp Jóhann Kristinsson – Headphones bbmnn Sólóskífa Jóhanns Kristinssonar. Jóhann semur öll lög, en eitt þeirra semur hann í samstarfi við aðra. Höfundur gefur út. ÁRNI MATTHÍASSON TÓNLIST Ljúfar laglínur Lög Jóhanns Krist- inssonar eru „hreint afbragð.“ Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Stöðvarfjörður hefur, eins og mörg íslensk sjávarþorp, átt undir högg að- sækja á undanförnum árum og ára- tugum. „Þegar kvótinn fór úr bænum fór fólki að fækka á Stöðvarfirði. All- ur rekstur í sjávarútvegi dofnaði og stóð m.a. frystihúsið lengi vel ónotað. Það kom svo auðvitað að því að rífa átti húsið og binda þar með enda á alla hugsanlega starfsemi í því,“ segir Marteinn Sindri Jónsson, einn að- standenda Pólar Festival en hátíðin á m.a. að kynna starfsemi frystihúss- ins. „Hér var hópur af hugmyndaríku fólki í þorpinu sem vildi láta á það reyna hvort ekki væri hægt að reka einhverja starfsemi í húsinu.“ Í staðinn fyrir að rífa frystihúsið tók lítill hópur frumkvöðla húsnæðið yfir og nýtir það núna í nýsköp- unartilgangi. „Fólk hérna sér tæki- færi til uppbyggingar meðal annars í nýsköpun og skapandi greinum. Í því er t.d. verið að koma upp eldhúsi til að framleiða matvæli sem koma beint frá býli. Eins er búið að setja upp tré- smíðaverkstæði enda mikil hand- verksþekkingin í bænum. Þá er búið að setja upp tónleikaaðstöðu í gamla frystiklefanum.“ Alls engin útihátíð Marteinn segir Pólar Festival vera menningar- og listahátíð sem byggist á hugmyndinni um hæfileika- samfélagið. „Hæfileikasamfélag þekkist t.d. úr heimi tónlistarinnar, þar deila menn hljóðfærum og hæfi- leikum og kynnast þannig nýjum listamönnum og nýrri tónlist. Sams- konar hugsun er til staðar á Stöðv- arfirði og hún er leiðarljós hátíð- arinnar,“ segir Marteinn en Pólar Festival er haldin á sama tíma og bæjarhátíðin Maður er manns gam- an. „Við vinnum að okkar hátíð í sam- starfi við bæjarhátíðina en þær styrkja hvor aðra enda markmiðið að kynna bæinn fyrir þeim sem sækja hátíðarnar heim.“ Marteinn leggur áherslu á að Pól- ar Festival er ekki útihátíð heldur sé um listahátíð að ræða. „Við leggjum mikið upp úr því að dagskráin sé yfir daginn og ljúki fyrir miðnætti. Á föstudaginn byrjum við t.d. á léttu balli í hádeginu og verðum með ókeypis smiðjur í frystihúsinu yfir daginn. Á laugardaginn ætlum við síðan öll að elda saman en þá verður farið út á sjó að sækja fisk og upp í fjallshlíðar að sækja í salat og krydd. Það verður söguganga um bæinn og mikið lagt upp úr því að fólk kynnist Stöðvarfirði á hátíðinni.“ Smiðjurnar í frystihúsinu Á listahátíðinni verður stór skáld- skaparsmiðja í frystihúsinu og verð- ur t.d. skáldskaparverkstæði í sam- vinnu við ljóðahópinn Meðgönguljóð. „Í skáldskaparverkstæðinu gefst fólki góður vettvangur til að hitta aðra með ástríðu fyrir skáldskap. Smiðjan er fyrir byrjendur og lengra komna og þátttakendur og umsjón- armenn deila aðferðum sínum og skrifum á jafnréttisgrundvelli,“ segir Marteinn en sú krafa er gerð að þátt- takendur séu opnir fyrir umræðu um verk sín og annarra. Á dagskrá hátíðarinnar er einnig opin smiðja sem nefnist Umhverfing og hefur það að markmiði að slá upp veislu með mat úr nágrenninu, fiski úr sjónum og jurtum úr fjallinu sem gestum verður boðið til á laugardeg- inum. „Fólk skráir sig í smiðjuna á föstu- deginum, það þurfa nokkrir að róa eftir fiski, okkur vantar hóp til að tína jurtir upp í fjalli, það verður kennt hvernig á að kveikja eld og eldurinn síðan notaður til eldamennsku auk þess sem hátíðarsvæðið verður skreytt,“ segir Marteinn og bætir við að í smiðjunni birtist hugmyndafræði hátíðarinnar um sjálfbærni og sam- vinnu. Hæfileikafólk á Stöðvarfirði Stöðvarfjörður dregur til sín hæfi- leikafólk um helgina hvort sem það hefur sterkar taugar til bæjarins eða á eftir að byggja upp tengsl við hann. Sjálfur kynntist Marteinn bænum ungur í árlegum heimsóknum til Ingu ömmusystur sinnar sem tekur virkan þátt í hátíðinni og mun meðal annars leiða gesti um matarkistu fjallshlíðanna í Umhverfingarsmiðj- unni. Hann segir bæinn vera töfrandi stað að vera á og heimamenn hæfi- leikaríka og ráðagóða. „Pólar Festi- val er okkar leið að sýna hæfileikana á svæðinu og kynna bæinn fyrir fólki. Fjölskylda mín hefur líka sterk tengsl við bæinn en hún keypti gömlu kirkjuna í bænum fyrir aldamótin síðustu og breytti henni í gistiheim- ili.“ Auk Marteins eru skipuleggj- endur hátíðarinnar þau Katrín Hel- ena Jónsdóttir, systir Marteins, frændi hans Viktor Pétur Hannesson og kærastan hans Gígja Sara Björns- son. „Viktor og Gígja hafa keypt sér hús hér á Stöðvarfirði og ætla að búa í bænum í það minnsta hluta úr árinu þó svo að þau séu bæði í námi í Reykjavík. Þau voru fljót að átta sig á því hvað það eru ótrúlega spennandi hlutir að gerast á Stöðvarfirði, nokk- uð sem við viljum endilega kynna fyr- ir fleirum.“ Stöðvarfjörður fagnar fjöl- breytileikanum  Sjálfbær listahátíð Pólar Festival verður haldin hátíðleg um helgina Stöðvarfjörður Gamla kirkjan á Stöðvarfirði var afhelguð í kringum aldamót og hefur verið farfuglaheimili síðan. Bæjarlífið Skemmtilegur og ósvikinn þorpsbragur er á Stöðvarfirði. Laugavegur 40, 101 Reykjavík volcano@volcanodesign.is www.volcanodesign.is S: 5880100 Volcano Design fer um landið! 11. júlí Á Veitingastaðnum Bárunni, Þórshöfn. Fimmtudag frá kl. 16-20. 25. júlí Á Kaffi Bjarmanesi, Skagaströnd. Fimmtudag frá kl. 17:00 - 20:00 27. júlí Á Mærudögum, Húsavík. Í verbúðunum, efri hæð í Fanneyjarskúr. Laugardag frá kl. 13-18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.