Morgunblaðið - 10.07.2013, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.07.2013, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2013 „Það verður sífellt skemmtilegra að kenna eftir því sem reynslan og þroskinn eykst. Það er svo gefandi og gaman að fylgjast með ungu fólki vera að móta sig á tónlistarbraut- inni,“ segir Guðrún Birgisdóttir sem ásamt Martial Nardeau heldur mast- erklassnámskeið í flautuleik í Selinu á Stokkalæk 12.-14. júlí. Þau Martial og Guðrún hafa meira en þrjátíu ára reynslu sem tónlistar- kennarar og hafa kennt töluvert er- lendis en Martial er nú kennari við Listaháskóla Íslands og Guðrún við Tónlistarskóla Kópavogs. Síðustu sumur hafa þau haldið masterklassnámskeið í Tónlistar- skóla Kópavogs og því liggur beint við að spyrja hvers vegna þau flytji sig nú um set. „Það helgast fyrst og fremst af þessu frábæra fólki sem þar ræður húsum,“ segir Guðrún og vísar þar til hjónanna Ingu Ástu og Péturs Hafstein. „Þau hafa opnað fangið fyr- ir hvers konar viðleitni til að byggja upp betra tónlistarlíf og eru þar með að auðga menningarlífið,“ segir Guð- rún og tekur fram að aðstaðan í Sel- inu sé til fyrirmyndar. Að sögn Guðrúnar fer kennslan fram í masterklassformi sem og í einkatímum. Kennslan er ætluð nem- endum sem komnir eru á miðstig og upp úr. Meðal þess sem hugað verður sérstaklega að er líkamsbeiting ann- ars vegar og hins vegar piccolo- leikur. Námskeiðinu lýkur með tón- leikum sunnudaginn 14. júlí kl. 16 þar sem nemendur koma fram, en miða- sala er við innganginn. Áhugasömum er velkomið að fylgjast með nám- skeiðinu sem áheyrnargestir, en allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag námskeiðsins má nálgast hjá Selinu Stokkalæk eða beint hjá kenn- urunum tveimur. silja@mbl.is „Sífellt skemmtilegra“ Flautuleikararnir Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau.  Masterklassnámskeið í flautuleik í Selinu Stokkalæk  Námskeiðinu lýkur með tónleikum á sunnudag kl. 16 World War Z Gríðarlega skæð uppvakn- ingaplága geisar á jörðinni og ef engin úrræði finnast mun mann- kynið þurrkast út á 90 dögum. Þetta er meginsöguþráður kvik- myndarinnar World War Z í leik- stjórn Marc Forster. Í aðalhlutverki er Brad Pitt, sem leikur Gerry Lane, sérfræðing á vegum Samein- uðu þjóðanna. Rottentomatoes: 67% Metacritic: 63/100 The Heat Leikkonurnar Sandra Bullock og Melissa McCarthy fara með hlut- verk lögreglukvennanna Söruh og Shannon. Við fyrstu sýn eru þær eins og svart og hvítt, bæði í útliti og háttum. Það þarf því ekki að koma neinum á óvart að þeim líki ekki hvor við aðra þegar þeim er gert að vinna saman. Leikstjóri er Paul Feig. Rottentomatoes: 63% Metacritic: 59/100 Heimsend- ir í nánd? Hetja Brad Pitt reynir að bjarga mannkyninu frá tortímingu. Bíófrumsýningar KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM Á TOPPNUM Í ÁR KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA WORLDWARZ3D KL.5:30-8-10:30 WORLDWARZVIP KL.5:30-8-10:30 THELONERANGER KL.5-6-8-10:10-11 MANOFSTEEL3D KL.5-8-11 MANOFSTEEL2D KL.11 THEBIGWEDDING KL.9 HANGOVER-PART3 KL.8 SAMMY2 ÍSLTAL2D KL.6 TILBOÐ400KR. KRINGLUNNI WORLD WAR Z 2D KL. 5:30 - 9 - 10:30 THE LONE RANGER KL. 5 - 10 THE BIG WEDDING KL. 6 - 8 - 10:30 NOW YOU SEE ME KL. 8 WORLD WAR Z 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30 WORLD WAR Z 2D KL. 10 THE LONE RANGER KL. 5 - 7 - 10 MAN OF STEEL 2D KL. 7 - 10 THE BIG WEDDING KL. 5 - 8 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK WORLDWARZ3D KL.8-10:30 THELONERANGER KL.10:30 THEHEAT KL.8 AKUREYRI WORLD WAR Z 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30 THE LONE RANGER KL. 8 - 11 MAN OF STEEL 2D KL. 5 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á “SPECTACULAR”  EMPIRE “GLÆSILEG OFURHETJUMYND” H.S.S. - MBL 16 16 16 16 EKKERT EYÐILEGGUR GOTT PARTÝ EINS OG HEIMSENDIR! FRÁ HÖFUNDUM SUPERBAD91/100 „It‘s scary good fun“ Entertainment Weekly 88/100 „It‘s entertaining as hell.“ Chicago Sun-Times -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is BYGGT Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM UM LEIGUMORÐINGJANN RICHARD KUKLINSKI LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 12 WORLD WAR Z Sýnd kl. 8 - 10:20 THE HEAT Sýnd kl. 5:40 - 8 - 10:20 THIS IS THE END Sýnd kl. 8 - 10:20 THE PURGE Sýnd kl. 6 THE ICEMAN Sýnd kl. 5:40 Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305 NÝTT á Íslandi HÁR Dreifingaraðili • Forðast höfuðverk • Engir klofnir endar • Sterkt grip • Allar hárgerðir • Ekkert teygjufar Hárteygjur Ný sending

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.