Morgunblaðið - 10.07.2013, Síða 40
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 191. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Beitti viðurkenndri handtöku…
2. Sigrid var misþyrmt ítrekað
3. Keyrt á stúlkuna eftir flugslysið
4. Forsetinn staðfestir lög um …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hymns nefnist ný breiðskífa sem
jaðarþjóðlagapoppsveitin Hymnalaya
sendir frá sér í dag. Hljómsveitin
sækir innblástur sinn í gamla sálma
sem hún klæðir í þjóðlegan jaðar-
popp- og sveimbúning.
Hymnalaya sendir frá
sér plötuna Hymns
Bláa kirkjan
nefnist tónleika-
röð sem haldin
verður 16. sum-
arið í röð í Seyð-
isfjarðarkirkju. Í
kvöld, kl. 20.30,
og næstu fimm
miðvikudaga
verður boðið upp
á fjölbreytta klassíska tónlist. Á
fyrstu tónleikum raðarinnar kemur
fram Kammerhópurinn Stilla. Miðar
eru seldir við innganginn.
Kammerhópurinn
Stilla í Bláu kirkjunni
Á tónlistarvefnum CD Hotlist er
geisladiskur Duo Landon, „Íslensk
fiðludúó“, valinn einn af klassískum
geisladiskum mánaðarins. Flytjendur
eru þau Hlíf Sig-
urjónsdóttir og
Martin Frewer og
leika þau fiðludú-
etta eftir sex ís-
lensk tónskáld.
Verkin eru sögð
afar fjölbreytileg
og flutningurinn
frábær í alla staði.
Frábærum flutningi
Duo Landon hrósað
Á fimmtudag Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og rign-
ing með köflum. Bjartviðri á A-verðu landinu fram eftir degi, en
sums staðar dálítil væta þar undir kvöld. Hiti 10 til 22 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 3-10 m/s, hvassast vestast á
landinu. Rigning síðdegis en vestlægari og úrkomuminna undir
kvöld. Yfirleitt léttskýjað á N- og A-landi og hiti 16 til 24 stig.
VEÐUR
Línumaðurinn stæðilegi Jó-
hann Karl Reynisson er
genginn í raðir danska 1.
deildar félagsins Ajax Kö-
benhavn en hann skrifaði
undir samning til tveggja
ára við félagið. Jóhann Karl,
sem er 24 ára gamall, lék
síðast með HK í N1-deildinni
í handknattleik í vetur, eftir
skamma dvöl hjá FH, en var
áður hjá Fram. Hann hyggst
stunda nám í Copenhagen
Business School. »1
Jóhann Karl
til Danmerkur
Margrét Lára Viðarsdóttir, marka-
drottning íslenska landsliðsins í
knattspyrnu, segir að liðið geti hæg-
lega komið á óvart á EM sem hefst í
Svíþjóð í dag. Fjallað er ítarlega um
mótið, íslenska liðið og andstæð-
ingana í 8 síðna íþróttablaði dagsins.
»1-7
Getum komið öllum á
óvart á Evrópumótinu
Íslandsmeistarar Fram í handknatt-
leik kvenna og deildarmeistarar
Hauka í handknattleik karla eru einu
íslensku liðin sem skráð hafa sig til
keppni á Evrópumótum félagsliða á
næstu leiktíð. Fram tekur nú þátt í
keppninni sjötta árið í röð. Bik-
armeistarar ÍR í karlaflokki og Valur í
kvennaflokki auk Íslandsmeistara
Fram í karlaflokki taka ekki þátt. »8
Fram og Haukar með
í Evrópukeppninni
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Veiðiskapur er skemmtilegur, það
að vera úti í náttúrunni, hlusta á
fuglana, slappa af og vera með
góðum félögum. Hvort eitthvað
veiðist skiptir litlu. Ef vel gengur
er það hins vegar bónus,“ segir
Sigfús Sigurðsson veiðimaður.
Hann er þekktur sem sigursæll
varnarmaður í handknattleiksliði
Vals. Þá er hann einn silfurdrengj-
anna svonefndu, sem náðu glæsi-
legum árangri á Ólympíuleikunum
í Peking árið 2008.
Reynisvatn er paradís
Sigfús hefur nú sagt skilið við
boltann og er samstarfsmaður hins
þýska Wolfang Pomorin sem rekur
fiskeldisstöðina í Laxalóni við
Vesturlandsveg. Sá er og leigutaki
Reynisvatns sem er í Grafarholt-
inu í Reykjavík, en það er vinsælt
til dæmis meðal fjölskyldufólks.
„Reynisvatnið er náttúrupara-
dís. Það er í jaðri borgarinnar en
samt er eins og maður sé langt
uppi í sveit. Þetta eins og vin í
eyðimörkinni.“ segir Sigfús. „Í
einu af fyrstu skiptunum sem ég
fór upp að Reynisvatni að veiða
hitti ég hér á Wolfang,“ segir Sig-
fús og heldur áfram:
„Ég heyrði að þessi maður var
þýskumælandi og eftir nokkurra
ára búsetu úti, sem leikmaður í
þýska handboltanum, bjarga ég
mér ágætlega á þýskunni. Við
Wolfang fórum að spjalla og
smullum strax saman. Urðum
strax ágætir félagar og því þurfi
ég ekki að hugsa mig lengi um
þegar hann bauð mér vinnu,“ segir
Sigfús.
Klekja út seiðum og ala
Vinnudagur Sigfúsar og Wol-
fang hefst klukkan sex á morgn-
ana þegar þeir mæta að Laxalóni
þar sem seiðin klekjast út og eru
svo alin í 50 til 150 g þyngd. Á
þessu ári fara um 400 þúsund seiði
frá Laxalóni til þeirra sem hafa
yfir að ráða vötnum og veiðisvæð-
um, til dæmis á vinsælum ferða-
mannastöðum. Einnig hafa verið
fengin bleikjuseiði sem eru alin í
fjögurra til tíu punda stærð og svo
sett í Reynisvatnið.
„Auðvitað er fólk mismunandi
fiskið en ég held að flestir sem
kasta út færi þar fái fisk á öng-
ulinn, þó svo að ekkert sé nú samt
öruggt í veiðinni,“ segir Sigfús.
„Stundum eru tugir fólks á öllum
aldri hér við vatnið og stundum
enn fleiri þegar til dæmis fyr-
irtækjahópar koma hingað. Þá er
grillað hér, farið í leiki og mörgum
finnst að á þessum stundum sé
veiðin eitthvað sem tilheyrir.“
Tilveran í öðrum gír
Varla er hægt að hugsa sér ólík-
ari viðfangsefni en handbolta og
fiskeldi. Sigfús viðurkennir að svo
sé en telur þó að eitt og annað sé
sameiginlegt, svo sem að sjá ár-
angur starfs síns. „Seiðin dafna sé
lögð alúð í ræktunina. Sama gildir
um boltann. Maður byrjar ungur,
leggur sig fram og er ekki sagt að
æfingin skapi meistarann?“ segir
Sigfús.
„Ég er búinn að vera viðloðandi
þetta í þrjú til fjögur ár. Kom al-
veg grænn inn í til dæmis fiski-
rækt en hef lært af reynslunni og
spurt þegar ég er strand. Þegar
maður stokkar tilveruna upp
finnst mér fínt að vera í svona
púli. Byrja snemma á morgnana,
strita allan daginn og sofna heið-
arlega þreyttur að kvöldi. Þegar
maður fer síðan sjálfur í veiði er
eins og tilveran fari í annan gír.
Til dæmis fór ég austur fyrir fjall
fyrir nokkrum árum; gekk niður
að vatnsborðinu, henti út færinu
og festi stöngina. Lagðist svo í
grasið og sofnaði um leið. Vaknaði
af værum blundi eftir einn og
hálfan klukkutíma og þá var auð-
vitað einn rígvænn fastur á öngl-
inum.“
Úr varnarleik í veiðiskap
Silfurdreng-
urinn Sigfús kom-
inn í silunginn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reynisvatn Wolfang Pomorin og Sigfús Sigurðsson sleppa fiski í vatnið á fallegum sumarmorgni. Handboltakapp-
inn í nýju verkefni og hefur mikla ánægju af enda alltaf áhugasamur um að renna fyrir fisk í ám og vötnum.